Hótel í Skipholti rekið í leyfisleysi

Hótelið Reykja­vík Hotel Center hefur verið rekið án til­skildra leyfa í marga mán­uði. Ljóst er að þrátt fyrir að sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé kunn­ugt um ólög­lega starf­semi þá er hót­elið enn starf­andi.

Hótel í Skipholti rekið í leyfisleysi
Photos­hop Á vef­síðu hins virta leið­sögu­bóka­út­gef­anda Lonely Plant má finna þessa mynd af hót­el­inu. Nafn þesser ber­sýni­lega sett inn eftir á.

Hótelið Reykja­vík Hotel Center í Skip­holti hefur verið rekið án til­skildra leyfa í marga mán­uði, en sam­kvæmt heima­síðu hót­els­ins hófst rekstur þess þann 10. júní. Sigurður G. Hafstað, lög­maður hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stað­festir þetta í skrif­legu svari til Stund­ar­innar. Ekkert rekstr­ar­leyfi hefur verið veitt fyrir gisti­heim­ilið að Skip­holti 27. Þrátt fyrir það er hót­elið með sér­staka síðu á vef ferða­hand­bóka­út­gef­and­ans Lonely Planet. Á heima­síðu hót­els­ins eru tenglar á bók­un­ar­síð­una Booking.com, en svo virð­ist sem hót­elið hafi nýverið verið fjar­lægt af þeirri síðu.

Eigandi hót­els­ins, Sig­ur­karl Bjartur Rún­ars­son, hélt því rang­lega fram í sam­tali við Stundina að hót­elið hefði til­skilin leyfi þegar óskað var eftir við­brögðum frá honum. Þegar honum var greint frá svari sýslu­manns sagði hann að málið væri flókið: „Þetta er ekki alveg svona ein­falt. Þetta er ágrein­ings­mál við eig­endur húss­ins. Þetta er miklu, miklu stærri saga,“ segir Sig­ur­karl Bjartur.

Ljóst er að þótt sýslu­manni sé kunn­ugt um starf­semi hót­els­ins er það enn starf­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár