Bjarni neitar að svara spurningum þingnefndar: „Samskipti nýrrar ríkisstjórnar við þingið fara illa af stað“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýna Bjarna Bene­dikts­son harð­lega.

Bjarni neitar að svara spurningum þingnefndar: „Samskipti nýrrar ríkisstjórnar við þingið fara illa af stað“

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, neitar að koma fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis og svara fyrir með­höndlun sína á skýrslu um aflandseignir Íslend­inga. Sem kunn­ugt er ákvað Bjarni að fresta birt­ingu skýrsl­unnar fram yfir þing­kosn­ingar og greindi svo rangt frá mála­vöxtum í fjöl­miðlum. Skýrslan reynd­ist vera þungur áfell­is­dómur yfir stefn­unni sem rekin var á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits á þeim árum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið en Bjarni, for­maður flokks­ins, hefur við­ur­kennt að hafa ekki viljað að skýrslan yrði sett í „kosn­inga­sam­hengi“. 

Píratar upp­lýstu um þá ákvörðun ráð­herr­ans að afþakka fund­ar­boð nefnd­ar­innar í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef flokks­ins gær. „Nefnd­ar­mönnum efna­hags- og við­skipta­nefndar bár­ust þær fregnir að for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, hyggst ekki koma á fund nefnd­ar­innar til þess að ræða fram­göngu sína við birt­ingu skýrslu um mat á umfangi eigna Íslend­inga á aflands­svæðum,“ segir þar. „Ráðherra telur sig ekki hafa meira um málið að segja á þessu stigi enda hafi hann tjáð sig um málið opin­ber­lega.“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fjall­aði um fram­göngu Bjarna á Facebook-síðu sinni í morgun.

Fram kemur að hún hafi beðið um fund í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis þann 7. jan­úar til að fara yfir skýrsl­una. „Þegar í ljós kom að sú skýrsla hafði ekki verið birt í haust þegar hún var til­búin var óskað eftir því að þáver­andi fjár­mála­ráð­herra kæmi fyrir nefnd­ina. Síðan þá hefur verið reynt að finna tíma fyrir fund­inn sem hent­aði ráð­herra. Í gær­kvöldi berst svo bréf um að ráð­herra muni ekki mæta fyrir nefnd­ina þar sem hann hafi þegar skýrt sitt mál fyrir fjöl­miðlum,“ skrifar Katrín og bætir við: „Þarna er ólíku saman að jafna og óásætt­an­legt að ráð­herrar telji það nægj­an­legt að skýra slík mál fyrir fjöl­miðlum. Sam­skipti nýrrar rík­is­stjórnar við þingið fara illa af stað.“

Telja stöðu þingsins veikari eftir ráðherraskipti

Þingmenn Pírata og þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, Svandís Svav­ars­dóttir, bentu á það í síð­ustu viku að til­færsla Bjarna úr emb­ætti fjár­mála­ráð­herra í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra kynni að setja strik í reikn­ing­inn að því er varðar athugun Alþingis á fram­göngu ráð­herr­ans og með­höndlun hans á aflandseigna­skýrslu. 

Í yfir­lýs­ingu frá þing­flokki Pírata sem birt­ist 9. jan­úar var þess kraf­ist að málið yrði tekið fyrir í efna­hags- og við­skipta­nefnd áður en ný rík­is­stjórn tæki form­lega við þannig að Bjarni Bene­dikts­son myndi fyrir vinnu­brögð sín sem fjár­mála­ráð­herra. „Það mundi veikja stöðu þings­ins, sem fer með eft­ir­lits­hlut­verk gagn­vart ráð­herra, að þurfa mögu­lega að yfir­heyra nýjan for­sæt­is­ráð­herra vegna verka sem ekki lengur heyra undir hans lög­form­legu ábyrgð.“ 

Svandís Svav­ars­dóttir tók í sama streng í morg­un­út­varpi Rásar 2 dag­inn eftir. „Það er nátt­úru­lega vand­ræða­legt að for­maður VG biður um fund í efna­hags- og við­skipta­nefnd – og hún gerir það strax á laug­ar­dag­inn – áður en loka­yf­ir­lýs­ing Bjarna kemur fram í mál­inu. Það liggur fyrir að hún mun fá fund í efna­hags- og við­skipta­nefnd á fimmtu­dag­inn … þegar bæði er kom­inn annar for­maður í nefnd­inni, vænt­an­lega, og annar ráð­herra í ráðu­neytið. Þannig að það er engu lík­ara en að það standi til að gæta þess sér­stak­lega að Bjarni sé í raun og veru kom­inn í önnur verk­efni þegar það kemur að því að ræða málin,“ sagði hún.

„Það er engu lík­ara en að það standi til að gæta þess sér­stak­lega að Bjarni sé kom­inn í önnur verk­efni þegar kemur að því að ræða málin“

Nú er ljóst að Bjarni er ekki aðeins kom­inn „í önnur verk­efni þegar kemur að því að ræða málin“ heldur hefur hann ákveðið að mæta ekki á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. 

„Mér finnst algjör­lega ótækt að for­sæt­is­ráð­herra vilji ekki gera grein fyrir verkum sínum fyrir nefnd­inni. Með slíkri neitun vegur hann að eft­ir­lits­hlut­verki Alþingis,“ segir í tölvu­pósti sem Smári McCarthy, full­trúi Pírata í efna­hags- og við­skipta­nefnd, sendi nefnd­ar­mönnum í gær. „Það að hafa veitt fjöl­miðlum svör er allt annað en að hafa veitt þing­inu við­un­andi svör. Ég ítreka því ósk um fund með for­sæt­is­ráð­herra vegna máls­ins.”

Haft er eftir Birgittu Jóns­dóttur á vef flokks­ins að það sé sjálf­sögð krafa að ráð­herra gegni lög­bundnu hlut­verki sínu gagn­vart þing­inu og að sama skapi skylda þing­manna að veita fram­kvæmda­vald­inu aðhald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár