„Stórundarlegt“ að Hafnarfjörður samþykki borholur í Krýsuvík

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir „stór­und­ar­legt“ að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafi sam­þykkt til­rauna­bor­holur rétt hjá lang­vin­sælasta ferða­manna­stað sveit­ar­fé­lags­ins. Fram­kvæmdir við fyrstu bor­holu standa yfir í návígi við Seltún. Valdimar Víðisson, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, hefur ekki áhyggjur af ferða­þjón­ust­unni.

„Stórundarlegt“ að Hafnarfjörður samþykki borholur í Krýsuvík
Til­rauna­bor­p­allur á Krýsu­vík­ur­svæð­inu Samtök ferða­þjón­ust­unnar segja „stór­und­ar­legt“ að til­rauna­bor­holur séu í nánd við Seltún. Mynd: Golli
Jóhannes Þór SkúlasonFram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

„Það er í sjálfu sér stór­und­ar­legt að Hafn­ar­fjörður skuli yfir höfuð hafa gefið út leyfi á til­rauna­holur á Krýsu­vík­ur­svæð­inu, sér í lagi þegar bor­hol­urnar eru eins nálægt Seltúni og raunin er,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar – SAF.

Hafn­ar­fjarð­ar­bær aug­lýsir nú breyt­ingu á aðal­skipu­lagi vegna rann­sókn­ar­bor­holna í Krýsuvík. Sveit­ar­fé­lagið gerði samn­ing við HS Orku í júní 2024 um „heim­ild til rann­sókna, land­nota, lóð­ar­leigu og nýt­ingu auð­linda­rétt­inda í tengslum við mögu­lega nýt­ingu auð­linda í Krýsuvík.“  

Jóhannes Þór segir að Kleif­ar­vatn og Krýsu­vík­ur­svæðið hafi verið í vexti sem áfanga­staður á síð­ustu árum. „Og eru í dag hluti af frá­bærri dags­ferð um Reykja­nesið, dags­leið sem mun hafa gríð­ar­lega vaxt­ar­mögu­leika þegar jarð­hrær­ingum í Grinda­vík lýkur,“ segir hann.

Rann­sóknir eru í gangi Hafn­ar­fjarð­ar­bær og HS Orka gerðu samn­ing um Krýsu­vík­ur­svæðið. …
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Sama framkvæmdin hjá Sjálfstæðisflokknum í þessu máli eins og öllum hinum ? Aldrei að hlusta á einn né neinn, því ráðum þessu !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár