Funduðu strax með forstjóra Rio Tinto

Fjórum virkum dögum eftir að Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, réði fram­kvæmda­stjóra hjá Rio Tinto til átta ára sem aðstoð­ar­mann sinn fund­uðu þau með for­stjóra Rio Tinto á Íslandi.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, fund­aði með Rann­veigu Rist, for­stjóra Rio Tinto á Íslandi, á mánu­dag­inn. Fjórum virkum dögum áður hafði Þórdís ráðið Ólaf Teit Guðnason, fram­kvæmda­stjóra hjá Rio Tinto til átta ára, sem aðstoð­ar­mann sinn. 

„Það er eitt­hvað svo­lítið gott við að búa í landi þar sem mynd af fundi iðn­að­ar­ráð­herra og for­stjóra einnar stærstu verk­smiðju lands­ins lítur svona út,“ skrifar Ólafur Teitur á Facebook þar sem hann deilir mynd af Þórdísi, núver­andi yfir­manni sínum í iðn­að­ar­ráðu­neyt­inu, og Rann­veigu, fyrr­ver­andi yfir­manni sínum hjá Rio Tinto. 

Tilkynnt var um ráðn­ingu Ólafs Teits á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku, en hann hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs Rio Tinto frá árinu 2008. Sem aðstoð­ar­maður mun Ólafur vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neyt­is­is­ins í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra og undir yfir­stjórn Þórdísar Kol­brúnar.

Á meðal þeirra mála sem Þórdís Kolbrún fer með sam­kvæmt for­seta­úr­skurði eru íviln­anir vegna nýfjár­fest­inga, gerð fjár­fest­ing­ar­samn­inga við fyr­ir­tæki, fjár­fest­ingar erlendra aðila í atvinnu­rekstri, orku­mál og auð­linda­nýt­ing. Þá fer hún með önnur mál er lúta að iðn­aði, svo sem verk­smiðju­iðn­aði og stór­iðju. 

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straums­vík og er hluti af Rio Tinto Alcan, einum stærsta álf­ram­leið­anda í heimi. Verk­smiðju­heiti álvers­ins er ISAL og notar það  tæp­lega 3.000 gígawattstundir af raf­orku á ári, eða um 18% af þeirri raf­orku sem notuð er á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár