Hvorki gert ráð fyrir endurgerð á húsnæði gamla spítalans né tækjakaupum fyrir nýja spítalann

Stjórn­endur Land­spít­al­ans segja fjár­mála­á­ætlun benda til þess að rík­is­stjórnin vilji færa heil­brigð­is­þjón­ustu til veit­enda utan sjúkra­húsa. Fjár­mála­ráð­herra telur einka­rekstur jákvæðan fyrir sjúk­linga og heil­brigð­is­ráð­herra sagði allt tal um nið­ur­skurð vera „fals­fréttir“.

Hvorki gert ráð fyrir endurgerð á húsnæði gamla spítalans né tækjakaupum fyrir nýja spítalann

Hvorki er gert ráð fyrir tækja­kaupum vegna nýs Land­spít­ala né nauð­syn­legri end­ur­gerð eldri húsa við Hring­braut í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Sú for­gangs­röðun sem birt­ist í áætl­un­inni bendir til þess að rík­is­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að heil­brigð­is­þjón­usta fær­ist frá sjúkra­húsum og til veit­enda utan sjúkra­húsa, svo sem á einka­reknum lækna­stofum.

María Heim­is­dóttirfjár­mála­stjóri Land­spít­al­ans.

Þetta kemur fram í umsögn for­stjóra og fjár­mála­stjóra Land­spít­al­ans um áætl­un­ina. Eins og Stundin greindi frá í gær þurfa sjúkra­hús á Íslandi að skera niður í rekstri um tæpa 5,2 millj­arða á næstu fimm árum til að skapa svig­rúm til nýrra verk­efna. María Heim­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs, fjall­aði um þetta á árs­fundi spít­al­ans. Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra hefur hins vegar afgreitt tal um nið­ur­skurð í heil­brigð­is­þjón­ustu sem „fals­fréttir“ (e. fake news). „Það eru hrein­lega fals­fréttir að nið­ur­skurður sé í heil­brigð­is­málum vegna þess að það er verið að auka við í heil­brigð­is­þjón­ustu og eins og við vitum er gert ráð fyrir því í fjár­mála­á­ætlun að það sé aukið með for­gangs­röðun á vel­ferð­ar­mál eftir því sem líður á tíma­bilið,“ sagði ráð­herra þegar rætt var um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi þann 6. apríl síð­ast­lið­inn.

„Það eru hrein­lega fals­fréttir að
nið­ur­skurður sé í heil­brigð­is­málum“

Þegar Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, vakti athygli á gagn­rýni Land­spít­al­ans og ummæl­unum um 5,2 millj­arða hag­ræð­ingu í rekstri sjúkra­húsa á Alþingi í dag svar­aði Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra: „Það er nú einu sinni þannig að þó að ein­hver segi að meira sé minna þá verður það ekk­ert minna við það. Það er ennþá meira, og fram­lög aukast mjög mikið til heil­brigð­is­mála og þau munu aukast líka til Land­spít­al­ans.“

Vantar 10 milljarða á næsta ári

Umsögn Maríu og Páls Matth­í­as­sonar, for­stjóra Land­spít­al­ans, hefur að geyma ítar­lega gagn­rýni á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Benda þau meðal ann­ars á að strax á næsta ári vantar um 10 millj­arða til rekstrar, nauð­syn­legra tækja­kaupa og ann­ars stofn­kostn­aðar á Land­spít­al­anum. 

Þau furða sig sér­stak­lega á áformum stjórn­valda um að auka fjár­veit­ingar til þjón­ustu utan sjúkra­húsa marg­falt á við það sem bætt er við rekstr­ar­grund­völl sjúkra­húsa. Þetta gefi til kynna að rík­is­stjórnin vilji kynda undir þeirri þróun að þjón­usta fær­ist frá sjúkra­húsum og til veit­enda utan sjúkra­húsa.  

Birgir Jak­obs­sonland­læknir

Aðeins fáeinir dagar eru síðan land­læknir sendi út frétta­til­kynn­ingu þar sem hann sagði að túlkun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á heil­brigð­is­lögum opn­aði á auk­inn einka­rekstur og einka­væð­ingu í íslensku heil­brigð­is­kerfi og vand­séð væri hvernig heil­brigð­is­yf­ir­völd gætu haft stjórn á því hvert opin­ber heil­brigðis­út­gjöld rynnu. 

Í umsögn Páls og Maríu kemur fram sams konar gagn­rýni á heil­brigð­is­stefnu stjórn­valda. „Nýja frum­varpið boðar meira af því sama þrátt fyrir að kalla eftir skýr­ari skil­grein­ingum á þjón­ustu­fram­boði sem lyk­il­at­riði í skyn­sam­legri for­gangs­röðun. Samn­ingur SÍ við sér­greina­lækna hefur verið nefndur sem skóla­bók­ar­dæmi um óskil­greind og ótak­mörkuð kaup á þjón­ustu fyrir almannafé. Samt er sífellt bætt við fjár­fram­lög til þessa, jafn­vel á fjár­auka­lögum enda virð­ist lítil sem engin stjórn sé á þessum útgjöldum. Ef litið er til rekstrar á mið­lægri stjórn­sýslu SÍ sést svipað mynstur - end­ur­tek­inn halli og sívax­andi kostn­aður við rekstur, m.a. 33% hækkun rík­is­fram­laga bara milli áranna 2014 og 2015. Og enn á að bæta í,“ segir í umsögn­inni.

Telur einkarekstur í heilbrigðiskerfinu jákvæðan fyrir sjúklinga

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem lagði fram fjár­mála­á­ætl­un­ina, er sjálfur fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Sjúkra­trygg­inga Íslands. Hann var skip­aður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra og núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, þegar stofn­unin var sett á lagg­irnar árið 2008.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi fyrr í vik­unni var Benedikt inntur eftir afstöðu sinni til tvö­falds heil­brigð­is­kerfis. „Hugnast honum það? Telur hann það sam­ræm­ast ábyrgri ráð­stöfun opin­bers fjár að ótak­markað fjár­magn geti runnið úr rík­is­sjóði í einka­geir­ann þar sem um er að ræða jafn­vel fólk og aðila og fyr­ir­tæki sem hagn­ast á heilsu­bresti?“ spurði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Benedikt svar­aði á þá leið að Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefðu borgað marg­vís­lega starf­semi einka­lækna, einka­rek­inna lækna­stöðva, að hluta til á móti sjúk­lingum. „Ég veit ekki annað en mjög margir sjúk­lingar hafi fengið góðan bata þar. Þetta hefur stytt biðlista. Ég tel að það sé jákvætt fyrir sjúk­linga.“ Þá sagði hann einnig að fara þyrfti vel með fjár­mun­ina sem rynnu til heil­brigð­is­mála „Ég held að við getum verið sam­mála um það að hér á landi hefur verið einka­rekstur í heil­brigð­is­kerfi um langa hríð. Hann hefur að stórum hluta verið borg­aður af opin­beru fé. Ég held að það sé sjúk­lingum til góðs að hér séu fleiri aðilar sem geta læknað þá. Ég held það hafi stytt biðlista í kerf­inu að hér eru nú nokkrar stöðvar sem geta gert bækl­un­ar­að­gerðir og aðrar slíkar aðgerðir. Ég held að það sé sjúk­lingum til góðs. Ég held að við verðum alltaf að horfa á það þannig að við eigum að setja sjúk­ling­inn í önd­vegi.“

„Einkennileg forgangsröðun“

Páll Matth­í­as­sonfor­stjóri Land­spít­al­ans

Í umsögn Land­spít­al­ans um rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­ina er fundið að áherslu sem lögð er á kaup á erlendri sjúkra­hús­þjón­ustu. Ein­kenni­legt sé að for­gangs­raða veru­legum fjár­munum til þjón­ustu utan Íslands þegar unnt er að veita sömu þjón­ustu hér­lendis fyrir mun minna fé:

„Undir erlenda sjúkra­hús­þjón­ustu fellur ann­ars vegar mjög sér­hæfð þjón­usta sem ekki er hægt að veita hér­lendis og hins vegar þjón­usta sem sjúk­lingar hafa rétt á að sækja erlendis vegna óhóf­legs bið­tíma hér eða á grund­velli ESB til­skip­unar um rétt sjúk­linga til að leita sér þjón­ustu utan heima­lands. Það er ein­kenni­legt að sjá svo miklu fé ráð­stafað til þessa verk­efnis í ljósi þess að alger óvissa ríkir um eft­ir­spurn eftir þess­ari þjón­ustu, og þess að biðlista­á­tak stjórn­valda mun vænt­an­lega draga úr þeirri eft­ir­spurn. Þetta fé væri betur nýtt í upp­bygg­ingu þjón­ustu inn­an­lands sem enn frekar myndi draga úr þess­ari meintu eft­ir­spurn. Þetta er ekki síst mik­il­vægt í ljósi þess að fyrir liggur að sjúkra­hús­þjón­usta á LSH er miklum mun hag­kvæm­ari en ger­ist t.d. á sænskum sam­an­burð­ar­sjúkra­húsum. Sjúk­lingar sem kjósa að sækja þjón­ustu erlendis á grund­velli ESB til­skip­un­ar­innar fá ekki allan kostnað við þjón­ust­una greiddan, heldur ein­ungis sem sam­svarar því sem þjón­ustan kostar í þeirra heima­landi. Þannig fengi sjúk­lingur sem færi til Sví­þjóðar til með­ferðar aðeins greiddan um helm­ing raun­kostn­aðar við með­ferð­ina þar (ef marka má grein­ingu McKinsey) og þyrfti sjálfur að standa straum af hinum helm­ingnum. Það er því bjarn­ar­greiði við neyt­endur að for­gangs­raða veru­legum fjár­munum til þjón­ustu utan Íslands þegar unnt er að veita sömu þjón­ustu hér­lendis fyrir mun minna fé. Þetta verður að telj­ast mjög ein­kenni­leg for­gangs­röðun þegar mark­mið stjórn­valda hlýtur að vera að fá sem mesta og besta þjón­ustu á sem hag­kvæm­ustu verði.“

Í umsögn­inni eru farið yfir ýmis atriði sem ekki er gert ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þennan kafla má lesa hér að neðan, en umsögn­ina í heild má nálg­ast á vef Alþingis. 

Í fyrsta lagi er ekki gert ráð fyrir neinum kostn­aði við end­ur­gerð eldra hús­næðis LSH sam­hliða bygg­ingu NLSH. Eins og kunn­ugt er voru bygg­ing­ar­á­form um NLSH end­ur­skoðuð ræki­lega í kjöl­far banka­hruns­ins og veru­lega dregið úr þeirri fram­kvæmd sem áður hafði verið fyr­ir­huguð. Á móti var gert ráð fyrir að eldra hús­næði LSH yrði nýtt að veru­legu leyti með hinum nýju bygg­ingum. End­ur­gerð eldri bygg­inga er því for­senda þess að rekstur LSH rúmist innan NLSH og skili þeim rekstr­ar­á­bata sem erlendir sér­fræð­ingar svo og Hag­fræði­stofnun HÍ hafa reiknað með. Í öðru lagi virð­ist ekki vera gert ráð fyrir neinum kostn­aði við kaup á tækjum og bún­aði vegna NLSH en sá kostn­aður mun að hluta til falla til innan tíma­bils­ins  sem til­lagan tekur til. Í til­lög­unni er mikil áhersla lögð á að hraða upp­bygg­ingu við Hring­braut en ef ekki er hugað að öðrum þáttum, svo sem tækjum og end­ur­gerð eldra hús­næðis, er hætt við að nið­ur­staða verk­efn­is­ins og nota­gildi þess verði með öðrum hætti en lagt var upp með. Land­spít­ala hefur ekki tek­ist að finna í til­lög­unni nokk­urt fjár­magn til rekstrar sjúk­linga­hót­els né heldur til kaupa á bún­aði fyrir hót­elið. Samkvæmt áætlun á sjúk­linga­hót­elið að hefja rekstur haustið 2017. 

Hvergi er minnst á kostnað vegna lög­bund­ins hlut­verks LSH á sviði vís­inda og mennta þó svo í til­lög­unni sé sér­stak­lega rætt um mik­il­vægi þess­ara þátta fyrir sam­fé­lagið. Sama gildir um fjöl­mörg önnur atriði sem LSH lagði fram í mati sínu á fjár­þörf næstu 5 ára sem stjórn­völd köll­uðu eftir í aðdrag­anda þess­arar áætl­ana­gerðar - ekk­ert fé virð­ist til þeirra ætlað. 

Í fjár­veit­ingum til SÍ virð­ist gert ráð fyrir nokkrum kostn­aði vegna inn­leið­ingar nýs greiðslu­þátt­töku­kerfis sem taka á gildi 1. maí nk. Fyrir liggur að breyt­ingin mun leiða til lækk­unar sér­tekna LSH. E f Land­spít­ala fær þetta ekki leið­rétt að fullu mun leiða til hag­ræð­ing­ar­kröfu á spít­al­ann. 

Fjár­heim­ildir til S-lyfja vekja einnig áhyggjur ekki síst í ljósi þeirrar alvar­legu stöðu sem nú er uppi í þeim mála­flokki. Frá því skipu­lagi umsýslu S lyfja var breytt árið 2015 hefur kostn­aður vegna þeirra auk­ist hratt, einkum vegna notk­unar eldri lyfja og lítið svig­rúm hefur verið til inn­leið­ingar nýrra lyfja. Land­spít­ali hafði varað sterk­lega við þess­ari breyt­ingu m.a. vegna auk­ins kostn­aðar við dreif­ingu í almennum apó­tekum. Nú hafa þær spár því miður gengið eftir og eru veru­legur hluti þess fjár­hags­vanda sem blasir við. 

Land­spít­ali fagnar þeim vilja sem fram kemur í til­lög­unni að sér­stak­lega skuli nýta upp­lýs­inga­tækni og opin­ber inn­kaup til að ná fram hag­ræð­ingu. Það er því ákaf­lega mikil von­brigði að sjá að til upp­lýs­inga­tækni­verk­efna (falla undir lýð­heilsu og stjórn­sýslu vel­ferð­ar­mála í til­lög­unni) í heil­brigð­is­þjón­ustu eru aðeins ætl­aðar að hámarki 355 millj­ónir á fimm ára tíma­bil­inu sem sam­svarar um 70 millj­ónum á ári að jafn­aði. Þetta er ekki í neinu sam­ræmi við þörf­ina varð­andi raf­ræna sjúkra­skrá og þær áherslur sem lagðar eru í til­lög­unni á nýt­ingu upp­lýs­inga­tækni til að ná fram hag­ræð­ingu og auk­inni fram­leiðni. Ekki virð­ist gert ráð fyrir neinum kostn­að­ar­auka við að þróa opin­ber inn­kaup og byggja upp nauð­syn­lega inn­viði á því sviði. Því er hæpið að þau skili þeirri hag­ræð­ingu sem vænst er. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár