Hóta að hætta nema fjármálaráðherra verði áfram formaður hollvinafélagsins

Stjórn­ar­maður í Holl­vina­fé­lagi MR segir mót­fram­boð ungs list­fræði­nema gegn fjár­mála­ráð­herrra stefna starfi félags­ins í hættu. „Stjórn­ar­menn geta vart hugsað sér að starfa áfram, verði gerð kúvend­ing með þessum hætti.“

Hóta að hætta nema fjármálaráðherra verði áfram formaður hollvinafélagsins
Hér má sjá fjár­mála­ráð­herra ásamt Yngva Pét­urs­syni, rektor Mennta­skól­ans í Reykja­vík. Mynd: Af Facebook-síðu Hollvinafélags MR

Stjórn­ar­menn Holl­vina­fé­lags MR geta vart hugsað sér að gegna áfram störfum nema Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, verði áfram for­maður félags­ins. Frá þessu greinir Kristín Heim­is­dóttir, stjórn­ar­maður í félag­inu, í lok­aðri grúppu útskrif­aðra MR-inga á Facebook. 

Benedikt hefur sætt gagn­rýni fyrir að sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður Holl­vina­fé­lags Mennta­skól­ans í Reykja­vík meðan hann kemur með beinum hætti að ákvörð­unum um fjár­veit­ingar til fram­halds­skóla sem fjár­mála­ráð­herra Íslands. Hrafn­kell Hringur Helgason, ungur list­fræði­nemi, til­kynnti um mót­fram­boð sitt í síð­ustu viku. „Það verður að telj­ast afar óheppi­legt að fjár­mála­ráð­herra gegni for­manns­hlut­verki í holl­vina­fé­lagi stofn­unar sem hann ákvarðar sjálfur fjár­fram­lög til,“ sagði Hrafn­kell í frétta­til­kynn­ingu. „Raunar yrði það Mennta­skól­anum í Reykja­vík til háð­ungar ef sami maður og stendur að stór­felldum nið­ur­skurði til fram­halds­skóla yrði áfram and­lit holl­vina­fé­lags skól­ans.“ 

Kristín Heim­is­dóttir hefur setið í stjórn Holl­vina­fé­lags MR allt frá stofnun félags­ins og full­yrðir að Benedikt hafi sinnt hlut­verki sínu sem for­maður félags­ins með sóma. „Á þessum árum hefur okkur tek­ist - með ykkar stuðn­ingi og hjálp - að safna tæpum 15 millj­ónum sem hafa runnið beint til skól­ans,“ skrifar Kristín til gam­alla skóla­fé­laga og bætir við: „Aðal­fundur félags­ins fer fram á morgun. Á síð­ustu stundu barst mót­fram­boð til for­manns, en ungur list­fræði­nemi og MR-ingur vill með þeim hætti mót­mæla að fjár­mála­ráð­herra, sem leggur fram fjár­mála­á­ætlun með skertum fram­lögum til mennta­mála, haldi áfram sem for­maður félags­ins. Ég vil taka það fram að Benedikt hefur unnið af heil­indum og reynst ein­stak­lega mál­efna­legur í öllu starfi fyrir holl­vini. Aldrei hef ég orðið vör við að önnur störf hans hafi haft áhrif inn í okkar starf fyrir MR.“

Segir Kristín að hún hafi áhyggjur af því að fram­boð list­fræði­nem­ans ógni starfi Holl­vina­fé­lags­ins. „Menn geta haft sínar skoð­anir, en ég hef áhyggjur af því að starfi Holl­vina­fé­lags­ins sé stefnt í hættu. Stjórn­ar­menn geta vart hugsað sér að starfa áfram, verði gerð kúvend­ing með þessum hætti.“

„Ég hef áhyggjur af því að starfi
Holl­vina­fé­lags­ins sé stefnt í hættu“

Hún hvetur fyrr­ver­andi MR-inga til að mæta og styðja fjár­mála­ráð­herra: „Því vil ég biðja alla þá sem mögu­lega geta, og vilja styðja við áfram­hald­andi starf holl­vina í núver­andi mynd, að mæta á aðal­fund­inn á morgun og styðja Benedikt og stjórn­ina til áfram­hald­andi starfa. Atkvæð­is­rétt á fund­inum hafa allir holl­vinir skól­ans, þ.e. í raun allir útskrif­aðir MR-ingar.“ 

Hrafn­kell Hringur til­kynnti um mót­fram­boð sitt á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn en upp­lýs­ingar um fram­boð hans voru hvorki birtar á vef Mennta­skól­ans í Reykja­vík né á vef Holl­vina­fé­lags skól­ans fyrr en síð­degis í gær. „Ég hélt að venjan væri sú, þegar kosið er í stjórn og for­mennsku félaga, að til­kynnt væri um fram­komin fram­boð þegar fram­boðs­frestur rynni út. Hér sýn­ist mér að ekki sé gætt jafn­ræðis milli fram­boðs míns og fram­boðs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra,“ sagði Hrafn­kell þegar Stundin ræddi við hann í gær. 

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem Benedikt kynnti í apríl, verður dregið veru­lega úr fjár­fram­lögum til fram­halds­skóla­stigs­ins næstu fimm árin og árið 2018 mun mennta­kerfið sæta fjór­falt strang­ari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar. Stjórn­endur fram­halds­skól­anna og fram­halds­skóla­kenn­arar hafa gagn­rýnt áætl­un­ina harð­lega. Þá hefur rík­is­stjórnin einnig sætt gagn­rýni vegna áforma um sam­ein­ingu Fjöl­brauta­skól­ans í Ármúla og Tækni­skóla Íslands. 

Aðal­fundur Holl­vina­fé­lags­ins fer fram á morgun, laug­ar­dag, á hátíð­ar­sal skól­ans kl. 13:00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár