Benedikt segir ráðherra ekki hafa áhuga á aukinni þróunaraðstoð

Fram­kvæmda­stjóri SOS barna­þorp­anna segir stefnu rík­is­stjórn­ar­innar á sviði þró­un­ar­að­stoðar „lýsa ákveð­inni sjálfselsku þjóðar sem hefur nóg til alls.“ Fjár­mála­ráð­herra kennir ótil­greindum ráð­herra eða ráð­herrum um að ekki sé meiri fjár­munum varið til þró­un­ar­að­stoðar en raun ber vitni.

Benedikt segir ráðherra ekki hafa áhuga á aukinni þróunaraðstoð

Þró­un­ar­að­stoð er ekki „áhuga­mál“ allra ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá þessu á opnum fundi Við­reisnar í kvöld. 

Eins og Stundin hefur áður greint frá gerir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar ráð fyrir að Ísland verði áfram undir með­al­tali OECD-ríkja og langt undir með­al­tali Norð­ur­land­anna hvað varðar fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu sem hlut­fall af vergum þjóð­ar­tekjum næstu fimm ári. Var fjár­mála­ráð­herra gagn­rýndur fyrir þetta á fundi Við­reisnar í dag og spurður hvort ekki mætti gera betur. 

„Jújú, auð­vitað er hægt að gera betur á þessu sviði en þá þurfum við að taka pen­ing­ana ein­hvers staðar ann­ars staðar og það er bara ákvörðun sem þarf að taka,“ svar­aði Benedikt. „Þetta er áhuga­mál margra í rík­is­stjórn­inni að auka þetta en kannski ekki alveg allra.“

„Þetta er áhuga­mál margra í rík­is­stjórn­inni að auka þetta en kannski ekki alveg allra“

Árið 2013 náð­ist þverpóli­tísk sátt um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu á Alþingi. 39 þing­menn úr öllum flokkum sam­þykktu þings­á­lyktun þar sem mörkuð var sú stefna að árið 2019 rynnu 0,7% af vergum þjóð­ar­tekjum Íslend­inga til þró­un­ar­mála. Þetta eru hátt í þrefalt hærri fram­lög en núver­andi rík­is­stjórn vill verja til mála­flokks­ins árið 2019 og allt til árs­ins 2022.

Framlög Íslend­inga til þró­un­ar­sam­vinnu nema 0,25% af vergum þjóð­ar­tekjum á þessu ári og sam­kvæmt áætl­unin fjár­mála­ráð­herra munu þau nema 0,26% út áætl­un­ar­tíma­bil fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar. 

Ragnar Schram, fram­kvæmda­stjórir SOS Barna­þorp­anna á Íslandi, skil­aði fjár­laga­nefnd Alþingis umsögn um fjár­mála­á­ætl­un­ina í dag. Þar harmar hann stefnu rík­is­stjórn­ar­innar hvað varðar fram­lög til þró­un­ar­mála.

„Í ljósi þess að Ísland hefur stutt mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna í áraraðir um að iðn­ríki skuli veita sem nemur 0,7% af vergum þjóð­ar­tekjum í þró­un­ar­sam­vinnu verður að segja að umrædd mark­mið um 0,26% eru allt of lág og lýsa ákveð­inni sjálfselsku þjóðar sem hefur nóg til alls,“ skrifar Ragnar.

„Lýsa ákveð­inni sjálfselsku
þjóðar sem hefur nóg til alls“

Þá gerir hann athuga­semd við þá aðferða­fræði rík­is­stjórn­ar­innar að setja þró­un­ar­sam­vinnu ann­ars vegar og mót­töku flótta­manna og hæl­is­leit­enda hins vegar undir sama hatt í fjár­mála­á­ætl­un­inni. Með þessu sé verið að „klípa af þró­un­ar­lönd­unum það sem þau ættu að fá sam­kvæmt ákvörð­unum stjórn­valda“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár