Segir sigur Trumps martröð: Hvernig útskýri ég þetta fyrir börnunum mínum?

Álits­gjafi CNN komst við í beinni útsend­ingu þegar hann ræddi nið­ur­stöður banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar í nótt.

Segir sigur Trumps martröð: Hvernig útskýri ég þetta fyrir börnunum mínum?

Álits­gjafi CNN komst við í beinni útsend­ingu þegar hann ræddi nið­ur­stöður banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar í nótt. Ljóst er að úrslitin komu mörgum í opna skjöldu, þar sem allt virt­ist benda til þess að Hillary Clinton ætti sig­ur­inn vísan. Þannig hefur það verið alla kosn­inga­bar­átt­una, þar sem Donald Trump hefur sífellt komið á óvart, bæði hvað varðar árangur og óheflaða fram­göngu gagn­vart mót­fram­bjóð­anda sínum, konum og ýmsum minni­hluta­hópum í Banda­ríkj­unum. Hann hóf kosn­inga­bar­átt­una á því að segj­ast ætla að reisa múr á milli landamæra Banda­ríkj­anna og Mexíkó, sem Mexíkó ætti að greiða fyrir, því þaðan kæmi fólk sem ætti við vanda­mál að stríða og því fylgdu eit­ur­lyf, glæpir og þetta væru nauð­garar. Þá sagð­ist hann ætla að loka landa­mær­unum, fang­elsa ólög­lega inn­flytj­endur þar til þeir yrðu fluttir úr landi og banna komu múslima til lands­ins.

Líkti niðurstöðunum við martröð 

Van Jones, álits­gjafi CNN, tal­aði fyrir þetta fólk þegar hann sagði: …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár