Er hægt að klóna manneskjur?

Svar: Mögulega

Er hægt að klóna manneskjur?
Klónun manna að verða fram­kvæm­an­leg Fram­farir á sviði erfða­tækni og klón­unar hafa orðið örar á síð­ustu árum. Mynd: Shutterstock

Fyrr í þess­ari viku bár­ust fréttir af því að Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú, hefði látið klóna hund­inn Sám, sem bjó með þeim Ólafi Ragnari Gríms­syni á Bessa­stöðum í for­seta­tíð Ólafs. Greint hafði verið frá því áður en Sámur drapst, sem gerð­ist í jan­úar á þessu ári, að þá þegar hafi verið búið að taka úr honum líf­sýni til að hægt yrði að klóna hund­inn.

Fyrsta spen­dýrið sem tókst að klóna var kindin Dollý sem kom í heim­inn í júlí 1996 og lifði hún fram á árið 2003. Eftir klónun Dollýar hefur fram­þróun í klónun orðið hröð og hafa vís­inda­menn klónað stærri spen­dýr, svo sem svín, hross og naut. Í byrjun árs 2018 var síðan stað­fest að kín­verskir vís­inda­menn hefðu orðið fyrstir til að klóna prímata, tvo makaí-smá­apa. Í ljósi þess að menn eru einnig af ætt­bálki prímata vöktu þessar fréttir  sið­ferði­legar spurn­ingar.

Klónun manna er við­fangs­efni ótal bíó­mynda, sjón­varps­þátta og skáld­sagna. Menn hafa þó ekki verið klón­aðir, í það minnsta svo vitað sé til, fram að þessu. Klónun manna er enda bönnuð með lögum í um 70 löndum heims­ins, meðal ann­ars á Íslandi. Klónun manna er hins vegar ekki for­taks­laust bönnuð í mörgum ríkjum.

Vís­inda­menn hafa unnið að þróun klón­unar manna um ára­tugi. Arnar Pálsson, pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­fræði, skrif­aði árið 2011 svar á Vís­inda­vef Háskóla Íslands við spurn­ing­unni Er hægt að klóna mann­eskju? Í svari Arnars kom fram að miðað við þekk­ingu og rann­sóknir sem þá þegar höfðu farið fram væri fræði­legur mögu­leiki á að hægt væri að klóna mann­eskju. „Slík klónun fæli í sér að erfða­efni einnar mann­eskju væri komið fyrir í virkj­uðu en kjarna­lausu eggi – og að upp yxi vera með nákvæm­lega sömu arf­gerð og mann­eskjan sem lagði til erfða­efnið. Það er síðan önnur spurn­ing hvort þetta sé fram­kvæm­an­legt í raun.“

Í sam­tali við Stundina segir Arnar að hann telji að þekk­ingin hafi þró­ast enn frekar í þá átt að hægt sé að klóna menn á þeim átta árum sem liðin eru síðan hann svar­aði á Vís­inda­vefnum. Enn hrað­ari þróun hafi orðið í mögu­leikum á erfða­breyt­ingum í fóstrum, sú tækni hafi verið á fleygi­ferð enda séu rann­sóknir í þeim til­gangi víða heim­ilar. „Ég held að þetta sé alveg að verða að fram­kvæm­an­legum mögu­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Staðreyndavaktin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár