Framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar fullyrðir ranglega að Samfylkingin hafi greitt atkvæði með leiðréttingunni

Björt fram­tíð gefur vill­andi upp­lýs­ingar um afstöðu mis­mun­andi flokka til skulda­leið­rétt­ing­ar­innar. Fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Bjartrar fram­tíðar kvartar undan „heift­úð­ugri“ umræðu.

Framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar fullyrðir ranglega að Samfylkingin hafi greitt atkvæði með leiðréttingunni

Helga Sigrún Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins sem nú starfar sem fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Bjartrar fram­tíðar, full­yrðir á Facebook að þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafi greitt atkvæði með því að tugir millj­arða yrðu nýttir til að fjár­magna höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána á síð­asta kjör­tíma­bili. Hið rétta er að þing­menn flokks­ins greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu um skulda­leið­rétt­ing­una og sátu hjá þegar fjár­lög árs­ins 2014 voru afgreidd á Alþingi líkt og hefð er fyrir að stjórn­ar­and­staðan geri við afgreiðslu fjár­laga. 

„Það má spyrja sig hvers vegna t.d. Sam­fylk­ingin greiddi atkvæði með því að millj­arða­tugir væru nýttir með þessum hætti því frum­varpið um leið­rétt­ing­una þurfti stuðn­ing af fjár­laga­frum­varp­inu til að það yrði að veru­leika... En þetta veistu vinur minn,“ skrifar Helga á þræði hjá Loga Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Þá kvartar hún undan því að umræðan sé „heift­úðug“. 

Björt fram­tíð hefur haldið því á lofti á Facebook-síðu flokks­ins í dag að ein­ungis Björt fram­tíð hafi staðið „gegn því að 80 millj­arðar væru not­aðir til þess að leið­rétta skuldir þeirra sem áttu mest og þurftu minnst á því að halda“. Sem kunn­ugt er greiddu nær allir þing­menn Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata atkvæði gegn frum­varpi um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána árið 2014. Björt fram­tíð bendir hins vegar á að flokk­ur­inn hafi greitt atkvæði gegn breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þar sem veitt var heim­ild til að verja fjár­munum til nið­ur­greiðsl­unnar. 

Á Facebook-síðu flokks­ins er vísað til atkvæða­greiðslu um fjár­laga­frum­varp árs­ins 2014 sem sneri að 20 millj­arða fjár­heim­ild til nið­ur­greiðslu verð­tryggðra hús­næð­is­skulda það ár. Björt fram­tíð deilir hlekk á atkvæða­greiðsl­una og skrifar: „Minnum á hvaða flokkur stóð, einn flokka, gegn því að 80 millj­arðar væru not­aðir til þess að leið­rétta skuldir þeirra sem áttu mest og þurftu minnst á því að halda“ auk þess sem full­yrt er í athuga­semd fyrir neðan að Björt fram­tíð hafi greitt atkvæði gegn því að „umræddir fjár­munir“, þ.e. 80 millj­arðar, yrðu not­aðir til að greiða fyrir leið­rétt­ing­una. Hins vegar sner­ist atkvæða­greiðslan um 20 millj­arða fjár­heim­ild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár