Svæði

Seychelles-eyjar

Greinar

Flett ofan af Björgólfsfeðgum: Reikningur í skattaskjóli og bankahólf opnuð í hruninu
AfhjúpunPanamaskjölin

Flett ofan af Björg­ólfs­feðgum: Reikn­ingur í skatta­skjóli og banka­hólf opnuð í hrun­inu

Gögn frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca varpa ljósi á ótrú­lega umfangs­mikil við­skipti feðganna Björg­ólfs Guð­munds­sonar og Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í skatta­skjólum fyrir og eftir hrunið 2008. Feðgarnir tengdir meira en 50 félögum. Dóttir Björg­ólfs Guð­munds­sonar opn­aði banka­reikn­ing og banka­hólf í Sviss og neitar að segja af hverju. Óþekkt lán­veit­ing upp á 3,6 millj­arða til Tortóla­fé­lags. Félag sem Björgólfur eldri stýrði fékk millj­arð í lán sem aldrei fékkst greitt til baka. Nær öll fyr­ir­tæki Björg­ólfs Thors eru beint eða óbeint í skatta­skjóli.
Eiga fé í skattaskjólum en segjast eignalaus á Íslandi
FréttirPanamaskjölin

Eiga fé í skatta­skjólum en segj­ast eigna­laus á Íslandi

Fyrr­ver­andi eig­endur og stjórn­endur fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Sunds eru pró­kúru­hafar í þremur skatta­skjóls­fé­lögum á Seychelles-eyjum. Þeir skilja eftir sig skulda­slóð á Íslandi en nota félögin í skatta­skjól­inu til að halda utan um eignir á Íslandi. Skipta­stjóri Sunds segir að erf­ið­lega hafi gengið að inn­heimta kröfur sem fyrri eig­endur Sunds voru dæmdir til að greiða þrota­bú­inu.
Panama-skjölin: Milljarðaslóð Jóns Ásgeirs og Ingibjargar rakin í skattaskjól
Afhjúpun

Panama-skjölin: Millj­arða­slóð Jóns Ásgeirs og Ingi­bjargar rakin í skatta­skjól

Panama-skjölin sýna að Jón Ásgeir Jóhann­es­son á og teng­ist miklum eignum í skatta­skjólum þrátt fyrir að hann hafi neitað því í gegnum árin. Þau sýna umfangs­mikil við­skipti Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í félögum í skatta­skjólum heims­ins. Ingi­björg er skráður eig­andi félags­ins Guru Invest í Panama sem borg­aði upp skuldir upp á 2,4 millj­arða við Glitni og Jón Ásgeir er eig­andi Jovita Inc. í Panama meðal ann­ars.
Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi
FréttirPanamaskjölin

Panama­skjölin: Karl Wernersson stofn­aði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við millj­örðum frá Íslandi

Karl Wernersson not­aði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána pen­inga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal ann­ars við tæp­lega þriggja millj­arða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka. Karl segir að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hrun­inu. Panama­skjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrif­aði millj­arðs króna skuld móð­ur­fé­lags lyfja­versl­un­ar­innar Lyfja og heilsu á Íslandi.
Víðtæk hagsmunatengsl formanna stjórnarflokkanna
Afhjúpun

Víðtæk hags­muna­tengsl for­manna stjórn­ar­flokk­anna

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son tengj­ast skatta­skjólum og lág­skatta­svæðum bæði með beinum hætti og óbeinum. Gunn­laugur Sig­munds­son faðir Sig­mundar nýtti sér Tortóla­fé­lög í gegnum Lúx­em­borg til að taka út 354 millj­óna króna arð eftir hrun. Mik­il­væg­asta fjár­fest­ing­ar­fé­lag föð­ur­bróður Bjarna, Einars Sveins­sonar, var flutt frá Kýpur til Lúx­em­borgar með rúm­lega 800 millj­óna króna eignum. Hversu mörg önnur fyr­ir­tæki í skatta­skjólum og á lág­skatta­svæðum tengj­ast þessum for­mönnum Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks?
Bankamaður Bjarna í Sviss tjáir sig um skattaskjólsmálið
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Banka­maður Bjarna í Sviss tjáir sig um skatta­skjóls­málið

Bjarni Mark­ús­son sinnti eigna­stýr­ingu fyrir Bjarna Bene­dikts­son í Glitni og hjá Julius Baer í Sviss. Hann segir að sér „vit­an­lega“ hafi Bjarni Bene­dikts­son ekki stundað við­skipti í gegnum skatta­skjól. Ægir Birg­is­son og Baldvin Vald­irmars­son voru við­skipta­fé­lagar Bjarna í Dubaí en eign­ar­haldið á fast­eigna­verk­efn­inu lá í gegnum skatta­skjólið Seychells-eyju.

Mest lesið undanfarið ár