„Ekki útilokað“ að verkefnum Fjármálaeftirlitsins verði útvistað

Fjár­mála­ráðu­neytið óskaði eftir afstöðu FME til útvist­unar eft­ir­lits­verk­efna. „Ræddur hjá stofn­un­inni sá mögu­leiki að útvista hluta af starf­semi upp­lýs­inga­tækni­mála.“

„Ekki útilokað“ að verkefnum Fjármálaeftirlitsins verði útvistað

Ekki er úti­lokað að ein­stökum verk­efnum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins verði útvi­stað í fram­tíð­inni. Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar, for­manns efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. Óli Björn spurði alla ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar hvort þeir hefðu látið kanna kosti þess og galla að útvista starf­semi opin­berra eft­ir­lits­stofn­ana til einka­að­ila.

„Ráðherra hefur ekki látið kanna kosti og galla þess að útvista starf­semi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í til­efni af fyr­ir­spurn­inni var óskað eftir afstöðu stofn­un­ar­innar til þessa. Í svari hennar til ráðu­neyt­is­ins kom fram að hún hefði ekki lagt heild­stætt mat á kosti þess og galla að útvista starf­sem­inni að hluta eða öllu leyti,“ segir í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Sér­stak­lega var þó upp­lýst að fyrir nokkrum árum hefði verið ræddur hjá stofn­un­inni sá mögu­leiki að útvista hluta af starf­semi upp­lýs­inga­tækni­mála. Nið­ur­staðan þá hefði verið sú að slíkt kæmi ekki til greina en að á kom­andi miss­erum kynni við­horf til þessa þó að breyt­ast í ljósi þess að upp­lýs­ingar væru í síauknum mæli vistaðar í tölvu­skýjum.“ Þá segir jafn­framt: „Ráðherra telur ekki úti­lokað að útvistun ein­stakra verk­efna Fjár­mála­eft­ir­lits­ins geti komið til greina í fram­tíð­inni. Slíkt verði þó að meta hverju sinni með hlið­sjón af þeim reglum og alþjóð­legu skuld­bind­ingum sem um starf­sem­ina gilda sem og mögu­leikum í tækni­um­hverfi og þá ekki síst með til­liti til örygg­is­sjón­ar­miða.“

Útvistun er þýð­ing á enska orð­inu „outsourcing“ og lýsir því þegar stofnun felur utan­að­kom­andi aðilum, svo sem einka­fyr­ir­tækjum, að sinna til­tek­inni þjón­ustu fyrir sig eða verk­efnum gegn greiðslu. Í útvist­un­ar­stefnu rík­is­ins, sem sam­þykkt var í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2006, er útvistun lýst sem þjón­ustu „sem ríkið kaupir af utan­að­kom­andi aðilum, þ.e. ein­stak­lingum, fyr­ir­tækjum, sjálfs­eign­ar­stofn­unum, félaga­sam­tökum eða sveit­ar­fé­lögum, hvort sem um er að ræða þjón­ustu sem keypt er vegna verk­efna sem ríkið sinnir sjálft eða þjón­ustu sem verk­taka er falið að veita almenn­ingi og fyr­ir­tækjum“. Markmið stefn­unnar var „gott sam­starf við einka­að­ila um úrlausn opin­berra verk­efna þar sem ríkið er ávallt upp­lýstur kaup­andi“. 

Sjá einnig:

Samn­ingur við Frum­herja dæmi um skyn­sam­lega útvistun eft­ir­lits­verk­efnis
Kannar hvort útvista megi eft­ir­lits­verk­efnum hins opin­bera í rík­ari mæli

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár