Bankamaður Bjarna í Sviss tjáir sig um skattaskjólsmálið

Bjarni Markússon sinnti eigna­stýringu fyrir Bjarna Benediktsson í Glitni og hjá Julius Baer í Sviss. Hann segir að sér „vitanlega“ hafi Bjarni Benediktsson ekki stundað viðskipti í gegnum skatta­skjól. Ægir Birgisson og Baldvin Vald­irmarsson voru viðskipta­félagar Bjarna í Dubaí en eignar­haldið á fasteigna­verkefninu lá í gegnum skatta­skjólið Seychells-eyju.

Hætti hjá hjá Julius Baer 2010
Hætti hjá hjá Julius Baer 2010 Bjarni Mark­ús­son hætti hjá Julius Baer árið 2010 en segir að hann geti ekki gefið það upp hvort Bjarni Bene­dikts­son hafi á þeim tíma hætt við­skiptum sínum við bank­ann. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn á Facebook

„Ekki mér vitandi. Alls ekki,“ segir Bjarni Markússon, fyrr­verandi starfs­maður svissneska bankans Julius Baer sem sá um fjár­festingar fyrir Bjarna Benediktsson þegar hann starfaði í bankanum á árunum 2008 til 2010, aðspurður um hvort Bjarni hafi stundað einhver viðskipti í gegnum félög í skatta­skjólum eða félög tengd skatta­skjólum. Bjarni segist lítið geta tjáð sig um þau viðskipti sem hann stýrði fyrir Bjarna í Julius Baer en getur þó sagt þetta. Hann segist vera bundinn af banka­leynd og geti því ekki tjáð sig um eðli þeirra viðskipta sem hann átti í fyrir hönd Bjarna í svissneska bankanum. „Ég vil ekki vera lögsóttur fyrir að brjóta banka­leynd.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráðherra hafði réttar­stöðu rannsóknar­þola

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, setti fram alvarlegar ásakanir á hendur Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra í Silfrinu síðustu helgi. Skatt­rannsóknar­stjóri telur sér ekki heimilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið réttar­stöðu rannsóknar­þola eftir kaup á gögnum um aflandsfélög Íslendinga og uppljóstr­anir Panama­skjalanna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár