Flökkusögur ganga enn um samfélagsmiðla: „Birna er ekki fundin“

Yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir ekk­ert hæft í þeim sögu­sögnum sem nú ganga um sam­fé­lags­miðla. Lög­reglan fann hass um borð í Polar Nanoq í nótt. Útgerðin hefur pantað áfalla­hjálp fyrir áhöfn­ina.

Flökkusögur ganga enn um samfélagsmiðla: „Birna er ekki fundin“
Leiddir fyrir dóm­ara Tveir skip­verjar af græn­lenska tog­ar­anum hafa verið úrskurð­aðir í tveggja vikna gæslu­varð­hald. Sá þriðji er enn í haldi lög­reglu og þarf hún að taka ákvörðun fyrir klukkan 20:00 hvort óskað sé eftir gæslu­varð­haldi yfir honum líka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Enginn sann­leikur er í þeim sögu­sögnum sem nú ganga um sam­fé­lags­miðla að björg­un­ar­sveitir hafi fundið Birnu Brjáns­dóttur og því sé leit lokið. Þetta stað­festir Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stund­inni hefur í dag borist fjöldi ábend­inga um að leit­ar­hópar á vegum björg­un­ar­sveit­anna hafi fundið Birnu uppi á Strand­ar­heiði.

Líkt og með aðrar upp­lýs­ingar sem Stund­inni ber­ast þá eru þær bornar undir lög­reglu. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ábend­ingar af þessum toga ber­ast Stund­inni en í fyrr­inótt bár­ust upp­lýs­ingar um stóra aðgerð lög­reglu við Hval­eyr­ar­vatn.

„Þetta er í raun sama saga og gekk um Hval­eyr­ar­vatn.“

„Þetta er í raun sama saga og gekk um Hval­eyr­ar­vatn. Ég er með tal­stöð sem er bein­tengd við alla leit­ar­hópa og Birna er ekki fundin,“ segir Grímur sem óskaði sér­stak­lega eftir tal­stöð­inni í kjöl­far allra þeirra flökku­sagna sem enn virð­ast ganga um sam­fé­lags­miðla.

Mikið magn af hassi um borð

Lög­reglan getur stað­fest að tveir hinna hand­teknu eru Græn­lend­ingar þar sem búið er skoða vega­bréf þeirra. Ekki er hægt að stað­festa þjóð­erni þess þriðja en beðið er eftir upp­lýs­ingum að utan. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er sá þriðji frá einnig frá Græn­landi.

Fjórði mað­ur­inn var síðan hand­tek­inn í nótt eftir að mikið magn af hassi fannst um borð í græn­lenska tog­ar­anum. Hann er enn í haldi lög­regl­unnar. Líkt og Stundin hefur áður greint frá þá var græn­lenski tog­ar­inn að koma frá Danmörku þegar hann lagð­ist að höfn í Hafn­ar­firði. Ekki er vitað á þess­ari stundu hvort hassið hafi verið keypt þar en það mun vera eitt af því sem lög­reglan nú skoðar.

Nú rétt í þessu kom frétta­til­kynn­ing frá útgerð græn­lenska tog­ar­ans, Polar Seafood:

Fréttatilkynning frá útgerð Polar Nanoq

Togarinn Polar Nanoq kom aftur til hafnar í Hafn­ar­firði um klukkan ell­efu í gær­kvöldi.

Þrír skip­verjar hafa verið hand­teknir og úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í tengslum við rann­sókn lög­reglu á hvarfi Birnu Brjáns­dóttur.

Í nótt leit­aði lög­regla í skip­inu og ræddi við aðra skip­verja. Enginn þeirra er grun­aður um aðild að hvarfi Birnu.

Lög­reglan rann­sakar að auki fund á umtals­verðu magni á hassi um borð í skip­inu. Einn skip­verji til við­bótar hefur verið hand­tek­inn í tengslum við rann­sókn lög­reglu á því máli. Togarinn heldur kyrru fyrir í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn á meðan lög­reglan lýkur rann­sókn sinni um borð.

Polar Seafood mun áfram aðstoða yfir­völd á Íslandi vegna mál­anna og vonar að þau upp­lýs­ist sem fyrst. Þá leggur fyr­ir­tækið sig fram um að koma upp­lýs­ingum til ætt­ingja skip­verja, auk þess sem unnið er að því að útvega áhöfn­inni áfalla­hjálp og leitað hefur verið aðstoðar hjá Rauða krossi Íslands. 

Spurn­ingum vegna rann­sókn­ar­innar er beint til íslensku lög­regl­unnar.

Jørgen Fossheim, útgerð­ar­stjóri hjá Polar Seafood

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár