Hagfræðingar hella sér yfir Jón og Gunnar: „Rökþrota“ og „taka upp hráar röksemdir hagsmunaðila“

Gunnar Bragi Sveins­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar, sögðu í við­tölum á RÚV í gær að ekki kæmi til greina að bjóða upp fisk­veiði­kvóta líkt og Fær­ey­ingar hafa gert. Hag­fræð­ing­arnir Jón Steins­son og Þórólfur Matth­í­as­son hafa ýmis­legt við rök­stuðn­ing þeirra að athuga.

Hagfræðingar hella sér yfir Jón og Gunnar: „Rökþrota“ og „taka upp hráar röksemdir hagsmunaðila“

Gunnar Bragi Sveins­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Jón Gunn­ars­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, sögðu í við­tölum við frétta­stofu RÚV í gær að ekki kæmi til greina að bjóða upp fisk­veiði­kvóta líkt og Fær­ey­ingar hafa gert. Helstu rök­semdir Gunnars og Jóns voru þær að slíkt myndi auka sam­þjöppun í grein­inni; í Færeyjum hefðu útlend­ingar eign­ast mik­inn hluta afla­heim­ilda og slíkt gæti einnig gerst á Íslandi.

„Ég las grein í fær­eyskum vef­miðli í morgun þar sem verið var að fara yfir þetta. Og það eru ýmsir gallar á þessu. Það voru ekki nýliðar sem tóku þátt, erlendir aðilar tóku mikið þátt, þetta voru stærstu aðil­arnir sem buðu í og svo fram­vegis. Þetta er það sem við höfum sagt sem höfum efa­semdir um upp­boð, að myndi ger­ast. Þetta sé til þess fallið að ýta afla­heim­ild­unum á enn færri hendur en er í dag. Þannig að ég get ekki séð að þetta henti okkur,“ var haft eftir Gunnari Braga og var mál­flutn­ingur Jóns Gunn­ars­sonar svip­aður.

„Vá hvað þeir eru rök­þrota“

Jón Steins­son, hag­fræð­ingur við Columbia-háskóla í Banda­ríkj­unum, gagn­rýnir Gunnar Braga og Jón harð­lega í færslu á Facebook og segir mál­flutn­ing þeirra lýsa algjöru rök­þroti. „Vá hvað þeir eru rök­þrota. En helstu rökin eru að útlend­ingar hafi tekið þátt í Færeyjum. Ég veit ekki betur en að íslensk lög banni útlend­ingum að eiga veiði­heim­ildir,“ skrifar hann og vísar þar vænt­an­lega til 4. gr. laga um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri sem setur hvers kyns aðkomu útlend­inga að íslenskum sjáv­ar­út­vegi þröngar tak­mark­anir.

Á þetta bendir einnig Einar Gautur Stein­gríms­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður. „Það gilda reglur um hverjir megi stunda útgerð hér á landi. Það eru inn­lendir aðilar. Fjár­festar sem myndu bjóða í kvóta eða braska með hann á eft­ir­mark­aði myndu aldrei láta hann óveiddan. Erlendir aðilar hafa ekki yfir neinum skipum að ráða,“ skrifar hann á Facebook og bætir við: „Auð­veld­lega mætti með laga­setn­ingu fyr­ir­byggja und­ar­lega við­skipta­hætti. T.d. mætti það varða missi veiði­réttar að nýta ekki kvót­ann á fisk­veiði­ári. Margar aðrar leiðir kæmu til greina.“

Grjót úr glerhúsi

Svo virð­ist sem áhyggjur Jóns Gunn­ars­sonar og Gunnars Braga á sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi komi Jóni Steins­syni á óvart. „Svo tala þeir um sam­þjöppun. Þar eru nú aldeilis verj­endur núver­andi kerfis að kasta grjóti úr gler­húsi eins og nýleg kaup Granda á kvóta minna á,“ skrifar hann og bætir við: „Annars erum við með ákvæði í núver­andi lögum um hámarks­eign útgerða á kvóta. Svo það myndi setja frek­ari sam­þjöppun skorður ef upp­boð væru tekin upp alveg eins og það gerir í dag. Æ hvað það hlýtur að vera ömur­legt að þurfa að standa fyrir svona aumum mál­flutn­ingi.“ 

Þórólfur Matth­í­as­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, leggur einnig orð í belg og bendir á að svo virð­ist sem Tor­héð­inn Jenssen, fjár­mála­stjóri Varðins – eins stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis Færeyja – sé helsta heim­ild Jóns Gunn­ars­sonar og Gunnars Braga Sveins­sonar um upp­boð afla­heim­ilda í Færeyjum. 

„Við­mæl­endur frétta­manns (ráð­herra og for­maður atvinnu­vega­nefndar) vitna í inn­legg Tor­héð­ins Jenssen á vefsí­unni vp.fo til sann­inda­merkis um að upp­boð afla­heim­ilda auki sam­þjöppun, vinni gegn nýliðun og færi kvóta í hendur útlend­inga. Nú er þess að geta að Torhéðin er ekki óháður upp­lýs­inga­gjafi í þessu máli. Hann er fjár­mála­stjóri eins stæsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis Færeyja, Varðin,“ skrifar Þórólfur og bætir við: 

„Erlent eign­ar­hald er tals­vert meira í Fær­eyskri útgerð en hér á landi. Þannig á Samherji 1/3 í Fram­herja að því að mér er sagt. Mér er jafn­framt sagt að Varðin sé eina stóra útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem ekki er með erlenda aðila á eig­enda­hlið­inni. Því hefði krafa um að engir útlend­ingar kæmu að upp­boð­unum þýtt að Varðin hefði setið til­tölu­lega einn að kök­unni!“

Röksemdir hagsmunaaðila verði að heilögum sannleika

Þórólfur bendir á að Lög­þingið í Færeyjum hafi gert það að skil­yrði þegar lögin um til­rauna­upp­boð voru sam­þykkt að ein­ungis fyr­ir­tæki með veiði­leyfi mættu bjóða í kvóta. „Hvort það hafi verið skyn­sam­legt má deila um, en það að nýliðar hafi ekki boðið hefur ekk­ert með upp­boðs­að­ferða­fræð­ina að gera, heldur með skil­yrði Lög­þings­ins. Hvað sam­þjöppun varðar þá má nú nefna að íslenska kerfið ýtir undir sam­þjöppun sam­an­ber nýleg kaup HB Granda á kvóta Hafn­ar­ness VERs.“ 

Loks spyr hann: „Verður ekki að gera þær kröfur til ráð­herra og for­manns atvinnu­vega­nefndar Alþingis að þeir afli sér upp­lýs­inga áður en þeir taka upp hráar rök­semdir hags­muna­að­ila eins og um heilagan sann­leika væri að ræða?“

Telur að uppboð séu besta aðferðin 

Stundin hefur áður birt skrif Jóns Steins­sonar um tæki­færi sem fel­ast í upp­boði á afla­heim­ildum. Í fyrra fjall­aði Jón um málið í stuttu inn­leggi sem fylgdi frétta­skýr­ingu Stund­ar­innar um afstöðu stjórn­mála­flokka á Alþingi til slíkra hug­mynda. Jón skrif­aði meðal ann­ars:

Það er smjör­klípa að halda því fram að upp­boð hafi ekki reynst vel í öðrum löndum við úthlutun á veiði­heim­ildum. Uppboð hafa verið notuð við úthlutun alls kyns nátt­úru­gæða víða um heim og einnig við sölu á opin­berum eignum og rétt­indum. Almennt hafa þau reynst vel og hafa fest sig í sessi sem algert lyk­il­tæki í opin­berri stjórn­sýslu. Engum dettur í hug að selja rík­is­skulda­bréf á annan veg en með upp­boði. Í dag er einnig gerð krafa um útboð þegar ríkið ræðst í verk­legar fram­kvæmdir. Þetta á við um öll lönd sem ekki eru þeim mun spillt­ari. Önnur dæmi um upp­boð af hálfu hins opin­bera víða um heim eru upp­boð á far­símarásum, upp­boð á rétti til olíu­leitar, upp­boð á rétti til skóg­ar­höggs, og svo mætti lengi telja. Það er almenn sam­staða á meðal fræði­manna um að upp­boð séu besta aðferðin til þess að úthluta tak­mörk­uðum gæðum af hálfu hins opin­bera. Það sem helst kemur í veg fyrir enn meiri notkun upp­boða er spill­ing. Svo ein­falt er það. Þegar upp­boð eru ekki notuð hafa þeir sem eru inn­vígðir og inn­múr­aðir mun meira svig­rúm til þess að sölsa undir sig verð­mæti á und­ir­verði. Það er þessi spill­ing sem þetta mál snýst um. En stjórn­ar­flokk­arnir vilja vita­skuld þyrla upp ryki og reyna að telja fólki trú um að málið snú­ist um eitt­hvað allt annað. En það gerir það ekki. Þetta mál snýst um að við­halda for­rétt­indum inn­vígðra og inn­múr­aðra auð­manna á kostnað almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár