Fjármálaráðherra: Mikilvægt að launahækkanir verði hóflegar

Þingmenn fengu 45 pró­senta launa­hækkun á kjör­dag og hafa hvorki hnekkt úrskurði kjara­ráðs né skert álags­greiðslur. Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra segir „mik­il­vægt að ekki verði samið um launa­hækk­anir á kom­andi miss­erum umfram verð­bólgu­mark­mið og fram­leiðni­vöxt þjóð­ar­bús­ins.“

Fjármálaráðherra: Mikilvægt að launahækkanir verði hóflegar

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir mik­il­vægt að launa­hækk­anir fari ekki fram úr verð­bólgu­mark­miðum og fram­leiðni­vexti þjóð­ar­bús­ins næstu árin. Þetta kom fram þegar ráð­herra kynnti fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í dag. 

„Þrátt fyrir að veru­legar launa­hækk­anir á árunum 2015 og 2016 hafi enn sem komið er ekki leitt til hárrar verð­bólgu er mik­il­vægt að ekki verði samið um launa­hækk­anir á kom­andi miss­erum umfram verð­bólgu­mark­mið og fram­leiðni­vöxt þjóð­ar­bús­ins,“ sagði Benedikt. 

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, gerði þetta að umtals­efni og benti á að nýlega hefðu þing­menn fengið gríð­ar­lega launa­hækkun. „Er aldrei sú staða uppi að það sé bara í lagi að fara í almenni­legar launa­hækk­anir?“ spurði hann. „Getum við aldrei horft framan í að kannski sé lag að fara í almenni­legar launa­hækk­anir?“

Þann 29. októ­ber síð­ast­lið­inn ákvað kjara­ráð að hækka laun þing­manna um 45 pró­sent eða sem nemur 338 þús­und krónum á mán­uði. Mikil umræða var um málið og til álita kom að Alþingi hnekkti eða breytti úrskurð­inum með laga­setn­ingu. Það var ekki gert. Haft var eftir Benedikt, sem þá var for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, milli jóla og nýárs að ólík­legt væri að Alþingi myndi hrófla við úrskurði kjara­ráðs, enda hefði kjara­ráð þar „ein­fald­lega verið að leið­rétta alls konar inn­grip und­an­far­inna ára“. 

Eins og Stundin hefur fjallað um hafa þing­menn hækkað mun meira í launum en almennir laun­þegar á und­an­förnum árum. Árið 2013 voru laun þing­manna 630.024 krónur og hafa þau því hækkað um 74,8 pró­sent á rúm­lega þremur árum. Launa­vísi­tala, sem sýnir almenna launa­þróun, hefur hins vegar aðeins hækkað um 28,9 pró­sent á sama tíma­bili.

Eitt af stóru mál­unum á þing­inu í des­em­ber var frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar um mál­efni kjara­ráðs en það fól í sér veru­lega fækkun þeirra starfs­stétta sem falla undir ákvörð­un­ar­vald kjara­ráðs auk þess sem fyr­ir­komu­lagi launa­á­kvarð­ana var breytt. 

Píratar lögðu til að kjara­ráð yrði skyldað til að birta opin­ber­lega fund­ar­gerðir sínar og leggja fram opin­ber­lega hags­muna­skrá sína en breyt­ing­ar­til­lögur þeirra voru felldar af öllum hinum flokk­unum. 

Þegar greidd voru atkvæði um málið full­yrti Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, að frum­varpið tæki „alls ekki á for­sendum þess að þetta frum­varp var tekið á dag­skrá núna“ – þ.e.a.s. því þegar kjara­ráð ákvað á kjör­dag að hækka laun þing­manna um meira en 40% á einu bretti. „Við lögðum til að þetta frum­varp yrði tekið á dag­skrá á þeim for­sendum að kjara­ráði yrðu gefin til­mæli um að end­ur­skoða ákvörðun sína. Það hefur ekki verið gert,“ sagði hún og bætti við: „Þá var ákveðið að beina þeim til­mælum til for­sætis­nefndar að tekið yrði þá á ýmsum álags­greiðslum til þing­manna ef ekk­ert yrði gert varð­andi kjara­ráð. Ekki hafa komið neinar skýrar til­lögur eða frum­varp frá for­sætis­nefnd til að gera það þannig að ég bendi á að mér finnst fárán­legt að taka þetta mál í gegn núna fyrst for­sendur fyrir því að það fór á dag­skrá eru algjör­lega brostnar.“ 

Eins og Frétta­blaðið greindi frá þann 27. des­em­ber hafði á þessum tíma mynd­ast óein­ing um það í for­sætis­nefnd hvort rétt væri að skerða álags­greiðslur. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar þótti einkum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins til­lögur um skerð­ingar á launum þing­manna ganga of langt og að með þeim væri jafn­vel vegið að lands­byggð­ar­þing­mönnum. 

Hækkun þing­far­ar­kaups­ins hefur þegar dregið dilk á eftir sér. Um miðjan jan­úar sam­þykkti bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar að aft­ur­kalla tíma­bundna frestun á launa­breyt­ingum og þiggja þannig 45 pró­senta launa­hækkun. Þetta var gert á þeim grund­velli að ljóst væri að Alþingi hygð­ist ekki hnekkja ákvörðun kjara­ráðs um hækkun þing­far­ar­kaups.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár