Hafa áhyggjur af svigrúmi Evu Joly til að tjá „öfgaskoðanir“

Urgur í sjálf­stæð­is­mönnum vegna við­tals við Evu Joly og frétta­flutn­ings Kast­ljóss af nýjum upp­lýs­ingum um sím­tal Davíðs og Geirs.

Hafa áhyggjur af svigrúmi Evu Joly til að tjá „öfgaskoðanir“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, odd­viti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, hefur áhyggjur af því að Eva Joly, rann­sókn­ar­dóm­ari í Frakk­landi til 20 ára og bar­áttu­kona gegn spill­ingu, fái of mikið svig­rúm til að tjá „öfga­skoð­anir“. 

Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Guðlaugi þar sem hann gerir orð Við­skipta­blaðs­ins um Pírata og Evu Joly að sínum. Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum hefur Eva Joly lýst yfir stuðn­ingi við Pírata. Urgur er í sjálf­stæð­is­mönnum, bæði vegna frétta­flutn­ings Kast­ljóss af upp­lýs­ingum um sím­tal Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde sem ekki höfðu áður komið fram og vegna við­tals sem tekið var við Evu Joly fyrr í vik­unni.

Í grein Við­skipta­blaðs­ins sem Guð­laugur Þór deilir er ýjað að því að fjár­hags­legir hags­munir búi að baki bar­áttu Evu Joly gegn spill­ingu. Fram kemur að hún og Píratar nær­ist á að „halda því fram nógu oft og nógu mikið að allir hinir séu spilltir. Þannig halda þau lífi í stjórn­mála­skoð­unum sínum og eftir til­vikum hafa þau af því fjár­hags­legan ávinn­ing (eins og í til­felli Joly). Og hér á landi hentar það vel að skjóta fast á núver­andi stjórn­ar­flokka“. Guð­laugur gerir þessi orð að sínum.

Þing­mað­ur­inn hefur sjálfur marg­sinnis verið sak­aður um spill­ingu. Hann var stjórn­ar­for­maður Orku­veitu Reykja­víkur þegar REI-málið svo­kall­aða komst í hámæli haustið 2007 en nokkru áður hafði hann aflað Sjálf­stæð­is­flokknum 55 millj­óna króna styrkjum frá FL Group og Lands­bank­anum. Þá var greint frá því að Guð­laugur hefði þegið mun hærri styrki frá fyr­ir­tækjum en aðrir fram­bjóð­endur vegna þing­kosn­ing­anna 2007.

Sumarið 2010 ályktaði lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins að Guð­laugur Þór ætti að segja af sér vegna hinna háu styrkja frá einka­fyr­ir­tækjum. Hann hlýddi ekki kall­inu heldur sat áfram á þingi. Guð­laugur Þór lenti í öðru sæti í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík þann 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hlaut 720 atkvæði Haft var eftir honum í við­tali við RÚV að hann vildi verða ráð­herra í næstu rík­is­stjórn. 

„Hvað næst ISIS?“

Guð­laugur Þór er ekki sá fyrsti sem sakar Evu Joly um öfgar. Þegar Kastljós tók við­tal við hana í fyrra tjáði Tryggvi Þór Her­berts­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sig á Facebook. „Af hverju er Kastljós að ýta undir öfga­skoð­anir? Hvað næst ISIS?“ skrif­aði hann. 

Eva Joly starf­aði sem rann­sókn­ar­dóm­ari í Frakk­landi um ára­bil en hefur verið full­trúi franskra græn­ingja á Evrópuþing­inu frá árinu 2009. Nú situr hún í svo­kall­aðri Panama­skjala­nefnd sem tók nýlega til starfa.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði lítið úr Evu Joly í sjón­varps­um­ræðum á Stöð 2 á dög­unum þegar Jón Þór Ólafsson, fram­bjóð­andi Pírata, sagði hana til­búna að aðstoða Íslend­inga við að upp­ræta spill­ingu. „Þetta er konan sem fékk 1 pró­sent í Frakk­landi,“ sagði þá Bjarni og vís­aði til ósig­urs hennar í for­seta­kosn­ing­unum í Frakk­landi árið 2012 þegar hún bauð sig fram sem for­seta­efni Evr­ópu­græn­ingja þar í landi. 

„Hvað gengur fjöl­miðla­mönnum til með umfjöllun rétt fyrir kosn­ingar um löngu liðna atburði sem búið er að rann­saka fram og til baka? Þeir eru farnir að hegða sé eins og helstu skíta­dreifarar sam­fé­lags­miðl­anna með dylgjur um svik og óheið­ar­leika póli­tískra and­stæð­inga sinna. Þeir Illugi og Gunnar Smári eru engu betri en vinur þeirra Donald Trump,“ skrifar Brynjar Níelsson, þing­maður og þing­fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Facebook.

Þá kallar hann Rík­is­út­varpið stjórn­mála­hreyf­ingu: „Skemmti­leg þessi nýja stjórn­mála­hreyf­ing i Efsta­leit­inu. Kom á fram­færi við okkur boð­skap gam­als vinstri rót­tæk­lings, sem fékk rúm­lega 1% fylgi í frönsku for­seta­kosn­ing­unum, um að kjósa ekki núver­andi stjórn­ar­flokka. Síðan taldi nýja stjórn­mála­hreyf­ingin rétt að koma á fram­færi við okkur eld­gömlum upp­lýs­ingum úr Seðla­bank­anum ef við skyldum gleyma hverjir bæru nú ábyrgð á fjár­málakreppu heims­ins.“ 

Í umfjöllun Kast­ljóss í síð­ustu viku var greint frá vitna­skýrslu sem hefur að geyma nýjar vís­bend­ingar um að Davíð og Geir hafi vitað fyr­ir­fram að 77,5 millj­arða lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings myndi ekki fást end­ur­greitt. Sem kunn­ugt er tap­aði rík­is­sjóður um 35 millj­örðum á lán­inu. Þá var einnig greint frá því í Kast­ljósi að Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands, hefði geng­ist við því að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína um aðgerðir Seðla­bank­ans í aðdrag­anda setn­ingar neyð­ar­lag­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár