68 milljarðar runnu í ríkissjóð vegna stöðugleikaframlaga á fyrri hluta ársins

Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 38 millj­arða sam­kvæmt greiðslu­upp­gjöri rík­is­sjóðs.

68 milljarðar runnu í ríkissjóð vegna stöðugleikaframlaga á fyrri hluta ársins

68 millj­arðar króna féllu rík­is­sjóði í skaut vegna stöð­ug­leika­fram­laga á fyrri helm­ingi árs­ins. Þetta kemur fram í greiðslu­upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins 2016 sem birt hefur verið á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. 

Til sam­an­burðar má nefna að sam­kvæmt fjár­lögum fyrir árið 2016 nema útgjöld til Land­spít­al­ans rúmum 54 millj­örðum. Þá hefur saman­lagður heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu nýs Land­spít­ala verið met­inn á 85 millj­arða króna. 

„Handbært fé frá rekstri batn­aði veru­lega á milli ára og var jákvætt um 37,9 ma.kr. sam­an­borið við nei­kvætt hand­bært fé upp á 30,3 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöð­ug­leika­fram­lögum á árinu 2016 sem námu 68 ma.kr á fyrri helm­ingi árs­ins,“ segir í greiðslu­upp­gjör­inu.

„Handbært fé lækkar um 79,5 ma.kr. sam­an­borið við lækkun um 37,1 ma.kr. á árinu 2015 sem skýrist að stærstum hluta af afborg­unum lána sem námu 124,9 ma.kr. á tíma­bil­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár