Tvær leiðir til að lækka vexti

Hag­fræð­ing­ur­inn Ólafur Mar­geirs­son segir að stöðva þurfi notkun verð­trygg­ingar eða taka upp nýja mynt til að lækka vexti hús­næð­is­lána á Íslandi.

Tvær leiðir til að lækka vexti
Ólafur Mar­geirs­son Hag­fræð­ingur segir miðl­un­ar­ferli vaxta­stefnu Seðla­bank­ans ábóta­vant. Mynd: Bára Huld Beck

Vaxta­á­lag á Íslandi er ekki hærra en í Þýska­landi eða Sviss á meðan vextir á fast­eigna­lánum með fimm ára bundnum vöxtum eru í kringum 8,15 pró­sent, sam­kvæmt útreikn­ingum Ólafs Mar­geirs­sonar hag­fræð­ings. Ástæða hás vaxta­stigs á Íslandi sé því ekki hátt vaxta­á­lag heldur það að vaxta­stefna Seðla­banka Íslands hafi ekki næg áhrif.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans mun á morgun til­kynna um vaxta­á­kvörðun sína en mikil umræða hefur skap­ast um vaxta­stig á Íslandi und­an­farið í ljósi þró­unar verð­bólgu og dóms Hæsta­réttar í vaxta­mál­inu svo­kall­aða.

Ólafur skrif­aði færslu á Facebook í gær með mynd sem sýndi hversu mikið hærri vextir á íslenskum hús­næð­is­lánum eru en í sam­an­burð­ar­löndum í Evrópu þrátt fyrir svipað vaxta­á­lag á rík­is­skulda­bréf.

„Álagið er í kringum 1,3% - 1,4% á reikn­aða rík­is­skulda­bréfa­vexti,“ skrif­aði hann. „Það er svipað og í Þýska­landi og hér í …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þetta er ekki "annað hvort eða". Verðtryggingu lána til neytenda þarf að afnema hvort sem Íslendingar ákveða að halda eða afsala sér fullveldi í peningaútgáfumálum.

    Auk þess er eitt stórt vandamál sem enginn meðmælenda upptöku erlends gjaldmiðils hefur lagt fram lausn á. Peningamagn í umferð á Íslandi er um 3.000 milljarðar króna, jafngildi 20,3 milljarða evra eða 18,74 milljarða svissneskra franka eða 23,54 milljarða Bandaríkjadala svo dæmi séu tekin. Þetta er það magn af erlendum gjaldeyri sem við þyrftum að afla til að geta skipt öllum krónum í umferð yfir í þann gjaldeyri. Enginn á Íslandi hefur vald til að prenta erlenda gjaldmiðla þar sem það væri brot á fullveldisrétti útgáfuríkja þeirra. Þess vegna vaknar óhjákvæmilega sú spurning: Hvar ættum við að fá allan þennan erlenda gjaldeyri og það sem mestu máli skiptir: með hverju gætum við mögulega þurft að borga fyrir hann? Norðurljósunum? Sandi úr Reynisfjöru? Eða myndu seljendur gera kröfu um raunveruleg verðmæti sem greiðslu eins og flugvelli, hafnir, ríkisfyrirtæki (Landsvirkjun?, Landsbankann?), landareignir, vatnsréttindi, yfirráðarétt yfir fiskimiðunum? Hvar endar reikningurinn???
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár