Vaxtamálið: Skilmálar bankans ógiltir að hluta

Íslands­banki má ekki miða við hug­læga þætti þegar ákvarð­anir eru teknar um að breyta vöxtum. Hæsti­réttur kvað upp dóm í mál­inu í dag og ógilti hluta skil­mál­anna.

Vaxtamálið: Skilmálar bankans ógiltir að hluta

Skil­málar Íslands­banka um hvernig bank­inn má breyta vöxtum á lánum til neyt­enda voru í dag dæmdir ólög­mætir í Hæsta­rétti. Ekki má miða við hug­læga þætti þegar ákvarð­anir eru teknar um að breyta vöxtum til neyt­enda. Bankinn var þó sýkn­aður af kröfum lán­tak­anna um að ógilda vaxta­breyt­ingar sem þegar hafa átt sér stað. Um var að ræða eitt af próf­mál­unum í Vaxta­mál­inu svo­kall­aða. 

Dómurinn var full­skip­aður, sem þýðir að sjö hæsta­rétta­dóm­arar komu að nið­ur­stöð­unni. Það er aðeins gert í málum sem þykja hafa sér­stakt for­dæm­is­gildi. 

Málið snýst um millj­arða­tugi. Bank­arnir meta mögu­leg áhrif dóms­ins á um 70 millj­arða króna en Neyt­enda­sam­tökin telja þau geta verið á bil­inu 50-100 millj­arða. Dómurinn hefur ekki verið birtur enn og er óljóst hverjar for­sendur hans eru og um leið hvaða áhrif hann mun hafa fyrir aðra lán­taka. 

EFTA-dóm­stóll­inn hefur snert á mál­inu og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skil­málar bank­anna séu ekki að fullu í sam­ræmi við Evr­ópu­reglur. Skil­málar lána um vaxta­breyt­ingar séu ekki nægi­lega skýrir en um nákvæm­lega það snýst deilan. Nið­ur­staða Hæsta­réttar virð­ast, við fyrstu sýn, í sam­ræmi við það.

Í nið­ur­stöðu EFTA-dóm­stóls­ins, sem veitti ráð­gef­andi álit um túlkun Evr­óputil­skip­ina, sagði meðal ann­ars: „Var talið að orða­lag eins og það sem birt­ist í skil­mál­unum sem til umfjöll­unar eru í mál­unum, eins og „vextir á mark­aði“ og „breyt­ingar á fjár­mögn­un­ar­kostn­aði bank­ans“ sé ekki gagn­sætt, jafn­vel þótt það sé mál­fræði­lega skýrt og skilj­an­legt. Einnig mælir það gegn skýr­leika samn­ings­skil­mál­anna sem deilt er um að þeir hafi að geyma hug­takið „meðal ann­ars“. Eðli máls­ins sam­kvæmt gerir hug­takið ráð fyrir að tekið sé til­lit til við­miða sem neyt­andi þekkir ekki til við gerð samn­ings­ins.“

Málið er rekið fyrir til­stilli Neyt­enda­sam­tak­anna sem telja skil­mála vel­flestra lána ólög­lega. Telja sam­tökin að ákvarð­anir um vaxta­breyt­ingar séu veru­lega mats­kenndar og ógegn­sæjar og því ekki hægt fyrir lán­taka að sann­reyna hvort þær séu rétt­mætar.

Alls er málið rekið í sex hlutum og er þetta aðeins einn angi þeirra. Í þessu próf­máli er það Íslands­banka sem var stefnt. Sam­bæri­leg mál gegn hinum bönk­unum hafa líka verið höfðuð en hafa ekki enn komið fyrir Hæsta­rétt. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár