Glys og glamúr á Iceland Airwaves

Tón­list­ar­veislan Iceland Airwaves fór fram um síð­ustu helgi. Þetta er annað árið sem Sena heldur hátíð­ina sem hóf göngu sína árið 1999 og hefur verið haldin árlega síðan.

Glys og glamúr á Iceland Airwaves

Iceland Airwaves átti sér stað dag­ana 6. til 9. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og eins og venju­lega var boðið upp á gríð­ar­legan fjölda tón­leika bæði íslenskra og erlendra lista­manna á fjöl­mörgum stöðum í miðbæ Reykja­víkur.  

Hápunktar tón­list­ar­há­tíð­ar­innar voru meðal ann­ars stór­tón­leikar sveit­ar­innar Of Monsters and Men í Vodafone-höll­inni á laug­ar­dags­kvöld, dul­ar­fulli grímu­klæddi kúrek­inn Orville Peck í Lista­safni Reykja­víkur, hinn geð­þekki  kanadíski Mac de Marco og harð­kjarna­sveitin Une Misére með sinn magn­aða hljóð­vegg. Aðrir sem nutu sér­stakra vin­sælda í ár voru íslenska stuð­sveitin Grísalappalísa en sveitin til­kynnti að þetta yrðu þeirra síð­ustu tón­leikar og tón­list­ar­mað­ur­inn Auður sem hefur hlotið mikið lof gagn­rýnenda fyrir síð­ustu plötu sína, Afsak­anir. 

Minna fór fyrir neð­an­jarð­ar­sen­unni á Airwaves í ár. Svo virð­ist sem bæði hátíðin og jafn­vel íslenskir lista­menn séu að færa sig meira yfir í að gera  hlust­enda­vænni tón­list hátt undir höfði, tón­list sem hljómar eins og vin­sælar útvarps­vænar erlendar hljóm­sveitir. Hátíðin var smærri í sniðum þetta árið vegna tap­rekst­urs síð­ustu ára sem Sena er að reyna að rétta af og það verður áhuga­vert að sjá hver afdrif hennar verða á næstu árum. 

Auður Auður þykir einn heit­asti íslenski tón­list­ar­maður Íslands og hefur fengið mikið lof gagn­rýnenda.
MammútEin besta rokksöng­kona lands­ins, Katrín Mogensen, steig ólétt á svið með sveit­inni Mammút.
SykurSöngkona Sykurs, Agnes Björt, heill­aði áhorf­endur með kraft­mik­illi rödd og sviðs­fram­komu.
Une MisereSjar­mer­andi sviðs­fram­koma hjá harð­kjarna­strák­unum í Une mis­ére.
Of Monsters and Men Of Monsters and Men voru með glæsi­legt sjón­ar­spil í Vodafone-höll­inni à laug­ar­dags­kvöld.
GrísalappalísaSvana­söngur Grísalappalísu var hressandi blanda af Stuð­mönnum, HAM og David Bowie.
Orville PeckTón­leikar hins grímu­klædda sam­kyn­hneigða kúreka Orville Peck voru einn af hápunktum hátíð­ar­innar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár