Gagnrýna heilbrigðisráðherra fyrir að vilja skerða athafnafrelsi fólks án fullnægjandi raka

„Þetta plagg heil­brigð­is­ráð­herra virð­ist illa und­ir­búið og lítið hugsað,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, um rafrettu­frum­varp Óttars Proppé.

Gagnrýna heilbrigðisráðherra fyrir að vilja skerða athafnafrelsi fólks án fullnægjandi raka

Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýnir frum­varps­drög Óttars Proppé heil­brigð­is­ráð­herra um rafrettur og telur þau illa und­ir­búin og skorta rök­stuðn­ing. „Þetta plagg heil­brigð­is­ráð­herra virð­ist illa und­ir­búið og lítið hugsað. Það er ástæða til að vinna þetta mál mun betur og draga úr þeim inn­gripum í athafna- og atvinnu­frelsi sem fel­ast í frum­varps­drög­unum,“ er haft eftir Ólafi Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, í frétta­til­kynn­ingu.

Ólafur Steph­en­sen

Í umsögn sem félagið sendi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er bent á að engin grein­ar­gerð fylgi frum­varps­drög­unum og því sé engin leið að sjá hvaða greinar frum­varps­ins eigi rætur að rekja til Evr­óputil­skip­unar og hverjar ekki. Bent á að skiptar skiptar skoð­anir séu meðal lækna um raf­sí­gar­ettur og skað­semi eða skað­leysi þeirra. Því sé und­ar­legt að frum­varp­inu fylgi ekki mat ráðu­neyt­is­ins á rann­sóknum og álitum lækna­sam­fé­lags­ins.

„Telur FA að afstaða ráðu­neyt­is­ins verði að byggja á hald­bærum rökum þar sem vís­inda­leg gögn um raf­sí­gar­ettur og áhrif þeirra eru lögð til grund­vallar,“ segir í umsögn­inni. „Lýð­heilsurök eru fyrir því að notkun raf­sí­gar­ettna afstýri heilsutjóni, með því að reyk­inga­menn hætti að reykja og færi sig yfir í notkun þeirra í stað­inn. Jafn­framt eru rök fyrir því að það kunni hafa nei­kvæð áhrif á lýð­heilsu að ungt fólk sem byrjar að fikta við raf­sí­gar­ettur leið­ist síðar út í tóbaks­reyk­ingar. Ekkert hefur komið fram um það hvernig þessi rök voru vegin saman áður en ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu sem fram kemur í frum­varp­inu.“

Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýnir jafn­framt að lagt sé til án rök­stuðn­ings að sömu tak­mark­anir verði settar á notkun raf­sí­gar­etta og reyk­tó­baks og að óheim­ilt verði að nota þær á til­teknum stöðum. „Bann á til­tek­inni hátt­semi er við­ur­hluta­mikið inn­grip í athafna­frelsi manna sem verður að byggja á full­nægj­andi gögnum. Varla er ástæða til að banna notkun raf­sí­gar­etta í til­teknum rýmum nema sýnt sé fram á að hún valdi fólki í rým­inu sam­bæri­legum skaða og tóbaks­reyk­ingar. Þá má velta því upp hvaða rök standi til þess að hindra sýni­leika raf­sí­gar­etta og áfyll­ingar­í­láta í versl­unum, eins og lagt er til í 5. gr. frum­varps­ins, meðan t.d. nikótíntyggjó, sem gegnir sama hlut­verki þ.e. að aðstoða fólk við að hætta að reykja, er sýni­legt við­skipta­vinum. Hér líkt og í öðrum málum verður að gæta jafn­ræðis og með­al­hófs.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár