Fannst áhugavert að „hinar hagsýnu húsmæður“ sýndu ríkisfjármálum áhuga – biðst afsökunar

Sex konur og þrír karlar ræddu um verk­lag við opin­ber fjár­mál á Alþingi í gær. „Mér finnst áhuga­vert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum, það erum við Njáll Trausti og hinar hag­sýnu hús­mæður sem eru í stórum hópum hér inni,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra.

Fannst áhugavert að „hinar hagsýnu húsmæður“ sýndu ríkisfjármálum áhuga – biðst afsökunar

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vakti athygli á því að konur sýndu umræðum um verk­lag við opin­ber fjár­mál áhuga í umræðum á Alþingi í gær. „Mér finnst áhuga­vert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum. Það erum við Njáll Trausti og hinar hag­sýnu hús­mæður sem eru í stórum hópum hér inni. Það er þannig að það skiptir afar miklu máli að tala um þetta,“ sagði Benedikt í sér­stökum umræðum sem Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, átti frum­kvæði að. 

Uppfært 7. febr­úar kl. 18: Benedikt hefur beðist afsök­unar á ummælum sínum. Hann skrifar á Facebook: „Í ræðu­stól Alþingis vís­aði ég til þing­kvenna sem hag­sýnna hús­mæðra. Það var til­raun til þess að gefa hnyttið and­svar við fyrri ræðu, en hún heppn­að­ist afleit­lega. Um leið og ég heyrði mig segja þetta hugs­aði ég: „Þú ert nú ekki alltaf jafn orð­hepp­inn Benedikt.“ Þetta voru kjána­leg ummæli og ég biðst afsök­unar á þeim.“

Í upp­hafs­ræðu sinni velti Bjarkey fyrir sér hvort fram­setn­ingin á fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar væri til þess fallin að skapa fag­lega umræðu um málið á þing­inu. „Meg­in­á­herslan í fjár­mála­stefn­unni er heild­ar­af­koma og skuldir, en helstu lyk­il­tölur eru ekki birtar, t.d. hver lands­fram­leiðslan verður í millj­örðum króna. Sú tala er ekki gefin upp í spá Hag­stof­unnar og öll fram­setn­ing byggir á hlut­föllum en ekki jafn­framt á tölum,“ sagði hún og bætti við: „Þar sem fjár­mála­stefna er bæði ætluð sér­fræð­ingum og almennum borg­urum spyr ég fjár­mála­ráð­herra hvort hann telji ekki æski­legt að stefnan verði sett upp sam­kvæmt báðum aðferðum, bæði út frá gagn­sæi og út frá því að auð­velda ólíkum hópum að meta stefn­una.“ 

Í svari sínu sagði Benedikt að sam­an­burður fjár­mála­stefnu við raun­tölur yrði sýndur í fram­tíð­inni. „Við erum ekki komin enn á þann stað að geta sýnt slíkan sam­an­burð vegna þess hve stutt er síðan lögin komust í fram­kvæmd og engar tölur að bera saman við, en ég er sam­mála þing­mann­inum um að slíkur sam­an­burður er afar mik­il­vægur.“

Bjarkey sagði að það hefði loðað við frá því að hún kom fyrst inn á þing 2004 að þing­sal­ur­inn tæmd­ist alltaf þegar farið væri að tala um fjár­lög eða fjár­mál. „Það loðir enn við og núna þegar við ætlum að fara að sýna auk­inn aga og aðhald í fjár­málum er mik­il­vægt að sem flestir geti skilið um hvað málið snýst. Til þess þurfum við líka tölur. Ég held að við getum sett þær fram án þess að það sé vill­andi með því að taka fram með hvaða hætti við ákveðum að gera þær sam­an­burð­ar­hæfar milli ára.“

Benedikt tók undir þetta. Þá sagði hann áhuga­vert að sjá fjölda kvenna sýna verk­lagi við opin­ber fjár­mál áhuga en sex konur og þrír karlar tóku þátt í umræð­unum. „Þetta er lík­leg­ast mik­il­væg­asta mál­efni kjör­tíma­bils­ins. Þarna erum við að marka stefn­una, marka rammann, og vel að merkja, þegar búið verður að marka þann ramma er þetta orðið stefna Alþingis og við munum haga okkur í sam­ræmi við hana.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár