Ráðherra fékk mótframbjóðanda sinn á fund

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vék stutt­lega af þing­fundi á þriðju­dag meðan fjár­mála­á­ætlun hans var til umræðu til að funda með mót­fram­bjóð­anda sínum til for­manns Holl­vina­fé­lags Mennta­skól­ans í Reykja­vík. „Þetta kall­ast nefni­lega að sitja beggja vegna borðs­ins, og er ein­fald­lega ekki í lagi,“ segir þing­kona Pírata.

Ráðherra fékk mótframbjóðanda sinn á fund

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vék stutt­lega af þing­fundi á þriðju­dag meðan fjár­mála­á­ætlun hans var til umræðu til að funda með mót­fram­bjóð­anda sínum til for­manns Holl­vina­fé­lags Mennta­skól­ans í Reykja­vík. 

„Það var ánægju­legt að hitta Benedikt og áttum við mál­efna­legt sam­tal um fram­tíð og til­gang Holl­vina­fé­lags­ins og kosn­ing­arnar sem ég tel að verði afar spenn­andi,“ skrifar Hrafn­kell Hringur Helgason, sem býður sig fram gegn Benedikt, í stöðu­upp­færslu um málið á Facebook. 

Benedikt hefur sætt gagn­rýni fyrir að sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem for­maður holl­vina­fé­lags fram­halds­skóla meðan hann gegnir emb­ætti fjár­mála­ráð­herra.

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, full­yrðir að það sé „hags­muna­árektstur með meiru að fjár­mála­ráð­herra fari með for­manns­stöðu í sam­tökum sem eru bein­línis stofnuð til þess að verja hags­muni skól­ans gagn­vart nið­ur­skurði rík­is­ins í garð fram­halds­skóla­kerf­is­ins á sama tíma og hann situr sjálfur með nið­ur­skurð­ar­hníf­inn í hend­inni“. Segir hún að slíkt rýri trú­verð­ug­leika Bene­dikts sem fjár­mála­ráð­herra.

„Mun hann nota aðstöðu sína til þess að hygla einum fram­halds­skóla umfram öðrum þar sem hann er nú kom­inn í stöðu til þess? Fjár­mála­ráð­herra þarf að vera haf­inn yfir allan vafa í svona málum. Þetta kall­ast nefni­lega að sitja beggja vegna borðs­ins, og er ein­fald­lega ekki í lagi,“ skrifar Ásta Guðrún á Facebook, en fleiri núver­andi og fyrr­ver­andi þing­menn hafa furðað sig á mál­inu á sam­fé­lags­miðlum.

Enn hafa ekki verið birtar upp­lýs­ingar um mót­fram­boðið gegn Benedikt Jóhann­essyni á vef Mennta­skól­ans í Reykja­vík né á vef Holl­vina­fé­lags skól­ans. Í stöðu­upp­færslu sinni á þriðju­dag sagði Hringur að Benedikt hefði heitið sér „að hann myndi hlut­ast til um að aðal­fund­ar­gögn yrðu leið­rétt og til­kynnt yrði um fram­boð“ hans. Ekki hefur ræst úr því. 

„Það kemur mér á óvart og mér finnst þetta vont. Ég hélt að venjan væri sú, þegar kosið er í stjórn og for­mennsku félaga, að til­kynnt væri um fram­komin fram­boð þegar fram­boðs­frestur rynni út. Hér sýn­ist mér að ekki sé gætt jafn­ræðis milli fram­boðs míns og fram­boðs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra,“ segir Hrafn­kell Hringur í sam­tali við Stundina. 

„Hér sýn­ist mér að ekki sé gætt jafn­ræðis milli fram­boðs míns og fram­boðs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra“

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem Benedikt kynnti í apríl, verður dregið veru­lega úr fjár­fram­lögum til fram­halds­skóla­stigs­ins næstu fimm árin og árið 2018 mun mennta­kerfið sæta fjór­falt strang­ari aðhalds­kröfu en gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar. Stjórn­endur fram­halds­skól­anna og fram­halds­skóla­kenn­arar hafa gagn­rýnt áætl­un­ina harð­lega. Þá hefur rík­is­stjórnin einnig sætt gagn­rýni vegna áforma um sam­ein­ingu Fjöl­brauta­skól­ans í Ármúla og Tækni­skóla Íslands. 

Benedikt er ekki eini ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem lætur sig mál­efni Mennta­skól­ans í Reykja­vík varða, því Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, gefur einnig kost á sér til stjórn­ar­setu í félag­inu. Aðal­fund­ur­inn fer fram á laug­ar­dag­inn á hátíð­ar­sal skól­ans. 

Uppfært kl. 19:30: Upp­lýs­ingar um aðal­fund­inn á vef MR voru leið­réttar að frum­kvæði skóla­stjórn­enda eftir að fréttin birt­ist. Nokkru seinna var skjal­inu á vef Holl­vina­fé­lags­ins einnig breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár