Bókarkafli: Dúkkuverksmiðjan

Júlía Margrét Ein­ars­dóttir sendi nýverið frá sér skáld­sög­una Dúkku­verk­smiðj­una. Heim­ildin birtir kafla úr bók­inni.

Bókarkafli: Dúkkuverksmiðjan

 Ég er búin að segja ykkur frá forn­bóka­búð­inni, þar sem Milla starfar, og sund­laug­inni á Salteyri, þar sem bæj­ar­búar koma saman til að slúðra á morgn­ana. En hjarta Salt­eyrar slær í Dúkku­verk­smiðj­unni hennar Stínu, það myndi eng­inn reyna að þræta fyrir sem þangað hefur komið.

Dúkku­verk­smiðjan kann að vera nokkuð óvænt nafn á krá og gisti­heim­ili en ástæðan fyrir því er sú að eitt sinn bjó þarna mann­eskja sem bjó til brúður úr postu­líni, leir, næloni og líni, dúkkur með örsmáar hendur og augu sem aldrei lok­uð­ust. En hún er látin og Dúkku­verk­smiðjan er í eigu Gríms Refs og Krist­ínar Edgars­dóttur, for­eldra Millu, sem hafa breytt þessum for­tíð­ar­minjum í nútíma­legan griða­stað sem allir dýrka. Á sumrin er gist í öllum her­bergjum Dúkku­verk­smiðj­unnar, þá er líf og fjör, en þegar hausta tekur hverfa ferða­menn úr bænum enda ekk­ert sjar­mer­andi að þeirra mati við rok og ófærð á „stein­dauðum stað“. Kajak­leiga Reynis fer í vetr­ar­frí, forn­bóka­búð Millu er lokað fyrir aðra en skólakrakk­ana. Flesta daga er of vont veður til að fara í göngut­úra og stundum lok­ast veg­ur­inn til Ísa­fjarðar svo það er ekki hægt að fara neitt. 

Hafið ógnar nær­liggj­andi húsum með drama­tík, kett­irnir gera hlé á fugla­veiðum og hörfa inn til sín og líkt og eig­endur þeirra sitja þeir oft við glugg­ann og stara út í enda laust myrkrið, lang­eygir eftir skímunni. En fasta­gestir Dúkku­verk­smiðj­unnar, íbúar bæj­ar­ins, eru enn á stjái. Þau berj­ast í gegnum mesta rok til að fá sér morg­un­sund­sprett í sund­laug­inni, kaupa sér brauð og pulsur og garn á bens­ín­stöð­inni og tylla sér svo niður í und­ur­hlýja veit­inga­salnum í Dúkku­verk­smiðj­unni.

Morg­un­boll­inn er heil­agur helgi­siður margra Salt­eyr­inga. Þá gefst tími til að skipt­ast á dag­blöð­unum og fréttum úr póli­tík­inni og af heilsu­fari og fjöl­skyld­unni. Þau vita að það er fátt jafn róandi og að lesa blöðin við ljóstíru frá rykugum lampa með hekluðum skermi úr smiðju hús­frú­ar­innar. Stilla heim­inn rétt áður en dag­ur­inn byrjar og fólk hverfur til sinna starfa. Um kvöldið breyt­ist stað­ur­inn í nota­legt athvarf, þar sem klingj­andi glös og veg­leg sam­loka, vaffla með rabar­bara­sultu eða ríku­leg og bragð­mikil fiski­súpa, veita huggun eftir langan dag. Þá er safn­ast saman kringum bjór­dæl­una langt fram á nótt.

Í Dúkkó hafa margir bæj­ar­búar mannað sig upp í fyrsta sleik­inn við nágrann­ann seint um kvöld. Fólk hefur mis þyrmt sæmi­legum dæg­ur­lögum hárri raustu á dans­gólf­inu, gefið hvert öðru jóla­gjafir, haldið upp á afmæli. Krakkar lesið skjálf rödduð upp sitt fyrsta ljóð og börnin í grunn­skól­anum sett upp leik­rit sem flestir bæj­ar­búar mæta á og blístra og stappa. Stundum er líka grátið þar inni og þegar fjörið er mest magn­ast skvaldrið stöðugt þar til allir eru sendir heim eða upp í ból. Stína þakkar fyrir í dag og kveður mis­fulla nágranna með faðm­lagi.

Kristín, eða Stína í Dúkkó eins og hún er jafnan kölluð, sér um dag­legan rekstur Dúkku­verk­smiðj­unnar. Á sumrin tekur hún á móti fyrstu gestum dags­ins, túristum og úti­vi­star­fólki úr borg­inni eða fjöl­skyldum á hring­ferð, réttir þeim lyklana og segir þeim frá helstu kenni­leitum þorps­ins. Hún heldur her­bergjum og kló­settum hreinum með ilm­sápum og skreytir þau með loðnum kló­sett­lokum sem hún ryksugar á hverjum degi áður en hún opnar veit­inga­sal­inn og kveikir á kertum, und­ir­býr súp­una, bakar brauðið. Spjallar við ein­mana sálir sem inn rata, sér um við­burði eins og ljóða­kvöld, leik­rita­sýn­ingar, sam­skipti við hús­bandið og er reglu­lega með bóka kvöld. En hvernig komst Dúkku­verk­smiðjan ann­ars í hend­urnar á sóma­fólk­inu Stínu og Grími?

Grímur og Stína ólust bæði upp á Vest­fjörðum og höfðu lítið annað farið þegar þau kynnt­ust. Nutu sín í faðmi fjall­anna í vest­firska rok­inu á sum­ar­dögum með lakk­rís­rör í kóki hopp­andi í parís eða vipp­andi á vega­salti á meðan þau slitu barns­skónum.

Þau bera bæði sterkan Vest­fjarða­svip, eru svip­mikil, hraust­leg en nokkuð smá­vaxin. Þau kynnt­ust á balli í félags­heim­il­inu í Hnífsdal. Bjartmar var að spila og Stína mætti með Höllu systur sinni, þær báðar í snjó­þvegnum galla­buxum. Stein­snar frá stóð ókunn­ugur töffari á svip­uðu reki sem tók eftir þeim án þess að það sæist að hann væri að gjóa til þeirra auga.

 Grímur var í rúllu­kraga­peysu og flauels­buxum með skegg­hýj­ung og kringlótt gler­augu. Hann hafði komið með stóru systur sinni frá Flateyri þar sem þau bjuggu, ætl­aði að vera á bíl en freist­að­ist til að fá sér drykk. Þegar Bjartmar söng um mömmu sem beyglar alltaf munn­inn þegar hún mask­arar augun gólaði Stína með af svo mik­illi inn­lifun að hún hras­aði og datt á mann­inn sem fylgd­ist íbygg­inn með Bjart­mari í gegnum kringl­óttu gler­augun, þaðan kylli­flöt á gólfið.

Hún hellti vodka í Sinalco yfir fín­ustu peys­una hans. Skelli­hló þar sem hún klöngr­að­ist skömmustu­leg á fætur með hjálp systur sinnar en greip fyrir munn­inn þegar hún leit á fórn­ar­lambið.

Æ, úbbossí, æ guð­minn, er þetta dýr peysa? Fyr­ir­gefðu, ég er ekki með mik­inn pen­ing. Er hún ónýt? Viltu kannski eiga drykk­inn minn?

Nei.

Í alvöru, taktu drykk­inn. Ég er blind­full.

Það er ekk­ert í þessu glasi, þú helltir öllu yfir mig.

Fyr­ir­gefðu, fliss. Þú ert ógis­lega sætur.

Þetta var sann­ar­lega flottasta peysan hans sem hann hafði nýverið eytt öllu spari­fénu í fyrir sunnan. Það var farið að síga í Grím en bros stríðn­is­legu kon­unnar, villtar krull­urnar, svo­lítið skakkar tenn­urnar og dans­andi augun demp­uðu mestu bræð­ina. Svo hann ákvað að vera töff og með stæla í stað­inn.

Ég fyr­ir­gef þér ef þú sýgur á mér typpið.

 Ha?

 Þú mátt … þú mátt alveg …

Grímur bölv­aði því að vera svona hvat­vís og beið eftir löðr­ungi sem ekki kom. Hávaðinn í hljóm­sveit­inni hafði lík­lega kæft hvert orð og hann gert sig að fífli. En hún brosti lymsku­legar en fyrr.

Ég heyrði hvað þú sagðir.

Þú hefðir kannski ekki hlegið, kannski skvett því örlitla sem eftir var af drykknum þínum yfir hann og ég skil það vel. En Stínu fannst þetta fyndið, hún vafði höndum um háls hans og kyssti hann remb­ings­kossi sem varð að renn­blautum fylliríss­leik sem ent­ist allt ballið á meðan þau þeystu um dans­gólfið

Þegar ljósin voru kveikt fór fólk að skakklapp­ast út úr félags­heim­il­inu, sum með ríðu­fé­laga eða partí­fé­laga í tak­inu og önnur með glóð­ar­auga eða á bömmer. Þegar Grímur sá systur sína hverfa út í myrkrið með þétt­ings­tak um háls­inn á blind­fullum slána ákvað hann að bjóða kon­unni sætu upp í Land­róver­inn sinn sem var lagt á plan­inu. Stína þáði og hann leiddi hana inn í aft­ur­sætið.

Geturðu skutlað mér heim til Ísa­fjarðar?

Já, ég þarf að láta renna af mér.

Ég skal hjálpa þér.

Hún kom sér fljótt að verki, hjálp­aði honum úr klístr­uðum bux­unum og saug á honum typpið. Svo full­kom­lega. Hann hafði aldrei hitt eins fram­hleypna gellu. Langaði að bjóð­ast til að hætta áður en hann fengi það, bjóð­ast til að fara inn í hana, þá myndi hún kannski fá það líka, en þetta var bara allt of gott. Hann fékk það loks yfir flottu snjó­þvegnu bux­urnar hennar, með miklu offorsi og eig­in­lega furðu­lega snemma og með und­ar­legum hljóðum, en hún varð ekk­ert hneyksluð. Ekki heldur pirruð yfir því að bux­urnar yrðu skítugar. Hún brosti og dreifði úr klístr­inu yfir galla­efnið.

Nú erum við kvitt.

Við tók vand­ræða­leg þögn þar til hann reiddi fram spað­ann og ræskti sig.

Ég heiti Grímur, sem sagt.

Var asna­legt að rétta hönd­ina að mann­eskju sem var með brund­klessu eftir mann á galla­bux­unum?

Ég er Stína. Edgars­dóttir.

Edgar?

Já, nema ég er Stína, pabbi er Edgar. Þú ert sætur, Grímur.

Hún tók þétt­ings­fast í spað­ann á honum. Hvernig var hægt að vera svona dásam­leg?

Grímur veiddi Kent-sígar­ettu­pakka úr hanska­hólf­inu og bauð henni í þakk­læt­is­skyni. Kveikti í fyrir þau bæði, bar sína upp að sam­an­herptum vörum, töff eins og Stallone, saug og rétti henni. Hún tók við og gerði eins. Hann lang­aði að heilla hana, segja eitt­hvað snið­ugt, og í örvænt­ingu rak hann augun í stíla­bók­ina sína í aft­ur­sæt­inu og teygði sig í hana.

Ég hef aðeins verið að skrifa.

Ertu rit­höf­undur?

Skáld kannski meira, eða já.

Lestu fyrir mig, Þór­bergur.

Það þurfti ekki að biðja hann tvisvar.

And­ar­dráttur hennar þyngd­ist á meðan hann þuldi upp ljóðin sín. Hann lok­aði bók­inni þegar hún var sofnuð og horfði á hana. Þakk­látur kom hann sér fyrir í sæt­inu við hlið hennar. Hélt þétt utan um hana þar til þungur höfgi færð­ist yfir hann líka.

Grímur vakn­aði ískaldur, á bíla­stæð­inu fyrir utan félags­heim­ilið, við að hús­vörð­ur­inn bank­aði og gaf honum reiði­lega merki um að skrúfa niður rúð­una. Hann rétti sig við í snar­hasti, ræskti sig ráð­villtur og sneri svo sveif­inni.

Þú getur ekki sofið hér, lagsi.

 Nei, nei. Hóst. B-bless­aður vertu ævin­lega. Ég er bara á heim­leið.

Það rumdi í Grími en hann bætti engu við, setti bíl­inn bara í gang og renndi úr hlaði. Skamm­að­ist sín fyrir að hafa verið að drekka þótt hann væri á bíl. Sá að stíla­bókin hans með ljóð­unum var opin á gólf­inu og skamm­að­ist sín enn meira. En svo leiddi hann hug­ann að kon­unni sætu. Kannski kunni hún að meta ljóðin í alvöru. Hann hafði áreið­an­lega ekki ímyndað sér hana. Sígar­ettu­lyktin gaf til kynna að þau hefðu verið þarna bæði og hann mundi full­næg­ing­una vel.

Hann braut heil­ann um hana alla leið­ina heim, rifj­aði upp hvað hann vissi. Grímur varð að finna hana. Vissi að hún kall­að­ist Stína og væri Edgars­dóttir, hann mundi það vel því nafnið var svo skrýtið.

Þegar heim var komið heils­aði hann engum en spurði mömmu sína hvort hún kann­að­ist við Edgar á Ísafirði.

 Hvar er systir þín?

 Hún varð eftir.

 Hún hefur ekk­ert látið vita af sér.

 Hún var með vinum sínum. Edgar, á Ísafirði? Ég þarf að tala við hann.

 Kaup­mann­inn?

 Ég veit það ekki.

Hvað kom fyrir peys­una þína? Sull­að­irðu á hana, Grímur minn?

Æ, gerðu það, svar­aðu mér bara, þetta er áríð­andi.

Hann Edgar Jónsson er alla­vega dáinn en ekkjan rekur versl­un­ina hans við Hafn­ar­stræti.

Sama dag, rétt áður en verslun Edgars Jóns­sonar á Ísafirði var lokað, lagði Grímur Land­róvernum fyrir utan versl­un­ina og gekk inn. Varð að vera ákveð­inn þótt hann vissi ekki almenni­lega hvað hann ætl­aði sér. Gat ekki einu sinni vitað hvort þetta væri verslun Edgars föður Stínu eða hvort þeir væru fleiri. En hann varð að taka séns­inn.

 Ég er að leita að Kristínu Edgars­dóttur.

Kona á aldur við for­eldra Gríms hætti að telja klink úr kass­anum. Horfði á hann um stund, mældi hann út. Hann var feg­inn að sjá að hún var krull­hærð eins og Stína en hann gat ekki verið viss um að þær tengd­ust. Rödd kon­unnar var tón­laus þegar hún svar­aði honum eftir nokk­urt hik.

Hún Stína var hér áðan.

Er sú Stína Edgars­dóttir?

Já.

Með krullur?

Hvað varðar þetta? 

Grímur veiddi skjálf­hentur lít­inn miða úr vasa sínum, greip penna af afgreiðslu­borð­inu og skrif­aði. Teygði sig í malt­flösku úr kæli og rétti kon­unni flösk­una og mið­ann.

Ég ætl­aði að fá þetta góða malt, get­urðu fært Kristínu þetta?

Konan leit áhuga­laus á mið­ann.

Haha, ég fann þig.

Kær kveðja,

The Mask.

Und­ir­skriftin var barna­lega teiknuð mynd af leik­hús­grímu. Grímur var ekki stoltur af teikn­ing­unni en gat ekki breytt henni að svo stöddu. Undir var skrifað síma­númer.

 Konan leit aftur tor­tryggin á ræf­ils­legan dreng­inn.

 Gerðu það.

 Það gera fimm­tíu krónur fyrir maltið.

 Gerðu það.

 Fimmtíu krónur. Gríma?

 Nei, Grímur í fleir­tölu.

 Ætti þetta þá ekki að vera Masks, í fleir­tölu?

 Hún skilur þetta.

Svava systir Gríms skil­aði sér úr partí­inu næsta morgun. Seinna um dag­inn bank­aði hún á svefn­her­berg­is­hurð hans en beið ekki svars heldur stillti sér glott­andi upp í gætt­inni.

 Grímsi. Það er stelpa í sím­anum.

 Þú bank­aðir ekki.

 Á ég að segja að þú sért ekki heima?

 Grímur átt­aði sig, stökk af stað fram í stofu, reif í tólið.

 Fjöl­skyldan fylgd­ist áhuga­söm með.

 Grímur hér.

Hann var mættur heim til hennar vatns­greiddur með tann­bursta og peysu í poka sama kvöld. Og heima hjá Stínu Edgars­dóttur og mömmu hennar og systur mátti hann vera. Þar leið honum vel þó að mamman og Halla systir Stínu stríddu honum alltaf og köll­uðu hann The Mask þegar þær heilsuðu honum.

Næstu dagar liðu eins og í vímu. Þegar þau fóru að sofa á kvöldin gat hann starað enda­laust á hana. Skökku tenn­urnar, krull­aða hárið. Prakk­araglottið hvarf ekki einu sinni þegar hún var við það að festa sætan svefn. Þegar hann heyrði að hún var byrjuð að hrjóta lágt þá potaði hann í nefið á henni til að vekja hana.

 Hvað ertu að gera?

 Halló.

 Ég er sof­andi.

 Ég vil ekki fara að sofa, segðu eitt­hvað. Það er svo gaman að hlusta á þig tala

Og hún dæsti, en með and­varpi sem gaf til kynna að hún væri samt upp með sér. Settist upp og spurði hvort hann tryði á drauga og geim­verur. Sagði sögur úr bók­unum sem hún las, kónga­fólk­inu sem þær Halla systir hennar elsk­uðu báðar. Hann hlust­aði upp­num­inn á hvert orð.

En þegar þessi saga ger­ist, löngu síðar, þolir hann ekki að hlusta á hana tala. Þolir það ekki því hún talar alltaf við ein­hvern annan en hann.

Þau komu sér fyrir í ódýrri blokkar­í­búð á Ísafirði og unnu vaktir í verslun Edgars en þaðan fluttu þau sig um set eftir nokkur ár til Salt­eyrar. Þau fregn­uðu af yfir­gef­inni Dúkku­verk­smiðju sem var föl á klink hjá ætt­ingjum brúðu­gerð­ar­meist­ar­ans sem vildu losna við afskekkt nið­ur­nítt hús í krumma­skuði. Þangað sem er ófært stóran hluta árs, enda­laust myrkur. Best að selja draslið.

Stína og Grímur gerðu húsið upp í sam­ein­ingu. Hörður, smið­ur­inn í bænum og faðir hins ein­eygða Reynis, smíð­aði af ótrú­legri lagni það sem þurfti til að breyta verk­smiðju í veit­inga­stað og gisti­heim­ili.

Stína mál­aði vegg­ina gula, Grímur límdi rósótt vegg­fóður í her­bergin á efri hæð­inni þar sem þau hjónin sváfu á vet­urna en gestir á sumrin. Fljót­lega flutti ein­stæð­ing­ur­inn Halla, stóra systir Stínu, líka í bæinn.

Halla systir Stínu hafði orðið valdur að banaslysi þegar hún bakk­aði á fimm ára gam­alt barn með nokkur pró­mill í blóði. Þetta var skömmu eftir skilnað, hún hafði verið á leið út af bíla­stæði í Faxafeni með ný stíg­vél úr Bláu hús­unum og nýstraujað kort fyrr­ver­andi manns­ins síns þegar slysið varð. Þegar Halla flutti aftur vestur, fyrir til­stuðlan litlu systur sinnar, var hún gjör­breytt mann­eskja og eins og hulstur af kon­unni sem hafði fylgt Stínu sinni á ball með Bjart­mari. Snjó­þvegnu bux­urnar löngu gleymdar, skótauið úr bláu hús­unum enn í kass­anum. En Stína vildi hafa alla hjá sér. Með Höllu á svæð­inu var líf hús­freyj­unnar full­komnað þótt hún bæri það með sér að brenna kertið í báða enda.

Til þess að gleðja kon­una sína hvatti Grímur hana til að bjóða systur sinni til London til að hressa hana við. Þá var gisti­heim­ilið til­búið en þau enn að bíða eftir rekstr­ar­leyfi. Það var hálfu ári eftir áfallið og í fyrsta sinn sem Stína sá systur sína brosa í langan tíma. Þær fóru á Ríkharð III í Old Vic, drukku te úr kon­ung­legum bollum og borð­uðu gúrku­sam­lokur. Hímdu fyrir utan Buckingham-höll klukku­stundum saman þar til draum­ur­inn rætt­ist. Þær sáu svo sem bara glitta í Filippus drottn­ing­ar­mann stíga út úr bif­reið sinni en það var nóg. Vissu­lega aðeins bak­svip­inn og bara í örskamma stund en þær ærð­ust. Eftir kvart­anir voru syst­urnar beðnar um að yfir­gefa svæðið því þær öskr­uðu eins og ung­lings­stúlkur á Bítlatón­leikum og börðu af ákafa í hliðið.

I have to ask you two to leave the premises.

I’m sorry, good sir. We had to say hi to a mutual fri­end. Can you tell him to talk to us?

 Það vildi vörð­ur­inn sann­ar­lega ekki.

Þær þurftu að fara en það var allt í lagi, þær höfðu þarna upp­lifað saman atburð sem þær myndu aldrei gleyma. Þær hlógu í sælu­vímu langt fram á morgun.

Hann Grímur, The Mask, er nú ágætur að bjóða okkur, Stína.

En þegar þær voru komnar aftur á Salteyri lagð­ist skugg­inn á ný yfir Höllu. En hún var í aug­sýn, fjöl­skyldan saman í Dúkku­verk­smiðj­unni, og Stínu fannst hún ekki geta beðið um meira.

En þó hafði hún ekki alveg allt sem hjarta hennar þráði. Það sem vant­aði enn sár­lega í líf Dúkku­verk­smiðju­hjón­anna var barns­hlátur, barna­leikir, grátur, hjal. Eftir að hafa árang­urs­laust reynt að eign­ast barn í tvö skelfi­leg ár sífelldra von­brigða sam­þykkti Grímur að þau tækju að sér ung­linga úr Reykja­vík (og nágrenni) á sumrin. Krakka sem áttu erfitt með að fóta sig í sífelldum mót­byr, sem Stína gæti baðað í hlýju og látið finna að þau ættu til­veru­rétt. Það var brugðið á það ráð að moka kvart­andi og kvein­andi ung­lingum upp í rútu, með kvíða í hjarta og bak­poka fullan af húbbabúbbatyggjói, klám­blöðum og rettum. Brakandi ferskt loftið átti að gera þeim gott, því hafði Stína í Dúkkó lofað borg­ar­yf­ir­völdum í fjöl­mörgum bréfum og sím­tölum þar til hún fékk sínu fram­gengt. Og fjarð­ar­súr­efnið gerði það oft, það sýndi sig fljótt.

Undir sinn hungr­aða vernd­ar­væng bauð Stína börnum sem voru reið yfir hlut­skipti sínu, börnum sem komu ekki með nesti í skól­ann því mamma og pabbi áttu ekki pen­ing. Hún lét börn sem áttu ríka for­eldra sem skiptu sér ekki af þeim finna að þau væru verð­mæt. Elskaði krakk­ana sem hefndu fyrir ást­leysi kyn­slóð­anna og afskipta­leysi gagn­vart öllu öðru en töl­unni á banka­bók­inni með því að berja krakk­ana sem brók­uðu þau fyrir að vera með dýr gler­augu.

Krakkar frá vand­ræða­heim­ilum sem fylgdu ekki reglum, lentu í áflogum, bjuggu til sprengjur, stálu skóm og símum og sniff­uðu lím fengu líka að koma í fjörð­inn til að finna að minnsta kosti tíma­bund­inn frið í hjart­anu. Og viti menn. Börnin losn­uðu sum við heift sína út í heim­inn sem sífellt traðk­aði á þeim. Hættu að bera sig saman við sál­ar­lausu vatns­greiddu krakk­ana sem spil­uðu á hljóð­færi og fengu nýtt reið­hjól í sum­ar­gjöf og sögðu aldrei neitt hættu­legt eða fyndið.

Krakk­arnir gistu í Dúkku­verk­smiðj­unni og aðstoð­uðu við að færa gestum súpu og bjór eða skiptu um á rúmum í her­bergj­unum. Hengdu upp á snúrur í þvotta­hús­inu með Höllu, fengu jafn­vel að skera græn­meti og fisk í súp­una með Stínu, hnoða brauð og steikja ham­borg­ara fyrir Grím, mála, sulta með systr­unum, laga, taka til og slá blett­inn fyrir framan. Þegar þau áttu frí var ekk­ert að gera annað en að ríða eða naga strá við sjó­inn. En það gat verið ansi ljúft. Enginn landi, ekk­ert lím, engir krakkar til að berja, ekk­ert rugl.

Sumir ung­ling­arnir fundu sig samt engan veg­inn, því miður, sama hvað þeir önd­uðu að sér sjáv­ar­loft­inu. Neituðu að taka af sér húf­una og grenj­uðu af heim­þrá á þessum ömur­lega stað. En önnur fundu hjá Stínu móð­ur­eðli sem þau höfðu aldrei kynnst fyrr. Mörg tala enn um að þau standi í þakk­ar­skuld við hjónin í Dúkkó, aðal­lega Stínu sem hrós­aði þeim við hvert tæki­færi og gaf þeim lífs­vilja á ný.

Hæfi­leik­arnir, jidúd­damía. Þú ert svo klár, ég hef ekki kunnað á þetta síðan við fluttum hingað en það leikur allt í hönd­unum á þér.

Í alvöru?

En svo kom að honum, atburð­inum sem setti eilíft mark á lífið á Salteyri. Ef þú hefur verið á þessum slóðum þá hef­urðu eflaust áttað þig á því að það lónir áþreif­an­legur harmur yfir bænum litla. Sorgum blandin minn­ing skýst eins og ískaldur and­vari manna á milli með augna­ráð­inu einu saman og smeygir sér inn í martraðir, breiðir úr sér og heldur huga þeirra sem horfa til hafs á dimmum kvöldum í helj­ar­g­reipum.

Hákon Snorri Aðal­steins­son hafði alltaf átt erfitt upp­dráttar, var fámáll og ræf­ils­legur. Hrein­ræktuð ótemja, barn sem eng­inn kysi að eign­ast. Það var sama hvað Stína reyndi að spjalla við þennan dreng, gefa honum að borða svo hann yrði aðeins patt­ara­legri og fengi roða í kinn­arnar. Sýna honum móð­ur­lega hlýju. Hann brást þótta­fullur við, sagði henni að láta sig í friði, sinnti engum hús­verkum og stein­þagði við mat­ar­borðið.

Whatever, kell­ing, láttu mig vera.

Hákon tal­aði raunar ekki við neinn á Salteyri nema eina stúlku sem dvald­ist þarna á sama tíma, stúlku sem sást stundum teyma hann með sér niður í fjöru á kvöldin.

Svo var það eina kyrr­láta sum­arnótt við fjörð­inn að hann fór út að hafi en í þetta sinn var stelpan ekki með honum. Síðasta mann­eskjan sem sá hann á lífi var strákur sem deildi her­bergi með honum í Dúkkó. Hélt að hann ætl­aði út með vin­konu sinni en sá hann svo hverfa einan niður að sjónum um bjarta sum­arnótt­ina. Það var ekki fyrr en undir morgun sem hann átt­aði sig á því að Hákon Snorri hefði ekki skilað sér aftur heim og Stína brást við frétt­unum með því að hlaupa af stað niður í fjöru.

Sagt er á Salteyri að ekk­ert hljóð hafi borið vitni um eins hrein­rækt­aða skelf­ingu og öskrið sem Stína í Dúkkó rak upp þegar hún kom auga á hálf­nak­inn ískaldan ungan mann á grúfu í flæð­ar­mál­inu þennan morgun.

Vand­ræða­krakk­arnir fimm sem dvöldu í Dúkkó þessa viku voru strax sendir heim með pok­ann sinn.

Stína í Dúkkó syrgði dreng­inn eins og sinn eigin son þótt hann hefði aldrei viljað þýð­ast hana. Glaðasta konan á Vest fjörðum fór ekki út úr her­berg­inu sínu í nokkra mán­uði en sat öll kvöld vol­andi með Höllu systur sinni sem fékk í fyrsta sinn í langan tíma tæki­færi til að vera sú sem hugg­aði. Halla færði henni vistir, tíma­rit um kónga­fólkið og sam­lokur sem Grímur mátti smyrja eftir pöntun. Sjálfur þurfti hann að sjá einn um gisti­heim­ilið og krána. Sofa með hund­inn uppi í her­bergi í ris­inu á meðan Stína tók út sína sorg.

En hún reis upp á ný og varð sjálfri sér lík að mestu. Hákon var þó ekki gleymdur og þráin eftir að eign­ast barn var það ekki heldur. Hún efldist með hverjum deg­inum. Stína taldi að guð­irnir væru að refsa sér fyrir að hafa brugð­ist Hákoni. Hana dreymdi lít­inn dreng sem föndraði flug­vélar úr kló­sett­papp­írs­rúllum í leik­skól­anum og færði henni til að hengja í glugg­ann. Litlar flug­vélar sem þau myndu skoða þegar hann væri að sofna á öxl hennar á kvöldin, örugg­asta stað í heimi. Svo kæmi stúlkan með spékopp­ana hennar og íbyggn­ina hans pabba. Lítil hnáta sem hægt væri að greiða á hárið og sofn­aði ekki nema hún heyrði allt um börnin í Óláta­garði einu sinni enn. Draum­ur­inn byrj­aði sem ósk, varð svo að log­andi þrá og loks þrá­hyggju. Hún ætl­aði sér að eign­ast barn. Barn til að elska, til að lifa fyrir.

Og loks kom barn, stúlka með svart hár og ísblá augu. Þá þekktu íbúar Stínu sína loks­ins aftur. Stúlkan var nefnd Margrét Hrafn­lilja. Því var strax lýst yfir að hún skyldi ekki vera kölluð Magga heldur Milla, svo­lítið eins og Camilla Parker Bowles sem syst­urnar, ólíkt flestum roja­listum sem þær þekktu, elsk­uðu meira en Margréti Dana­drottn­ingu. Guð blessi Díönu en Camilla er betri fyrir Kalla. Ekki henni að kenna að hann klæm­ist í henni með því að segj­ast vilja vera túrtappi, hún er sjálf elegant.

En Milla var eng­inn kór­drengur. Hún var snarof­virkur krakki sem for­eldr­arnir máttu varla líta af, og gera raunar varla enn. Oft ótt­uð­ust þau að stelpan færi sér að voða þegar hún æddi um og ógn­aði börnum með spýtum, hopp­aði fram af hús­þökum og rændi rabar­bara af ein­ræna skrýtna nágrann­anum. Þau voru líka brennd af reynsl­unni, dauð­hrædd um að hún færi óvar­lega nálægt vægð­ar­lausu haf­inu. Grími var nóg boðið þegar hann rak augun í Millu með Reyni vini sínum kastandi grjóti í sjó­inn þegar þau voru sex ára gömul. Hann öskr­aði á hana þótt það gerði hana skelfda og rak hana heim.

Þegar hún loks­ins skreið út úr fata­skápnum, náhvít í framan og and­stutt eftir nokk­urra klukku­tíma dvöl, sagði Grímur dóttur sinni af Hákoni Snorra, drengnum sem mis­kunn­ar­laust hafið hefði gleypt.

Þú verður að skilja, Milla mín, að pabbi verður ekki reiður þegar hann sér þig fara ógæti­lega heldur er hann hræddur um þig.

Öll börn sem ólust upp á Salteyri fengu fyrr eða síðar að heyra af Hákoni Snorra og sum sögð­ust jafn­vel sjá hann sitja á steini við hafið þegar það var dimmt. Milla hugs­aði mikið um þennan strák sem hafði sporað út sama gólf og hún.

En áður en Hákon dó hafði nokkuð hent hann sem eng­inn vissi um. Og kannski var hann þarna enn í fjör­unni í raun, að velta fyrir sér hvort sann­leik­ur­inn kæmi ein­hvern tíma í ljós.

Sann­leik­ur­inn um mið­ann var líka enn hul­inn Millu sem sat inni í Dúkkó og beið þess að sund­laugin yrði opnuð. Hún fékk sér sopa af óræða svarta teinu og gaum­gæfði rusl sem fauk um í litlum hvirf­il­byl sem mynd­að­ist í kringum nið­ur­fallið fyrir utan. Leit reglu­lega á sím­ann og ókyrrð­ist.

Ekkert svar.

Hvar í and­skot­anum var Reynir? Í fýlu? Hún varð að ræða við hann.

Hún skók fót­inn undir borð­inu og móðir hennar fylgd­ist með hverri hreyf­ingu, reyndi að lesa úr augum hennar. Hún vissi þó ekki að Milla hugs­aði um bréfið, hugs­aði um Sednu sem missti alla fing­urna, og velti fyrir sér hvort Reynir væri búinn að sjá skila­boðin en hefði valið að svara ekki.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár