„Gera ráð fyrir að sjúkrahúsin á landinu skeri niður um tæpa 5,2 milljarða“

María Heim­is­dóttir, fjár­mála­stjóri Land­spít­al­ans, rýndi í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar á árs­fundi spít­al­ans og for­stjór­inn sagð­ist gátt­aður á stjórn­völdum fyrir að neita að horfast í augu við „blá­kaldar stað­reyndir“ um rekstur heil­brigð­is­kerf­is­ins.

„Gera ráð fyrir að sjúkrahúsin á landinu skeri niður um tæpa 5,2 milljarða“

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar þurfa sjúkra­hús á Íslandi að skera niður í rekstri um tæpa 5,2 millj­arða á næstu fimm árum til að skapa svig­rúm til nýrra verk­efna. Þetta kom fram í ræðu Maríu Heim­is­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs Land­spít­al­ans, á árs­fundi spít­al­ans í gær. Hún sagð­ist vona að stjórn­völd hefðu ein­fald­lega rugl­ast þegar unnið var að fjár­mála­á­ætl­un­inni og benti á að í umfjöllun áætl­un­ar­innar um heil­brigðis­út­gjöld á Norð­ur­lönd­unum væri miðað við allt aðrar tölur en almennt tíðkast í slíkum sam­an­burði. Í ljósi lof­orða sem gefin hefðu verið um efl­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins mætti draga þá ályktun að hið und­ar­lega val á við­mið­un­ar­tölum hefði ein­fald­lega truflað vinnslu áætl­un­ar­innar. 

„Tillaga stjórn­valda virð­ist því gera ráð fyrir að sjúkra­húsin á land­inu skeri niður um tæpa 5,2 millj­arða á tíma­bil­inu til að skapa svig­rúm fyrir það sem kallað er aukin fram­lög til nýrra verk­efna,“ sagði María eftir að hafa rakið hvernig útgjald­ara­mmi fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar virð­ist fela í sér kröfu um mikla hag­ræð­ingu í rekstri sjúkra­húsa lands­ins næstu árin. 

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, flutti ávarp á árs­fund­inum og gagn­rýndi stefnu stjórn­valda á sviði heil­brigð­is­mála. „Ég vil vera alveg heið­ar­legur við ykkur og segi því að ég eig­in­lega skil bara ekk­ert í þessu. Hvernig má það vera að vel mein­andi stjórn­völd neiti að horfa á blá­kaldar stað­reyndir sem við súmmerum upp með gagna­öflun og upp­lýs­inga­gjöf. Hvað erum við að gera vit­laust? Hvernig má þetta vera, þegar það gengur svona vel á Íslandi?“ sagði hann.

Í ræðu sinni benti María Heim­is­dóttir á að sam­kvæmt útgjald­ara­mma sjúkra­hús­þjón­ustu væri gert ráð fyrir heild­ar­aukn­ingu upp á tæpa 45 millj­arða á næstu fimm árum. „Ekki er mögu­legt að greina nema að litlu leyti hvaða hlutur fjár­fram­laga til sjúkra­hús­þjón­ustu er ætl­aður Land­spít­ala þannig að okkar grein­ing mið­ast við að Land­spít­ala séu ætluð öll við­bót­ar­fjár­fram­lög nema annað sé sér­stak­lega tekið fram. Þessi grein­ing sýnir því eins jákvæða mynd af fjár­fram­lögum til Land­spít­ala og unnt er út frá til­lögu stjórn­valda,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár