Forsætisráðherra fór með rangt mál um efni skýrslunnar

Bjarni Bene­dikts­son full­yrðir að það sé „ekk­ert sér­stakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggj­ast að gera“. Hið rétta er að starfs­hóp­ur­inn gagn­rýnir sér­stak­lega hve seint CFC-reglur voru lög­festar á Íslandi og telur að „stjórn­völd hafi að þessu leyti byrgt brunn­inn þegar barnið var dottið ofan í“.

Forsætisráðherra fór með rangt mál um efni skýrslunnar

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að í skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga hefði ekki verið bent á neitt sér­stakt sem stjórn­völd hefðu van­rækt að gera til að vinna gegn skattaund­anskotum og flutn­ingi fjár­muna í aflands­fé­lög.

Hið rétta er að í skýrsl­unni er fundið sér­stak­lega að því að stjórn­völd hafi, á árunum fyrir hrun, hunsað ráð­legg­ingar sér­fræð­inga um að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf á Íslandi. Leitt er líkum að því að með lög­fest­ingu slíkra reglna hefði mátt koma í veg fyrir að afland­svæð­ingin sem átti sér stað á útrás­ar­ár­unum yrði jafn umfangs­mikil og raun ber vitni.

„Ólíklegt er að fjár­magns­flótt­inn hefði orðið eins mik­ill ef hér hefðu gilt sömu reglur og á hinum Norð­ur­lönd­unum,“ segir í skýrsl­unni þar sem sér­stakur kafli er helg­aður þessu umfjöll­un­ar­efni. Þá er vikið að mál­inu í öðrum köflum skýrsl­unnar og í reifun á nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins.

Bjarni hefur áður verið stað­inn að ósann­indum um það hvenær umræddri skýrslu var skilað til hans í fjár­mála­ráðu­neytið. Nú hefur hann einnig farið með rangt mál um efn­is­at­riði skýrsl­unnar. 

„Hvaða efnisatriði voru það?“

Rætt var um skýrsl­una í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Bjarna Bene­dikts­son hvort hann hefði, sem fjár­mála­ráð­herra, vís­vit­andi dregið að birta bæði skýrsl­una um aflandseignir Íslend­inga og skýrslu um skipt­ingu höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána vegna þess að skýrsl­urnar hefðu ellegar haft slæm áhrif á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum. Bjarni neit­aði því og sagði meðal ann­ars:

„Í aflands­skýrslu­mál­inu; hvaða efn­is­at­riði voru það sem komu í veg fyrir að hátt­virtur þing­maður gæti beitt sér og sett Panama-skjölin ræki­lega á dag­skrá eins og hátt­virtur þing­maður Birgitta Jóns­dóttir gerði svo eft­ir­minni­lega í sjón­varps­sal dag­inn fyrir kosn­ingar eða allir aðrir sem vildu gera þetta að hinu stóra kosn­inga­máli? Hvaða efn­is­at­riði voru það í skýrsl­unni sem hv. þing­maður hefði svo gjarnan viljað hafa? Er það að erfitt sé að leggja mat á þetta? Er það að við séum í stór­kost­legum gagna­skorti með þessi mál? Er það að það er ekk­ert sér­stakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggj­ast að gera til þess að koma í veg fyrir þessi mál? Hvaða efn­is­at­riði eru það sem hefðu getað bjargað Sam­fylk­ing­unni í síð­ustu kosn­ingum ef þau hefðu bara legið fyrir áður en kosið var?“

Ein af nið­ur­stöðum skýrsl­unnar um aflandseignir Íslend­inga er sú að Íslend­ingar hefðu átt að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf miklu fyrr en gert var. Vikið er að þessu í 2. kafla skýrsl­unnar, 8. kafla hennar og í fjórða við­auka. Þau ummæli Bjarna að það sé „ekk­ert sér­stakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggj­ast að gera til þess að koma í veg fyrir þessi mál“ eru því röng.

Reglur ekki settar fyrr en árið 2009

Skamm­stöf­unin CFC stendur fyrir controlled for­eign companies en slík lög­gjöf er alþekkt úrræði á sviði skatta­réttar sem heim­ilar skatta­yf­ir­völdum í heima­landi að skatt­leggja tekjur félaga á lág­skatta­svæðum með tekjum þeirra skatt­borg­ara sem eiga eða stjórna félög­unum. „Sem dæmi má nefna að Banda­ríkin inn­leiddu CFC-lög­gjöf á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og Danir, Svíar og Norðmenn fyrir 2004, en henni er ætlað að hindra leynd og skattsnið­göngu með mála­mynda­eign­ar­haldi í gegnum aflands­svæði. Á Íslandi tóku regl­urnar aftur á móti ekki gildi fyrr en 2011, þegar allt var um garð gengið,“ segir í skýrsl­unni. 

Frumvarp um CFC-lög­gjöf­ina var sam­þykkt á Alþingi í apríl 2009, fáeinum mán­uðum eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar fór frá völdum. Hug­myndin að setn­ingu slíkra laga hafði þó komið fram mörgum árum fyrr eins og lýst er í skýrsl­unni: „Í skýrslu starfs­hóps um umfang skattsvika á Íslandi frá des­em­ber 2004, sem fjár­mála­ráð­herra lagði fyrir Alþingi á 131. lög­gjaf­ar­þingi 2004-2005, kom m.a. fram að hraða þyrfti setn­ingu svo­kall­aðra CFC-ákvæða (e. Controlled Foreign Companies) í íslenska skatta­lög­gjöf til að koma í veg fyrir mögu­leg skatt­svik með stofnun aflands­fé­laga í skatta­skjólum. Þrátt fyrir þessi til­mæli starfs­hóps­ins virð­ist sem stjórn­völd hafi á þessum tíma haft efa­semdir um nauð­syn þess að setja slíka lög­gjöf.“ Starfs­hóp­ur­inn telur „sterk rök hníga hins vegar til þess að meiri festa hefði verið á umgengni íslenskra aðila við aflands­fé­lög hefði þessi lög­gjöf verið tekin upp hér á landi á þeim tíma sem það var lagt til“. Í Banda­ríkj­unum hafi sam­svar­andi lög­gjöf verið tekin upp löngu fyrir alda­mót og á hinum Norð­ur­lönd­unum strax í upp­hafi ald­ar­innar, árin 2002 og 2003. „Á Íslandi er það aftur á móti ekki fyrr en með lögum nr. 46/2009 sem sam­þykkt voru á Alþingi 15. apríl 2009, sem CFC-ákvæðið kemur inn í tekju­skattslögin.“ 

Byrgðu brunninn þegar barnið var dottið ofan í

Fram kemur að „með til­liti til þess mála­mynda­fjár­magns­flótta sem hér átti sér stað á árunum 2003-2008“ megi segja að „stjórn­völd hafi að þessu leyti byrgt brunn­inn þegar barnið var dottið ofan í“. Ólíklegt sé að fjár­magns­flótt­inn hefði orðið eins mik­ill ef hér hefðu gilt sömu reglur og á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Þá er getum leitt að því að fjár­mála­hrunið árið 2008 hefði orðið væg­ara, „fallið“ orðið „minna“ ef ráð­legg­ingum sér­fræð­inga um setn­ingu CFC-lög­gjafar hefði verið fylgt: „Þessir fjár­magns­flutn­ingar léku veiga­mikið hlut­verk í fjár­mála­væð­ingu fyrsta ára­tugar ald­ar­innar. Því má jafn­vel leiða getur að því að ef þetta hefði verið gert fyrr hefði eigna­verðs- og útlána­þensla þessa tíma­bils orðið væg­ari en raunin varð og fallið minna.“

Eins og Stundin hefur áður greint frá voru 20 þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una á Alþingi þegar CFC-lög­gjöfin var loks inn­leidd í íslenskan rétt á Alþingi þann 15. apríl 2009. Hvorki Bjarni Bene­dikts­son né Ólöf Nordal, núver­andi for­ystu­menn flokks­ins, voru við­stödd atkvæða­greiðsl­una en þau eiga það sam­eig­in­legt að tengj­ast aflands­fé­lögum sem koma fyrir í Panama-skjöl­unum.  Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, núver­andi ráð­herra Við­reisnar, gegndi vara­for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum á þessum tíma og var einnig fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una.  

Biðst ekki afsökunar

Í skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga er sett fram gagn­rýni á þá stefnu sem rekin var á árunum fyrir hrun á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits. Varpað er ljósi á and­vara- og aðgerða­leysi íslenskra stjórn­valda gagn­vart stór­felldri aukn­ingu skattaund­an­skota og notkun Íslend­inga á aflands­fé­lögum, einkum á útrás­ar­ár­unum þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður sama flokks, tók ákvörðun um að fresta birt­ingu skýrsl­unnar fram yfir þing­kosn­ingar, en efnt var til haust­kosn­inga í kjöl­far umfjöll­unar um Panama-skjölin og harðra við­bragða almenn­ings við upp­lýs­ingum um tengsl þriggja ráð­herra við aflands­fé­lög. 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna á Alþingi í dag hvort hann teldi ekki til­efni til að biðja Alþingi afsök­unar á að hafa frestað birt­ingu skýrsl­unnar, auk skýrslu sem fjall­aði um skipt­ingu leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu niður á þjóð­fé­lags­hópa en sú skýrsla var ekki birt fyrr en um tveimur árum eftir að óskað var eftir henni. Bjarni baðst ekki afsök­unar en rifj­aði upp að í stjórn­ar­tíð vinstri­st­jórn­ar­innar hefði stundum ekki náðst að svara fyr­ir­spurnum frá þing­mönnum innan tíma­marka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár