Tillögur starfshóps um flugvallarstrætó bíða enn

Engin form­leg vinna er hafin við að bæta almenn­ings­sam­göngur á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Kefla­vík­ur­flug­vallar. Starfs­hópur skil­aði skýrslu með til­lögum í sept­em­ber í fyrra, ári á eftir áætlun.

Tillögur starfshóps um flugvallarstrætó bíða enn
Kefla­vík­ur­flug­völlur Starfs­hópur um bættar almenn­ings­sam­göngur til Kefla­vík­ur­flug­vallar skil­aði skýrslu síð­asta haust. Mynd: Golli

Vega­gerðin er með til skoð­unar leiðir til að bæta þjón­ustu leiðar 55 hjá Strætó sem gengur á milli BSÍ í Reykja­vík og Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Að öðru leyti hefur engin form­leg vinna haf­ist við að vinna úr til­lögum sem starfs­hópur um bættar almenn­ings­sam­göngur á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Kefla­vík­ur­flug­vallar skil­aði í skýrslu til inn­við­a­ráð­herra í sept­em­ber 2024. Sigurður Ingi Jóhanns­son, þá inn­við­a­ráð­herra, skip­aði starfs­hóp­inn vorið 2023 og átti hann að skila af sér í sept­em­ber sama ár. Tafðist því í heilt ár að skila skýrsl­unni.

Ein leið lands­byggð­ar­strætó, leið 55 sem Vega­gerðin rekur, stoppar við flug­völlin. Hún leggur hins vegar of seint af stað til þess að ná morg­un­flugi, er tölu­vert lengur á leið­inni en flug­rútur Reykja­vík Excursions og Airport Direct, en far­mið­inn er hins vegar umtals­vert ódýr­ari. Þá er bið­stöð Strætó í nokk­urri fjar­lægð frá flug­stöð­inni á meðan flug­rút­urnar stoppa beint fyrir utan bygg­ing­una.

Í skýrsl­unni er það gagn­rýnt að þjón­ustu­tími leiðar 55 henti hvorki starfs­fólki flug­stöðv­ar­innar né þeim ferða­löngum sem eiga morg­un­flug. Stoppi­stöðin sé það langt frá að sýni­leiki þessa val­mögu­leika sé lít­ill. Þá sé greiðslu­fyr­ir­komu­lagið ekki í sam­ræmi við aðra þjón­ustu Strætó og hjóla­stóla­að­gengi ábóta­vant. Lagði hóp­ur­inn því til fimm aðgerðir til að bæta úr þessum atriðum, lengja þjón­ustu­tíma leiðar 55 og auka tíðni.

Kosningar töfðu málið

Í svari inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er tekið fram að Alþing­is­kosn­ingar hafi óvænt verið boð­aðar tveimur vikum eftir að skýrslan var kynnt. „Breyttar aðstæður gerðu það að verkum að eft­ir­fylgni skýrsl­unnar tafð­ist fram á þetta ár,“ segir í svar­inu.

Ráðu­neytið segir hins vegar að Vega­gerðin kanni nú leiðir til að bæta strætó­sam­göng­urnar.

„Ekki er hægt að segja að form­leg vinna sé í gangi“

Í svari Vega­gerð­ar­innar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir hins vegar að engin form­leg vinna upp úr efni skýrsl­unnar sé hafin. „Ekki er hægt að segja að form­leg vinna sé í gangi, en nið­ur­stöður skýrsl­unnar liggja til grund­vallar þeim verk­efnum sem unnið er að hjá Vega­gerð­inni,“ segir í svar­inu.

„Ber þar helst að nefna að unnið er að end­ur­skoðun á greiðslu­leiðum og unnið er með flug­vall­ar­yf­ir­völdum að því að bæta aðgengi að bið­stöðvum,“ segir enn­fremur. „Einnig er unnið með yfir­völdum á flug­vall­ar­svæð­inu í skipu­lags­verk­efnum til að und­ir­búa fram­tíð­ar­til­högun almenn­ings­sam­gangna á svæð­inu. Vega­gerðin hefur átt í góðum sam­skiptum við aðra hag­að­ila og fleiri rekstr­ar­að­ila almenn­ings­sam­gangna sem hafa það sam­eig­in­lega mark­mið að stuðla að bættum almenn­ings­sam­göngum til Kefla­víkur.“

Horft verði til skýrslunnar í samgönguáætlun

Inn­við­a­ráðu­neytið segir það stefnu nýrrar rík­is­stjórnar að efla almenn­ings­sam­göngur, bæði á lands­byggð­inni og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gegnum sam­göngusátt­mál­ann. „Inn­við­a­ráðu­neytið mun áfram vinna að útfærslu til­lagna sem kynntar voru í skýrsl­unni. Horft verður til aðgerða sem kynntar voru í skýrsl­unni við und­ir­bún­ing nýrrar sam­göngu­á­ætl­unar sem lögð verður fram á Alþingi næsta haust,“ segir í svar­inu.

Þá kemur fram að ein af til­lögum starfs­hóps­ins hafi falist í að bæta þjón­ustu lands­byggð­ar­strætó­leiðar 55 svo að hún þjóni not­endum betur, meðal ann­ars með auk­inni tíðni og lengri þjón­ustu­tíma. „Vega­gerðin kannar nú leiðir til að bæta þjón­ustu leið­ar­innar og í þeirri vinnu er m.a. litið til tíðni, tíma­setn­inga ferða og þjón­ustu­tíma leið­ar­innar,“ segir í svar­inu. „Gengið er út frá því að þessi vinna muni leiða til að þjón­usta á leið 55 verði bætt, m.a. með því að auka tíðni á leið­inni og lengja þjón­ustu­tíma.“

Flug­rúturReykja­vík Excursions og Airport Direct reka flug­rútur sem leggja við hlið flug­stöðv­ar­bygg­ing­ar­innar.

Loks áformar ráðu­neytið að boða innan skamms sam­ráðs­fund helstu hags­muna­að­ila, þar á meðal Isavia, Vega­gerð­ar­innar, Kadeco, Strætó bs., Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Sambands sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum, til að fara yfir stöðu mála í tengslum við skýrsl­una og aðgerðir af hálfu ein­stakra aðila.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár