Hælisleitandi í hungurverkfalli hefur verið sendur úr landi

Afganskur flótta­maður, Abdol­hamid Rahmani, var í gær sendur úr landi til Grikk­lands. Þegar hann frétti af brott­vís­un­inni, þann 27. febr­úar, fór hann í hung­ur­verk­fall til að mót­mæla stöðu sinni. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að hann sé enn í hung­ur­verk­falli. Hann er nú á kom­inn til Grikk­lands þar sem hann seg­ist ótt­ast um líf sitt.

Hælisleitandi í hungurverkfalli hefur verið sendur úr landi
Abdol­hamid Rahmani Gisti í fanga­klefa áður en hann var sendur til Grikk­lands í morgun.

Afganski hæl­is­leit­and­inn, Abdol­hamid Rahmani, hefur verið sendur úr landi til Grikk­lands. Stundin greindi frá því á fimmtu­dag­inn að Abdol­hamid Rahmani væri á átj­ánda degi hung­ur­verk­falls og herma heim­ildir Stund­ar­innar að hann sé nú á tuttug­asta og þriðja degi.

Í fyrra­kvöld sótti lög­reglan Abdol­hamid á heim­ili sitt og færði hann í fanga­klefa lög­reglu þar sem hann gisti um nótt­ina. Í gær­morgun var hann sendur úr landi. Þetta stað­festir lög­fræð­ingur Abdol­hamid. 

Gisti í fangaklefa

Vinur Abdol­hamid segir að lög­reglan hafi komið um kvöldið án þess að gera boð á undan sér. „Allt í einu voru þrír lög­reglu­þjónar komnir inn á heim­ilið. Þeir virt­ust ekki vita hvar Abdol­hamid væri svo þeir bönk­uðu á svefn­her­bergin í hús­inu þangað til þeir fundu hann,“ segir vinur Abdol­hamid sem býr í félags­legu hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur á vegum Reykja­vík­ur­borgar. 

„Þegar hann var sendur burt var hann enn í hung­ur­verk­falli.“

Her­berg­is­fé­lag­inn vill ekki koma fram undir nafni því hann ótt­ast að það gæti haft áhrif á umsókn sína um hæli á Íslandi. Í sam­tali við Stundina segir hann atburða­rás­ina hafa verið afar átak­an­lega: „Lög­reglu­þjón­arnir biðu meðan Abdol­hamid pakk­aði öllu dót­inu sínu niður í tösku og tóku hann svo á brott með sér. Ég var í sam­skiptum við þá því Abdol­hamid talar hvorki ensku né íslensku. Ég bað þá um að gefa honum smá tíma til að hringja í vini sína en þeir neit­uðu - sögð­ust geta gert það niðri á stöð. Við höfum verið í litlu sam­bandi við hann síðan, en í gær­morgun um klukkan sex sendi hann mér sms-skila­boð. Hann sagð­ist hafa gist í fanga­klefa og væri á Kefla­vík­ur­flug­velli þar sem hann myndi brátt fara um borð í vél til Grikk­lands. Þegar hann var sendur burt var hann enn í hung­ur­verk­falli,“ segir her­berg­is­fé­lagi Abdol­hamid í sam­tali við Stundina.

Lög um útlend­inga sem tóku gildi 1. jan­úar 2017 veita lög­regl­unni rúma heim­ild um verk­lag þegar hæl­is­leit­endur eru sendir úr landi. Ef grunur liggur á að við­kom­andi muni reyna að forð­ast brott­vísun er því heim­ilt að láta hæl­is­leit­anda gista í fanga­klefa lög­reglu. 

Hungurverkfall
Hung­ur­verk­fall Hefur verið í hung­ur­verk­falli síðan 27. febr­úar.

Vildi byggja sér upp líf

Abdol­hamid sagði í sam­tali við Stundina í sein­ustu viku að hung­ur­verk­fallið væri hans eina leið til að mót­mæla stöðu sinni. „Ég fór frá Grikk­landi því ég var hræddur um líf mitt. Bróðir minn var myrtur í Tyrk­landi í jan­úar af óvinum fjöl­skyld­unnar og ég var hræddur um að það sama myndi ger­ast fyrir mig, og muni ger­ast ef ég verð sendur aftur til Grikk­lands,“ sagði Abdol­hamid.

Abdol­hamid sótti um hæli við kom­una til lands­ins. Hann fékk synjun frá Útlend­inga­stofnun á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur stað­fest þá synjun. Þá leit­aði hann til lög­manns sem sótti um frestun rétt­ar­á­hrifa á meðan málið færi fyrir dóm­stóla hér á landi en þeirri beiðni var einnig synjað. „Áður en ég fékk þessa þriðju synjun virt­ist lífið vera á upp­leið,“ segir Abdol­hamid, sem er múr­ari og vildi byggja sér upp líf hér og fara að vinna.

Vinir Abdol­hamid Rahmani hafa ekk­ert heyrt frá honum síðan klukkan sex í gær­morgun en hvorki þeir, né hann, vita nokkuð um hver fram­tíð hans verður.

1.130 manns sóttu um vernd á Íslandi í fyrra, eða þrefalt fleiri en árið 2015. 313 manns voru flutt úr landi með lög­reglu­fylgd á árinu, sam­kvæmt tölum Útlend­inga­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár