Bankamaður Bjarna í Sviss tjáir sig um skattaskjólsmálið

Bjarni Mark­ús­son sinnti eigna­stýr­ingu fyrir Bjarna Bene­dikts­son í Glitni og hjá Julius Baer í Sviss. Hann segir að sér „vit­an­lega“ hafi Bjarni Bene­dikts­son ekki stundað við­skipti í gegnum skatta­skjól. Ægir Birg­is­son og Baldvin Vald­irmars­son voru við­skipta­fé­lagar Bjarna í Dubaí en eign­ar­haldið á fast­eigna­verk­efn­inu lá í gegnum skatta­skjólið Seychells-eyju.

Bankamaður Bjarna í Sviss tjáir sig um skattaskjólsmálið
Hætti hjá hjá Julius Baer 2010 Bjarni Mark­ús­son hætti hjá Julius Baer árið 2010 en segir að hann geti ekki gefið það upp hvort Bjarni Bene­dikts­son hafi á þeim tíma hætt við­skiptum sínum við bank­ann. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn á Facebook

„Ekki mér vit­andi. Alls ekki,“ segir Bjarni Mark­ús­son, fyrr­ver­andi starfs­maður sviss­neska bank­ans Julius Baer sem sá um fjár­fest­ingar fyrir Bjarna Bene­dikts­son þegar hann starf­aði í bank­anum á árunum 2008 til 2010, aðspurður um hvort Bjarni hafi stundað ein­hver við­skipti í gegnum félög í skatta­skjólum eða félög tengd skatta­skjólum. Bjarni seg­ist lítið geta tjáð sig um þau við­skipti sem hann stýrði fyrir Bjarna í Julius Baer en getur þó sagt þetta. Hann seg­ist vera bund­inn af banka­leynd og geti því ekki tjáð sig um eðli þeirra við­skipta sem hann átti í fyrir hönd Bjarna í sviss­neska bank­anum. „Ég vil ekki vera lög­sóttur fyrir að brjóta banka­leynd.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttarstöðu rannsóknarþola
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár