Umhverfisstofnun greip inn í hjá United Silicon

Kís­il­verk­smiðj­unni nærri byggð­inni í Reykja­nesbæ var bannað að ræsa ofna sína fyrr en úrbætur hefðu verið gerðar á meng­un­ar­vörnum.

Umhverfisstofnun greip inn í hjá United Silicon
Mikil mengun Íbúar í Reykja­nesbæ hafa fengið sig fullsadda af reyk- og lykt­ar­mengun sem berst frá United Silicon.

Umhverf­is­stofnun gaf kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon þau fyr­ir­mæli að ekki mætti kveikja á ofni verk­smiðj­unnar í Helguvík fyrr en úrbætur hefðu  verið gerðar vegna fjöl­margra athuga­semda stofn­un­ar­innar um meng­un­ar­varnir. Slökkt var á ofni United Silicon vegna vinnu­slyss sem þar varð á dög­unum en einn af starfs­mönnum United Silicon fékk í sig raf­magn.

Stundin hefur und­an­farnar vikur fjallað ítar­lega um óánægju íbúa sveit­ar­fé­lags­ins með mikla mengun sem hefur borist yfir byggð frá kís­il­málm­verk­smiðj­unni. Um er að ræða stæka bruna­lykt sem aldrei var gert ráð fyrir og íbúum var aldrei gert grein fyrir í aðdrag­anda útgáfu starfs­leyfis verk­smiðj­unnar. Umhverf­is­stofnun gaf út starfs­leyfið en Stundin hefur farið í gegnum öll þau gögn sem lágu til grund­vallar þeirri ákvörðun og er sömu sögu að segja þar, hvergi er gert ráð fyrir lykt­ar­mengun.

Verk­smiðjan tók til starfa síð­asta haust og þann 11. októ­ber var kveikt upp í fyrsta ofni verk­smiðj­unnar af fjórum sem áætlað er að taka í notkun á næsta ára­tug. Snemma í nóv­em­ber fóru íbúar að finna fyrir reyk- og lykt­ar­mengun frá verk­smiðj­unni. Í kjöl­farið barst Umhverf­is­stofnun fjöl­margar kvart­anir frá íbúum og hefur síðan þá farið í fjórar eft­ir­lits­ferðir í verk­smiðj­una. Í þessum fjórum eft­ir­lits­ferðum voru skráð niður fjöld­inn allur af frá­vikum sem stofn­unin hefur nú kraf­ist að ráð­ist verði í úrbætur á. Íbúar hafa þó ekki sagt sitt síð­asta og hefur hópur þeirra hrundið af stað und­ir­skrifta­söfnun þar sem skorað er á Reykja­nesbæ og Umhverf­is­stofnun að bíða með útgáfu starfs­leyfis fyrir Thorsil, hina stóru kís­il­málm­verk­smiðj­una sem ráð­gert er að verði gang­sett í Helguvík. Ef af þeirri kís­il­málm­verk­smiðju verður er ljóst að tvær stærstu kís­il­málm­verk­smiðjur í heim­inum verða í Helguvík í Reykja­nesbæ, aðeins kíló­metra frá íbúa­byggð.

United Silicon virð­ist nú hafa upp­fyllt skil­yrði Umhverf­is­stofn­unar því verkmsiðj­unni hefur verið heim­ilað að kveikja á ofn­inum.

Með­fylgj­andi mynd­band var tekið í verk­smiðju United Silicon fyrir nokkru.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.

Myndband

Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár