Eigendur Samherja greiða sér 1220 milljónir í arð

Sam­stæðan skil­aði 14,4 millj­arða hagn­aði í fyrra og er með eigið fé upp á 94,4 millj­arða. Aðal­eig­end­urnir þén­uðu sam­tals um 1094 millj­ónir í fjár­magnstekjur árið 2017.

Eigendur Samherja greiða sér 1220 milljónir í arð
Fjár­sterkir frændur Aðal­eig­endur Samherja eru frænd­urnir Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son. Eins og Stundin greindi frá í sumar þén­aði Kristján um 660 millj­ónir í fjár­magsntekjur árið 2017 og Þor­steinn um 434 millj­ónir.

Eigendur Samherja greiða sér um 1220 millj­óna arð vegna rekstr­ar­árs­ins 2017. Þetta var ákveðið á nýlegum aðal­fundi Samherja sam­kvæmt umfjöllun sem birt­ist á vef fyr­ir­tæk­is­ins fyrir helgi.

Fram kemur að hagn­að­ur­inn af rekstri hafi numið 14,4 millj­örðum króna í fyrra og hækkað lít­il­lega milli ára. 8,5 pró­sent af hagn­að­inum renni til hlut­hafa í formi arð­greiðslna. 

Samherji er eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu og í öðru sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem ráða yfir mestri afla­hlut­deild við Íslands­strendur. Var sam­stæðuni skipt upp í inn­lenda og erlenda starf­semi í fyrra­haust.

Aðal­eig­endur Samherja eru frænd­urnir Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son. Eins og Stundin greindi frá í sumar þén­aði Kristján um 660 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur árið 2017 og Þor­steinn um 434 millj­ónir.

Sam­an­lagðar tekjur dóttur- og sam­starfs­fé­laga í fimmtán löndum innan sam­stæðu Samherja námu um 77 millj­örðum króna í fyrra en eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins var 94,4 millj­arðar í lok árs­ins.

Haft er eftir Þor­steini Má á vef Samherja að góð afkoma fyr­ir­tæk­is­ins sé ekki sjálf­gefin. „Samherji skil­aði góðri afkomu á síð­asta ári eins og und­an­farin ár. Svo góð nið­ur­staða er ekki sjálf­gefin við núver­andi aðstæður heldur afrakstur mik­illar sam­vinnu starfs­manna Samherja sem og sam­starfs­að­ila víðs­vegar um heim­inn. Við gleðj­umst að sjálf­sögðu yfir því,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

FréttirFiskveiðar

Félag í eigu Samherja og sam­starfs­að­ila skuldar rík­is­sjóði Namibíu jafn­virði 1600 millj­óna króna

Fjöl­mið­ill­inn Confidénte greinir frá því að ArcticNam Fishing, útgerð sem Samherji á hlut í gegnum Esju Fishing, standi í skatta­skuld upp á 200 millj­ónir namib­íu­doll­ara. Enn deila hlut­hafar um skatt­greiðslur en rík­is­skatt­stjóri Namibíu rann­sakar bók­halds­brellur fjól­þjóða­fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár