Bjarni Benediktsson fær að „njóta vafans“

Eftir „ólíð­andi“ skýrslu­mál fær Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að „njóta vafans“, að sögn Pawels Bartoszeks, þing­manns Við­reisnar. Bjarni verður því for­sæt­is­ráð­herra í skugga þess að hann ákvað að koma í veg fyrir birt­ingu skýrslu um umfang aflandseigna Íslend­inga, sem er áfell­is­dómur yfir stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Bjarni Benediktsson fær að „njóta vafans“
Bjarni Bene­dikts­son Formaður Sjálf­stæð­is­fokks­ins verður for­sæt­is­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn. Mynd: Pressphotos/Geirix

Þrátt fyrir að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ákveðið að birta ekki skatta­skjóls­skýrslu, sem gagn­rýnir harð­lega aðgerð­ar­leysi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrr en eftir kosn­ingar, og að vinnu­brögðin hafi verið „ólíð­andi“, mun Bjarni „njóta vafans“ og verða næsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Þetta kemur fram í við­tali við Pawel Bartoszek, þing­mann Við­reisnar, við Morg­un­blaðið í dag. 

„Bjarni fór vel yfir þetta frá sín­um sjón­ar­hóli og við vilj­um trúa því að hann hafi að minnsta kosti ekki haft neinn sér­stak­an ásetn­ing í þessu máli. Það breyt­ir þó ekki því að vinnu­brögðin eru ekki til fyr­ir­mynd­ar – langt í frá,“ segir Pawel.

„Ólíðandi“

Pawel BartoszekNýr þing­maður Við­reisnar treystir Bjarna þrátt fyrir „óvið­un­andi“ skýrslu­mál.

Haft er eftir Pawel að skýrslu­málið sé „ólíð­andi“. Fram hefur komið að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, sem sjálfur átti eignir í skatta­skjóli, ákvað að birta ekki skýrslu um umfang eigna Íslend­inga í skatta­skjóli fyrir kosn­ingar. Jafn­framt hefur komið fram að efni skýrsl­unnar er áfell­is­dómur yfir „aðgerð­ar­leysi“ Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna skattaund­an­skota og „afland­svæð­ingu“ íslenskra við­skipta í valda­tíð flokks­ins. Auk þess hefur komið fram að Bjarni sagði ósatt í við­tali við Rík­is­út­varpið um málið. Hann sagði að hann hefði fengið skýrsl­una eftir að Alþingi var slitið og því ekki náð að kynna hana þar fyrir kosn­ingar. Skýrslan var hins vegar afhent ráðu­neyti hans 13. sept­em­ber, mán­uði áður en Alþingi var slitið. Loks hafði merk­ing á for­síðu skýrsl­unnar, sem sagði „sept­em­ber 2016“, verið gerð ólæsi­leg fyrir birt­ingu hennar.

Þrátt fyrir gagn­rýni á vinnu­brögð og hags­muna­stöðu Bjarna í mál­inu verður hann gerður að for­sæt­is­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar sem til­kynnt er um í dag. 

Pawel seg­ist, í sam­tali við Morg­un­blaðið, treysta honum til að leiða rík­is­stjórn. „Mér fannst svör Bjarna þó vera þess eðlis að ég treysti hon­um til að leiða rík­is­stjórn. Ég er per­sónu­lega til­bú­inn að leyfa hon­um að njóta vafans.“

Vildi ekki „kosningasamhengi“

Áður hefur komið fram að Bjarni geymdi 40 millj­ónir króna í aflands­fé­lagi, leyndi því, gaf skatta­yf­ir­völdum rangar upp­lýs­ingar um skrán­ingu félags­ins og neit­aði því, aðspurður í við­tali við Kast­ljósið, að hafa átt eignir í skatta­skjóli.

Boðað var til kosn­inga síð­ast­liðið vor vegna umræðu um skatta­skjóls­eignir stjórn­mála­manna. Fram kom við svo­kall­aðan Panama-leka, úr lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefði átt skatta­skjóls­fé­lag með eig­in­konu sinni, án þess að láta vita af því, með veru­legar kröfur á hendur þrota­búum íslensku bank­anna á sama tíma og Sig­mundur átti við­ræður vegna þess. Bjarni útskýrði ákvörðun sína um að fresta birt­ingu skýrsl­unnar með því að hann vildi ekki „setja skýrsl­una í kosn­inga­sam­hengi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár