Mynd: Heiða Helgadóttir

Fegurðin í sorginni

„Ég er ekki hrædd eða kvíðin lengur. Það skelfi­leg­asta sem ég hefði getað hugsað mér hefur gerst í mínu lífi. Og ekk­ert sem ég upp­lifi er verra en það sem Birna þurfti að þola,“ segir Sig­ur­laug Hreins­dóttir, sem finnur feg­urð­ina í sorg­inni, minn­ing­unni um dýr­mæt­ustu ár lífs­ins, árin með Birnu Brjáns­dóttur.

Það eru ell­efu mán­uðir síðan Birna fór og allt breytt­ist. 

Nú er sorgin og sökn­uð­ur­inn það fal­leg­asta af öllu, því þar býr teng­ingin við Birnu.  

„Það hefur ekki liðið ein mín­úta þar sem ég gleymi því að hún er farin. Mér líður aldrei eins og hún gæti hringt. Mig dreymir hana stundum á lífi, en ég veit alltaf þegar ég vakna að Birna er farin,“ segir Silla, mamma hennar. 

Þótt engin orð nái utan um miss­inn, og þótt svo ótal margt hafi glatað allri merk­ingu, þá er frelsandi að tala um sorg­ina og lífs­nauð­syn­legt að tala um Birnu. 

Látlaus, fyndin og hugmyndarík

Í stof­unni heima hjá Sig­ur­laugu Hreins­dóttur og Loga, stóra bróður Birnu, er veggur helg­aður henni. 

Stór fal­leg and­lits­mynd í miðj­unni, þar sem blá augu og brosið hennar fá að njóta sín. Allt um kring eru tugir smærri mynda. Engar tvær eru eins. Mörg and­lit Birnu, flest glað­leg en nokkur alvöru­gefin – og þetta er lýsandi fyrir karakt­er­inn. Birna átti sér margar hliðar og kom þeim sem þekktu hana stöðugt á óvart. 

Birna prakk­ariBirna var fjör­kálfur þegar hún var lítil og fékk oft fólk til að hlæja.

Hún var fjörug, hug­mynda­rík og full af lífs­gleði. Skemmti­legur sögu­maður, ögrandi og kom með hnyttin til­svör. Hisp­urs­laus, með kald­hæðn­is­legan húmor. „Hún var brjál­æð­is­lega skemmti­leg og fékk mig svo oft til að hlæja. Rosa­legur fjör­kálfur þegar hún var krakki, en rólegri eftir því sem hún varð eldri,“ segir Silla.

„Birna var alltaf mjög ákveðin í því hvernig hún vildi hafa hlut­ina. Þegar henni datt eitt­hvað í hug, þá tal­aði hún ekk­ert um það fyrr en hún var allt í einu búin að hrinda því í fram­kvæmd. „Ég er græn­metisæta,“ sagði hún einn dag­inn. Það var svo oft sem hún gerði eitt­hvað svona. „Ég ætla að fá mér gat í nafl­ann,“ sagði hún einu sinni þegar hún var í ung­linga­deild.

Seinna fékk hún sér tattú. Vinur hennar teikn­aði myndir og hún valdi teikn­ing­una sem var minnst unnin. Það er lýsandi fyrir smekk­inn hennar. Hún var ekki gefin fyrir íburð heldur vildi hafa hlut­ina ein­falda. Svona var þetta líka til dæmis þegar við vorum að elda mat. Ef ég var kannski að bisa við með­læti sagði Birna: „Mamma, höfum þetta bara ein­falt.““ 

Þegar Birna tók ákvarð­anir kom alltaf í ljós að hún hafði ígrundað þær vel. „Það gat eng­inn fengið hana ofan af því að verða græn­metisæta. Hún hafði kynnt sér málin og und­ir­búið sig vel. Svo sökkti hún sér ofan í heim­spek­ina á bak við það að vera græn­metisæta. 

Hún var for­vitin um alla skap­aða hluti. Ég man til dæmis þegar ég fór með hana til læknis þegar hún var 12 eða 13 ára og hún lenti í hróka­sam­ræðum við hann, vildi fá að sjá og skilja nið­ur­stöður úr blóðprufum. Ég skildi ekki alveg hvað henni fannst svona spenn­andi við þetta, en hún sýndi ótrú­leg­ustu hlutum mik­inn áhuga.“ 

Stóð með vinum sínum – og Dreka

Þegar fjöl­skyldan fór í ferða­lög sat Logi yfir­leitt fram í með vega­hand­bók­ina og spjall­aði við mömmu sína. Birna kunni betur við sig í aft­ur­sæt­inu með iPod og bók. 

„Ef við við vildum sýna henni eitt­hvað bað hún okkur bara um að hætta að trufla sig,“ segir Silla og hlær. „Þegar við stopp­uðum kom fyrir að hún sæti í klukku­tíma í við­bót úti í bíl og kláraði bók­ina.“ 

Þótt Birna væri borg­ar­barn og sýndi örnefnum og fjöllum engan sér­stakan áhuga þótti henni vænt um dýr. Þess vegna gerð­ist hún græn­metisæta. Og þess vegna gekk hún fast á eftir því að fá kött. Þegar mamma hennar lét það loks­ins eftir henni reynd­ist hann versta óarga­dýr. En þetta var kött­ur­inn hennar Birnu og hún stóð með honum sama hvað bját­aði á. 

Birna nefndi hann Dreka, Hún tók upp hansk­ann fyrir hann þegar hann réðst á vini hennar og vin­konur. Og þegar Brjánn Guð­jóns­son, faðir Birnu, var ósáttur við að Dreki réð­ist á gest­ina sagði hún: „Pabbi, þú verður bara að koma betur fram við hann.“

Dýra­vinurBirnu þótti vænt um dýr. Einn dag­inn til­kynnti hún fyr­ir­vara­laust að hún væri orðin græn­metisæta.

Hún stóð líka með vinum sínum og vin­konum þegar þau þurftu hjálp. Hún studdi kött­inn skil­yrðis- og gagn­rýn­is­laust, en vin­konur hennar gátu hins vegar treyst því að Birna væri krítísk og hrein­skiptin, segði hug sinn ef henni þætti þær vera á villi­götum. 

„Hún var góð vin­kona og alltaf svo trygg. Og það sem ég heyri frá vinum hennar og vin­konum núna, sem ég vissi ekki áður, er að Birna var sú í hópnum sem þau treystu best og fannst þægi­leg­ast að leita til þegar eitt­hvað var að. Hún stóð með þeim en sagði þeim líka ef henni fannst þau ósann­gjörn og svo fram­vegis.“

Laus við alla tilgerð

Birna var lífs­glöð en um leið yfir­veguð. „Það var fátt sem kom henni úr jafn­vægi. Hún var laus við alla til­gerð og aldrei neitt að remb­ast við að vera vin­sæl eða þókn­ast fólki. Hún nennti ekki að reyna að vera ein­hver önnur en hún var. Og þótt hún væri eld­klár fal­að­ist hún aldrei eftir athygli út á það eða sér­stakri við­ur­kenn­ingu. Þegar hún gerði eitt­hvað sem öðrum fannst æðis­legt vildi hún sem minnst tala um það.“  

MoliHér er Birna nýbyrjuð að kynn­ast heim­inum.

Það var alltaf nota­legt í kringum Birnu. Hún gat dundað sér tímunum saman í sóf­anum heima í stofu; púslað, lesið, gert súd­ókú, spjallað við vini sína eða bróður sinn. 

„Hún átti mjög auð­velt með að vera ein og var sjálfri sér nóg. Hún lagði mikið upp úr því að hafa það gott og kenndi mér þetta dálítið. Hún hellti sér aldrei bein­línis út í hug­leiðslu eða jóga, en hún til­eink­aði sér samt að ein­hverju leyti hugs­un­ar­hátt­inn. Hún var nægju­söm og kunni best við ein­faldan og ódýran lífs­stíl frekar en að vera stöðugt á hött­unum eftir ver­ald­legum gæðum. Ég man til dæmis þegar ég nefndi ein­hvern tím­ann hvort hún vildi kannski vinna meira og safna sér pen­ingum. Þá sagð­ist hún bara eiga alveg nógu mik­inn pen­ing. „Ég þarf tíma, við þurfum tíma,“ sagði hún.“ 

Einu sinni, skömmu eftir að Birna útskrif­að­ist úr grunn­skóla, vant­aði þær mæðgurnar báðar sum­ar­vinnu. Silla, sem er kenn­ari, fékk Birnu með sér í það verk­efni að halda sum­ar­nám­skeið fyrir börn og ung­linga í heim­speki­legri sam­ræðu. 

„Það var ofboðs­lega gaman að gera þetta með henni og við gerðum þetta aftur sum­arið á eftir. Birna tók þessu mjög alvar­lega, hún var ábyrg og hugs­aði fyrir und­ir­bún­ingnum. Henni fannst auð­vitað sjálfri skemmti­legt að hugsa á svona heim­speki­legum nótum en svo náði hún líka ótrú­lega vel til krakk­anna, kom fram við þau sem jafn­ingja, lifði sig inn í þeirra hugð­ar­efni og hafði greini­lega svo gaman af þessu.“ 

Að vernda minninguna

Nú er minn­ingin um Birnu, virð­ing hennar og reisn, það mik­il­væg­asta af öllu. Sú minn­ing er svo miklu merki­legri og stærri heldur en harm­leik­ur­inn sem átti sér stað í jan­úar 2017. 

Þegar rétt­ar­höldin stóðu yfir í ágúst var graf­ískum lýs­ingum af atburð­inum slegið upp í fyr­ir­sagnir á stærstu fjöl­miðlum. Þetta var sárt fyrir Sillu og fleiri aðstand­endur sem voru á algjörum byrj­un­ar­reit í sorg­ar­ferl­inu. 

Skelfi­legar myndir voru sífellt dregnar upp; það var líkt og atburð­ur­inn væri gerður að ein­hvers konar sölu­vöru. Og þetta var ósann­gjarnt gagn­vart Birnu. Hún var svo fal­leg og góð, en allt í einu stöðugt tengd við eitt­hvað ljótt og vont.

„Sumar lýs­ingar eru þess eðlis að þær valda óbæri­legum sárs­auka, skapa hrylli­legar myndir í hug­skotum þeirra sem þjást mest, fjöl­skyld­unnar. Það er ósk okkar að fjöl­miðlar fari gæti­lega um leið og hugur þjóð­ar­innar er með fjöl­skyld­unni,“ sagði Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur í orð­send­ingu sem hann birti á Facebook að beiðni aðstand­enda. Í kjöl­farið greindi hann svo frá því í við­tali við DV að hann hefði aldrei séð jafn ónær­gæt­inn og graf­ískan frétta­flutn­ing af neinu hörm­ung­ar­máli.

Þegar þýskur rétt­ar­meina­fræð­ingur var kall­aður fyrir dóm­inn til að gefa skýrslu var ákveðið að láta skýrslu­tök­una fara fram fyrir luktum dyrum. Þetta var fyrst og fremst gert á þeim grund­velli að þarna kæmu fram við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar um Birnu, varpað yrði upp myndum af lík­inu auk þess sem fyrir lágu upp­lýs­ingar frá fag­fólki um þau áhrif sem ónær­gæt­inn frétta­flutn­ingur hafði á aðstand­endur. Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, gagn­rýndi ákvörðun dóm­ar­ans og gaf að sama skapi lítið fyrir gagn­rýni Vigfúsar Bjarna á efn­is­tök fjöl­miðla. 

„Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins tal­aði um mik­il­vægi þess að koma upp­lýs­ingum á fram­færi, birta sann­leik­ann. En þetta var ekki sann­leik­ur­inn heldur skepnan í sann­leik­anum,“ segir Silla. 

„Hitt er svo miklu stærri sann­leikur, að Birna átti fal­legt líf og var góð mann­eskja. Hún getur ekki svarað fyrir sig lengur og fær ekki tæki­færi til að gefa meira af sér, en ég mun standa vörð um hvað hún var ynd­is­leg. Hennar sann­leika.

Það sem gerð­ist var ljótt og opin­bert, og einmitt þess vegna finnst mér svo mik­il­vægt að tala um þetta. Tala um Birnu. Mér er ekki sama hvernig það er gert. Hún var ekk­ert nema ljós og ég vil að ljósið skíni sem skær­ast.“ 

Vildi trúa að hún væri á lífi

Hvarf Birnu Brjáns­dóttur í jan­úar fór ekki fram­hjá neinum. Sam­fé­lags­miðlar log­uðu; hvar­vetna blöstu við fréttir af leit­inni, vís­bend­ing­unum og rann­sókn lög­reglu – allt því sem næst í beinni útsend­ingu.

„Stuðn­ingur almenn­ings var ómet­an­legur. Ekki síst þetta, að þegar Birna kom ekki heim um nótt­ina og ég vissi að eitt­hvað var að, þá trúði almenn­ingur mér frá fyrstu mín­útu. Það var ekk­ert hik. Almenn­ingur tók strax þátt í örvænt­ing­unni með mér. Þetta gaf mér gríð­ar­legan styrk og skipti líka miklu upp á að ýta leit­inni af stað,“ segir Silla og bendir á að það voru ókunn­ugar konur sem stofn­uðu Facebook-síð­una Leitin að Birnu Brjáns­dóttur áður en form­leg og skipu­leg leit fór af stað. 

Allan þann tíma sem leitin stóð yfir vildi Silla trúa því að Birna myndi finn­ast á lífi. 

„Ég leyfði aldrei til­hugs­un­inni um hitt að taka yfir. Ég hugs­aði alltaf: Ég fæ Birnu aftur, annað var ekki hægt. Ég var líka viss um að ef hún væri farin, þá myndi ég finna það inni í mér; að það myndi eitt­hvað ger­ast í lík­am­anum. En það gerð­ist ekki. 

Þegar hún fannst, þá fannst mér þetta svo skrítið. Það hélt bara allt áfram. Hjartað hélt áfram að slá, ég gat gengið og hugsað og talað og gert það sem þurfti. En mér fannst eins og það ætti ekki að vera þannig. Af því Birna mín var farin.“

„Það hélt bara allt áfram. Hjartað hélt áfram að slá, ég gat gengið og hugsað og talað og gert það sem þurfti. En mér fannst eins og það ætti ekki að vera þannig. Af því Birna mín var farin“

Sam­hug­ur­inn var mik­ill. Hópur kvenna tók sig saman meðan leitin stóð yfir, að frum­kvæði vin­konu Sillu, og skipt­ust á að færa fjöl­skyld­unni til­bú­inn mat á hverjum degi í fjórar vikur til að létta undir með þeim. „Þetta var góður og mik­il­vægur stuðn­ingur, svo ekki sé minnst á stuðn­ing Vigfúsar Bjarna. Á seinni stigum var líka Björn Harð­ar­son sál­fræð­ing­ur­inn minn, og hans stuðn­ingur, ómet­an­legur. Svo á ég stóra fjöl­skyldu sem var með mér í þessu. Þrjú systk­ini mín fluttu til mín frá því leit hófst og fram yfir útför.“ 

Vinkonur Sillu stóðu fyrir bæna­stund í Hall­gríms­kirkju meðan á leit­inni stóð, og eftir lík­fund­inn við Sel­vogs­vita sunnu­dag­inn 22. jan­úar söfn­uð­ust þús­undir saman í miðbæ Reykja­víkur og minnt­ust Birnu. „Þegar maður missir barnið sitt þá er þakk­læti manni ekki efst í huga. Ég var bara upp­tekin af Birnu og að ég hefði misst hana. En eftir á að hyggja, þá var þetta allt svo fal­legt og mik­il­vægt og tók athygl­ina af ljót­leik­anum. Ég lagði mig líka fram um að hafa þetta eins fal­legt og ég gat fyrir minn­ingu Birnu, og það tóku margir þátt í því, bæði nán­ustu aðstand­endur og fólk sem bauð fram fram­lag sitt og gaf, sem var hlýtt og gott.“

Vigfús Bjarni sagði við mig þegar ég fékk frétt­irnar um að hún væri farin að nú þyrfti að halda minn­ingu hennar á lofti, og það hefur verið mér leið­ar­ljós. Stuðn­ing­ur­inn og feg­urðin dró lík­lega úr áfall­inu fyrir mig og gerði það bæri­legra.“

Áreiti og hömluleysi

En sú gríð­ar­lega athygli sem málið fékk átti sér líka óþægi­legar hliðar. Dæmi voru um að ókunn­ugt fólk teldi sig hafa sér­stöku hlut­verki að gegna gagn­vart Birnu og móður hennar þrátt fyrir að hafa ekki þekkt þær. Fólk hafði sam­band og bað um að fá að koma heim til Sillu og faðma hana. Aðrir vildu endi­lega taka myndir af henni með gjafir frá sér, og enn aðrir bönk­uðu upp á til að vita hvar Birna yrði jarð­sett. 

Margt var fal­lega hugsað en óþægi­legt. Annað bar keim af sjálf­hverfu. Silla var varn­ar­laus gagn­vart mann­eskjum sem stukku á hana og vildu nær­ast á sorg­inni. Á tíma­bili var áreitið svo mikið að hennar nán­asta fólk var farið að velta því upp, í gamni en þó með alvar­legum und­ir­tón, að ef til vill þyrfti að útvega henni líf­vörð. 

„Þegar fólk sem þekkti ekki Birnu hefur þörf fyrir að lýsa til­finn­ingum sínum og sinni upp­lifun við mig, hvað það sé sorg­mætt yfir frá­falli Birnu, þá finnst mér erfitt að setja mig í spor þess og hugsa um Birnu eins og ef hún væri mér ókunnug. Ég vil ekki fjar­lægj­ast hana þannig. Og þegar fólk hefur þörf fyrir að útskýra fyrir mér hvernig lík hegðar sér í vatni eða seg­ist hafa „gengið með Birnu“ með mér, eða segir við mig að það sé ánægt að hafa ekki þekkt hana því ann­ars myndi það upp­lifa enn meiri sorg … ég er oft lengi að jafna mig eftir svo­leiðis athuga­semdir sem fjar­lægja mig því að vera móðir hennar.“ 

Silla fékk ógrynni af skila­boðum og sím­tölum. Lang­flest voru styðj­andi og hjálp­leg, sprottin af sam­kennd, en annað var óþægi­legt. Og þrátt fyrir að fjöl­miðlar hafi gegnt mik­il­vægu hlut­verki í leit­inni þá fór ein­staka fjöl­miðla­fólk yfir strikið.

„Tveimur dögum eftir að hún hvarf var ég beðin um að koma í panel í Íslandi í dag og spjalla um „áhrif sam­fé­lags­miðla“, sem ég skildi ekki af því þá var ég bara að leita að dóttur minni. Þegar skórnir hennar Birnu fund­ust hringdi blaða­maður í mig og þrá­spurði um þetta. Ég var nýbúin að sjá þetta á Facebook, var í upp­námi og hágrét, sagði honum að ég vildi ekki tala um þetta – en hann hélt áfram og hringdi svo beint í Brján. 

Daginn fyrir útför dóttur minnar hringdi svo í mig blaða­maður og vildi fá upp­lýs­ingar um útför­ina og hvort hún væri opin öllum. Í lok sam­tals­ins spurði hann hvað mér þætti um að annar Græn­lend­ing­ur­inn sem var í haldi hefði verið lát­inn laus. Ég hafði ekk­ert fylgst með fréttum og var ekki að hugsa um þetta. Þetta kom mér úr jafn­vægi. En allan þennan tíma vildi ég aðeins hugsa um Birnu og eftir að hún fannst vil ég halda minn­ingu hennar á lofti, ekk­ert annað.“

Firringin erfið

Ein­hverjir hafa viljað draga upp þá mynd af atburðum jan­ú­ar­mán­aðar að frá­fall Birnu, leitin að henni og sam­hugur lands­manna hafi sam­einað þjóð­ina og þannig þjónað ein­hverjum æðri til­gangi. En Silla sér ekk­ert róm­an­tískt eða fal­legt við það sem gerð­ist. 

„Ég kann illa við svona tal, um að það hafi verið ein­hver sér­stakur til­gangur með þessu. Þá er látið eins og barn­inu mínu hafi verið fórnað, en þannig var það ekki. Þetta voru ein­fald­lega skelfi­leg örlög. 

Ég missti barnið mitt á ömur­leg­asta hátt sem hægt er að hugsa sér. Ég vildi óska að hún hefði ekki þurft að fara í hatri. Ég vildi óska að hún hefði ekki þurft að vera ein, að ég hefði getað verið hjá henni. Þetta átti aldrei að ger­ast; hennar and­lát var gjör­sam­lega til­gangs­laust og það verður aldrei hægt að finna nokkurn til­gang með því að ein­hver hafi meitt hana svona mikið. Hitt hefði þjónað raun­veru­legum til­gangi, ef hún hefði fengið að lifa áfram. 

Við megum ekki gefa ljót­leik­anum til­gang. Vigfús Bjarni segir að það sé ekki til­gangur með þján­ing­unni, en að það sé til­gangur með úrvinnsl­unni. Og það er líka ótíma­bært að setja atburð­inn í eitt­hvert sögu­legt eða fræði­legt sam­hengi. Þarna var raun­veru­leg mann­eskja að missa lífið – þetta var ekki bíó­mynd. Þetta var ekki eitt­hvert áhuga­vert fyr­ir­bæri, spenn­andi rann­sókn­ar­efni eða „heitt frétta­mál“ eins og for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins orð­aði það, heldur skelfi­legur harm­leikur. Barnið mitt dó á versta hátt sem hægt er að ímynda sér.“

Þetta er einmitt það sem Sillu fannst einna óþægi­leg­ast við athygl­ina og það hvað atburð­ur­inn var opin­ber. Firr­ingin. Aftur og aftur er atburð­ur­inn – örlög Birnu – settur í sam­hengi sem gerir hann fjar­lægan. 

Birna bað aldrei um athygli

Og kannski er verst þegar aðrir ótengdir harm­leikir eru bornir sér­stak­lega saman við mál Birnu. Nýlegt dæmi er þegar kvartað var undan því að maður sem féll frá á voveif­legan hátt hefði ekki fengið jafn mikla athygli og Birna.

„Öll athyglin í jan­úar staf­aði af því að Birna var týnd, og það þurfti sam­heldni og orku til að finna hana. Það er ekki hægt að bera saman skelfi­lega atburði eða benda á skelfi­legan atburð og óska sér ein­hvers sem til­heyrði honum. Það verður að ríkja virð­ing þegar harm­leikur á sér stað. Annað er lág­kúra. 

Ég get ekki sætt mig við að talað sé um Birnu eins og hún hafi fengið eitt­hvað sem hún átti ekki skilið. Ég var ekki að biðja um fjár­söfnun, ég bað bara um að dóttir mín myndi finn­ast. Og Birna bað aldrei um athygli, hún var bara hrifsuð burt og gat engu um það breytt. 

Það þarf ekki að taka reisn og virð­ingu af dóttur minni til að und­ir­strika mál­stað og spila inn á sam­visku­bit fólks. Það er ekki sann­gjarnt.“

Lífið og dauðinn

„Eitt það fyrsta sem Logi sagði við mig eftir að við vissum að hún var farin var: „Það er gott að Birna þarf aldrei að upp­lifa svona mikla sorg.“ Hann hugsar svo fal­lega. Maður fer ósjálfrátt að reyna að hugsa eitt­hvað fal­legt þegar maður fær svona ömur­legar fréttir. 

Seinna þegar við vorum að tala um dauð­ann, þá sagði hann: „Lífið er engu merki­legra en dauð­inn. Maður fæð­ist bara og hefur ekk­ert um það að segja, er bara hérna, og svo er maður bara allt í einu horf­inn.“

Þau áttu ótrú­lega fal­legt sam­band, Logi og Birna, og voru mjög náin. Það gekk auð­vitað á ýmsu þegar þau voru lítil, en þegar þau urðu eldri urðu þau svo ofboðs­lega góðir vinir. Þau gátu hlegið og talað saman enda­laust. Hann var algjör stóri bróðir og vildi allt fyrir hana gera. Og nú er ekk­ert jafn gott og að tala við hann um Birnu.

Ég gat ekki bjargað lífi hennar, það gat eng­inn, en ég get staðið vörð um minn­ingu hennar og mann­orð og það mun ég alltaf gera. Ég verð alltaf mamma Birnu. Maður hættir ekki að elska barnið sitt þótt það fari. Ég held áfram að lifa fyrir hana, rétt eins og ég lifi fyrir son minn.

Það krefst líka vinnu að gera sorg­ina fal­lega. Hún er þarna því ég missti eitt­hvað fal­legt og gott. Að tjá sig út frá því er ekki nið­ur­brjót­andi heldur frelsandi. Ég finn orku í að geta talað um sorg­ina þannig að Birna haldi reisn, að tala um þetta á mínum eigin for­sendum og á for­sendum hennar.“

Að standa með Birnu

Stundum er sorgin sam­ofin reið­inni, og reiðin bein­ist meðal ann­ars að Guði. 

„Guð gerir bara það sem honum sýn­ist. Ég bað til hans á hverju kvöldi. Ég bað fyrir börn­unum mínum, en samt leyfði hann þessu að ger­ast. Ég hef ekki getað beðið til hans síðan þetta gerð­ist. Þá hefur skipt mestu máli fyrir mig að standa með sjálfri mér í sorg­inni og standa þannig með Birnu. Þetta gefur mér jarð­teng­ingu og heldur mér heilli. 

Ég er ekki hrædd eða kvíðin lengur. Það skelfi­leg­asta sem ég hefði getað hugsað mér hefur gerst í mínu lífi. Og ekk­ert sem ég upp­lifi er verra en það sem Birna þurfti að þola.“ 

Sorg­ar­ferlið er rétt að byrja. Það er ekki einu sinni ár liðið síðan Birna fór, og Silla er enn bara smám saman að átta sig á því að hafa misst hana. 

„Hvernig gat þetta gerst og hvað þýðir þetta? Ég er enn að reyna að ná utan um þetta. Þetta er ennþá svo óraun­veru­legt. Það er ekk­ert eins og það var. Allt er breytt. 

Stundum er talað um mik­il­vægi þess að „halda áfram“. En maður heldur ekk­ert áfram, það heldur bara allt áfram, hvað sem manni finnst um það, og þá reynir maður bara að standa í lapp­irnar og mæta því.“

Jólin helguð Birnu

Birna bjó hjá pabba sínum síð­ustu tvö árin en var líka oft hjá mömmu sinni á Háa­leit­is­braut. 

„Hún var mikið hérna í stof­unni síð­ustu jól og enn meira jólin þar á undan, þá bjó hún hérna í tvo mán­uði af því þáver­andi kær­asti hennar frá Ameríku var hjá henni. María, vin­kona hennar, sem býr hérna rétt hjá, kom stundum í heim­sókn.

Svo var hún bara að hafa það næs eins og maður gerir á jól­unum. Hlusta á tón­list, sat hérna með risa­stórt púslu­spil, svona með 3000 púslum, dund­aði sér við þetta og var oft að malla mat með mér í eld­hús­inu.  

Dundaði sér um jólinBirna var mikið heima hjá mömmu sinni og bróður síð­ustu og þar­síð­ustu jól.

Við vorum svo fjögur saman hér á aðfanga­dag, við Birna og Logi og Brjánn, pabbi þeirra. Höfðum það kósí, kjöft­uðum og borð­uðum góðan mat.“ 

Nú eru aftur að koma jól. En Birna er farin og jólin verða allt öðru­vísi. 

„Við ætlum að vera saman, hennar nán­asta fólk. Ég, Logi, Brjánn og konan hans, Tedcy. Við ætlum að hafa upp­á­halds­rétt­inn hennar líka, hún var alltaf með sér­rétt á jól­unum. Og hlusta á tón­list sem henni fannst fal­leg. 

Þetta verður ein­falt, við ætlum ekki að skreyta, en hafa kerta­ljós, tón­list og góðan mat. Hafa það gott saman. Og jólin verða helguð Birnu. Hátíð­leg­asta stundin verður við leiðið hennar.“ 

Að búa til heim með Birnu

„Þetta er ekki kvíð­væn­legt, en þetta verður allt öðru­vísi. Jólin eru hátíð til­finn­ing­anna, eins og Vigfús Bjarni segir, og maður þarf bara að leyfa þeim að vera. Búa til pláss fyrir Birnu þannig að hún sé með okkur.“

Og þegar minn­ing­arnar koma saman, þá verður til heimur, fal­legur heimur þar sem Birna er ennþá til. 

„Við finnum frið­inn með því að ná í Birnu. Við Logi gerum þetta saman. Hann man svo margt, svo margt fal­legt. „Hvað ætli Birna sé að gera núna?“ segir hann. „Ætli hún sé að fylgj­ast með okkur? Hvað væri Birna að gera og segja ef hún væri hérna hjá okkur?“ Og svo hjálp­umst við að, drögum upp fal­lega mynd af henni, sjáum hana t.d. fyrir okkur að fá sér konfekt með afa sínum sem er far­inn líka.

Það gefur svo mikla hlýju. Að búa til heim með Birnu og varð­veita hann saman.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár