Vilja skýrslu um innflytjendur og fæðingartíðni

Þingmenn Mið­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks vilja 100 ára spá um fæð­ing­ar­tíðni Íslend­inga og fjölgun inn­flytj­enda.

Vilja skýrslu um innflytjendur og fæðingartíðni
Snorri Másson Þing­maður Mið­flokks er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Golli

Þingmenn úr röðum Mið­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hafa beðið dóms­mála­ráð­herra um skýrslu um íbúa­þróun á Íslandi og áhrif inn­flytj­enda á hana.

„Mik­il­vægt er að átta sig á því hver íbúa­sam­setn­ing er hér á landi og áhrifum inn­flytj­enda á þróun hennar,“ segir í til­lögu þing­mann­anna. „Flutn­ings­menn von­ast til þess að með skýrsl­unni verði hægt að gera sér grein fyrir hvert umfang fólks­flutn­inga hefur verið hingað til lands. Auk þess hefur fæð­ing­ar­tíðni hér á landi aldrei verið lægri og óvíst hverjar lang­tíma­af­leið­ingar lægri fæð­ing­ar­tíðni verða.“

Skýrslu­beiðnin kemur frá þing­mönn­unum Snorra Mássyni, Bergþóri Ólasyni, Ingi­björgu Dav­íðs­dóttur, Karli Gauta Hjalta­syni, Nönnu Margréti Gunn­laugs­dóttur, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, Sigríði Á. Andersen, Þorgrími Sig­munds­syni, Diljá Mist Ein­ars­dóttur, Njáli Trausta Frið­berts­syni og Vil­hjálmi Árnasyni.

Þing­menn­irnir óska eftir upp­lýs­ingum um þróun íbúa­sam­setn­ingar síð­ustu tutt­ugu ára með til­liti til þjóð­ernis íbúa Íslands og á hvaða grunni inn­flytj­endur hafa fengið dval­ar­leyfi. Þá óska þeir eftir spá um íbúa­þróun næstu 100 árin sam­kvæmt eft­ir­far­andi sviðs­myndum: „Inn­flytj­endum og afkom­endum inn­flytj­enda fjölgi eða fækki og fæð­ingum Íslend­inga fækki, fjölgi eða þær hald­ist óbreytt.“

Loks er vísað í danska rann­sókn sem sýnir að árið 2096 kunni meiri­hluti íbúa Dan­merkur að vera inn­flytj­endur eða börn inn­flytj­enda ef fæð­ing­ar­tíðni og fjölgun inn­flytj­enda hald­ast óbreytt.

„Lands­menn eld­ast um leið og aðfluttum fjölgar og afkom­endum þeirra,“ segir í til­lög­unni. „Þetta hefur áhrif á efna­hags­mál, inn­viði, heil­brigð­is­mál o.s.frv. og því mik­il­vægt að gera eins góðar spár um þessa þróun og mögu­legt er. Sam­an­burður er nauð­syn­legur og hann er t.d. hægt að fá með því að fram­kvæma sams konar rann­sókn og gerð var í Danmörku og vísað er til hér að framan.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Er unga fólkið í þessum flokkum að gera sitt til að fjölga Íslendingum fyrst flokksfólkið í þessum flokkum hefur svona miklar áhyggjur af að innflytjendum fjölgi á kostnað okkar Íslendinga.
    6
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Gylfi Magnússon fjallaði um svona útreikninga í útvarpsþætti í vetur. Hann talaði um ef við tækjum punktstöðu núna og miðuðum við núverandi fæðingartíðni og Gerðum Ísland svo innflytjenda hlutlaust, semsagt það kæmu bara jafnmargir inn og færu út. Þá myndi staðan um næstu aldamót vera sú að það væru sirka 100.000 færri á vinnumarkaði. Ég held að þetta fólk sé ekki að fiska eftir staðreyndum heldur hughrifum til markaðssetningar til að geta haldið sinni notalegu vel launuðu innivinnu.
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár