Hærra veiðigjald á stærstu útgerðirnar gæti skilað ríkissjóði tveimur milljörðum til viðbótar

Álag á veiði­gjald stærstu kvóta­hafa myndi auka veru­lega hlut rík­is­ins í arð­inum af auð­lind­inni.

Hærra veiðigjald á stærstu útgerðirnar gæti skilað ríkissjóði tveimur milljörðum til viðbótar

Ætla má að 50 pró­senta hækkun á veiði­gjöldum þeirra útgerða sem hafa yfir meira en 4 þús­und þorskígildistonnum að ráða gæti skilað rík­is­sjóði um tveimur millj­örðum til við­bótar við þær tekjur sem nú er aflað miðað við fisk­veiði­árið 2016/2017.

Þetta kemur fram í svari Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Oddný spurði hverjar tekjur rík­is­sjóðs yrðu ef sett yrði stærð­ar­á­lag á veiði­gjald eins og það er sam­kvæmt gild­andi lögum og það hækkað um 50% frá og með 4.000 tonnum þorskígildis. Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að veiði­gjald á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári sé áætlað um 6,1 millj­arður en 5,1 að frá­dregnum frí­tekju­af­slætti og skulda­af­slætti. Álagn­ingin sem Oddný nefnir myndi leggj­ast á um 22 fyr­ir­tæki af þeim rúm­lega 1000 sem nú greiða veiði­gjald. 

„Áætlað álagt veiði­gjald á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári er eins og áður sagði um 6.100 millj. kr. brúttó. Ef 75% af því …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fiskveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár