Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“

For­sæt­is­ráð­herra segir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evrópu eða grafa undan EES-samn­ingnum. Orð hennar falla á sama tíma og stjórn­ar­and­staðan vill stað­fest­ingu á stöðu aðild­ar­um­sókn­ar­innar og frum­varp um bókun 35 liggur aftur fyrir Alþingi.

<span>Kristrún Frostadóttir:</span> Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Vina­þjóðir Kristrún lagði áherslu á sam­starf við banda­lags­ríki og vina­þjóðir í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í Sand­gerði, til að tryggja hags­muni Íslands á róstu­sömum tímum. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir ekki koma til greina að loka á Evrópu eða grafa undan EES-samn­ingnum þótt þjóðin hafi hafnað því að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið að nýju. Stefna Sam­fylk­ing­ar­innar og rík­is­stjórn­ar­innar sé að styrkja samn­ing­inn í sessi.

Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á flokks­stjórn­ar­fundi í Sand­gerði í Suð­ur­nesjabæ í dag.

„Þó að við virðum nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um að hefja ekki aðild­ar­við­ræður að nýju við Evr­ópu­sam­bandið – þá lokum við að sjálf­sögðu ekki á Evrópu eða gröfum undan samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið,“ sagði hún.

Hún árétt­aði að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hefði ekki snú­ist um EES-sam­starfið.

„Það kemur ekki til greina. Enda var ekki kosið um neitt slíkt. Þvert á móti er það stefna Sam­fylk­ingar og rík­is­stjórnar að við stöndum okkur nú í stykk­inu og styrkjum EES-samn­ing­inn enn frekar í sessi,“ sagði hún.

ESA í mál vegna bókunar 35

Áhersla Kristrúnar á EES-samn­ing­inn …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár