Hver er sannleikurinn um Grænland og Bandaríkin?

Banda­ríkja­for­seti heldur fram ýmsu til rétt­læt­ingar yfir­töku á nágranna­landi Íslend­inga.

Hver er sannleikurinn um Grænland og Bandaríkin?
Trump og Frederik­sen Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skundar fram hjá Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, á leið­toga­fundi NATO í fyrra. Nú hriktir í stoðum banda­lags­ins vegna hót­ana þess fyrr­nefnda gegn þeirri síð­ar­nefndu og heilli nágranna­þjóð Íslend­inga. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur gengið lengra og lengra í yfir­lýs­ingum sínum um að taka yfir Grænland, sjálf­stjórn­ar­svæði innan danska kon­ung­dæm­is­ins og næsta nágranna­land Íslands, en margir velta fyrir sér hvers vegna hann vill yfir­taka það þegar Banda­ríkin hafa nú þegar víð­tækan aðgang að eyj­unni.

Hvað segir í varn­ar­samn­ingi Dan­merkur og Banda­ríkj­anna um Grænland? Hvað er Danmörk að gera til að efla öryggi sitt? Eru Kína og Rússland raun­veru­leg ógn? Og hvað segir sjálf­stæð­is­hreyf­ing Græn­lands?

Hér eru svör við þessum fjórum lyk­il­spurn­ingum.

Hernaðarviðvera Bandaríkjanna

Árið 1941, þegar síð­ari heims­styrj­öldin stóð sem hæst, heim­ilað Danmörk, sem var undir her­námi Þjóð­verja, Banda­ríkj­unum að byggja og reka her­stöðvar á Græn­landi, svo lengi sem átökin stæðu yfir, í því skyni að vernda amer­ísku heims­álf­una.

Við lok stríðs­ins höfðu Banda­ríkin 15 her­stöðvar á Græn­landi. Í dag er aðeins ein eftir, Pituffik-flug­stöðin á norð­vest­ur­strönd­inni, sem JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, heim­sótti í mars.

JD VanceHeim­sótti banda­rísku her­stöð­ina Pituffik nyrst á Græn­landi síð­asta vor.

Stað­setn­ing Græn­lands er hern­að­ar­lega mjög mik­il­væg, þar sem hún liggur á stystu leið fyrir flug­skeyti milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna. Hún er því mik­il­vægur hluti af eld­flauga­varn­ar­skildi Banda­ríkj­anna.

Grænland, þar sem búa 57.000 manns, „er mik­il­vægur hluti af þjóðar­ör­ygg­is­vörnum Banda­ríkj­anna,“ sagði Marc Jacobsen, sér­fræð­ingur í mál­efnum norð­ur­slóða við Kon­ung­lega danska varn­ar­mála­há­skól­ann, í sam­tali við AFP.

Frá árinu 1951 hefur samn­ingur Dana við Banda­ríkin – end­ur­skoð­aður árið 2004 – gefið banda­ríska hernum nán­ast ótak­markað leyfi til að gera það sem hann vill á græn­lensku yfir­ráða­svæði, svo lengi sem hann til­kynnir Danmörku og Græn­landi það fyr­ir­fram.

„Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna mun hafa sam­ráð við og til­kynna rík­is­stjórn Kon­ungs­rík­is­ins Dan­merkur, þar á meðal heima­stjórn Græn­lands, áður en veru­legar breyt­ingar á hern­að­ar­að­gerðum eða mann­virkjum Banda­ríkj­anna á Græn­landi eru fram­kvæmdar,“ segir í 3. grein samn­ings­ins.

Fjárfestingar Dana í öryggismálum

Trump hefur haldið því fram að Danmörku hafi mis­tek­ist að tryggja öryggi Græn­lands, sem er 2,2 millj­ónir fer­kíló­metra að stærð, eða um fimmt­ungur af stærð allrar Evrópu og 21 sinnum stærra en Ísland.

En Danmörk hafnar þessum full­yrð­ingum og leggur áherslu á að hafa úthlutað nærri 90 millj­örðum króna (1,76 billjónir íslenskra króna) til að efla örygg­is­mál árið 2025.

Til við­bótar boða Evr­ópu­þjóðir þátt­töku í vörnum lands­ins.

Sírius-sveitin, sem hefur það hlut­verk að verja gríð­ar­stórt, að mestu óbyggt svæði eyj­unnar í norð­austri sem er 972.000 fer­kíló­metrar, ferð­ast yfir ísinn á hunda­sleðum. Sveitin sam­anstendur af 12 her­mönnum og um 70 hundum.

En til að verja allt land­svæðið, sem er 81 pró­sent þakið ís, hefur danski her­inn fjár­fest í fimm nýjum norð­ur­slóða­skipum, loft­varn­arrat­sjár­kerfi, auk dróna og sjó­eft­ir­lits­flug­véla.

Einnig verður lagður sæstrengur fyrir fjar­skipti milli Græn­lands og Dan­merkur. Tveir strengir tengja eyj­una þegar við Ísland og Kanada.

Viðvera Kínverja og Rússa

Í nýlegri skýrslu frá hern­að­ar­legri leyni­þjón­ustu Dan­merkur kom fram að Rússland, Kína og Banda­ríkin keppt­ust öll um að gegna „stærra hlut­verki“ á norð­ur­slóðum.

Grænland býr yfir óunnum auð­lindum sjald­gæfra jarð­málma og gæti orðið mik­il­vægur aðili þar sem bráðnun heim­skauta­íss opnar nýjar sigl­inga­leiðir.

Í ágúst 2025 sáust tvö kín­versk rann­sókn­ar­skip starfa á norð­ur­slóðum, norður af Banda­ríkj­unum og Kanada, langt norður af Græn­landi.

„Það er mik­il­vægt að Donald Trump skilji að það eru ekki rúss­nesk og kín­versk skip með­fram strönd Græn­lands,“ sagði Jacobsen.

Kína er einnig nán­ast fjar­ver­andi í efna­hags­lífi Græn­lands.

Hið hálf-opin­bera fyr­ir­tæki Shenghe Resources á 6,5 pró­senta hlut í ástr­alska námu­fyr­ir­tæk­inu Energy Transition Minerals, sem vill þróa námu­svæði sjald­gæfra jarð­málma á Suður-Græn­landi. Það verk­efni er þó stöðvað um þessar mundir.

Að auki var Kína meinað að fjár­festa í nýjum flug­völlum á Græn­landi.

„Græn­lenska rík­is­stjórnin hafði sett stórt kín­verskt rík­is­fyr­ir­tæki á for­valslista til að veita tækni­lega aðstoð við bygg­ingu nýrra flug­valla fyrir átta árum, en Danmörk og Banda­ríkin buð­ust til að fjár­magna flug­vell­ina með því skil­yrði að kín­verski verk­tak­inn yrði ekki val­inn,“ sagði Jesper Willaing Zeuthen frá Ála­borg­ar­há­skóla í sam­tali við AFP.

Viðvera Kína á norð­ur­slóðum bein­ist nú aðal­lega að Norð­ur­sigl­inga­leið­inni og hefur landið stundum tekið þátt í æfingum með rúss­nesku strand­gæsl­unni í Ber­ings­sundi, sam­kvæmt mati frá Dansk Institut for Internationale Studier.

Leiðin til sjálfstæðis

Rík­is­stjórn Græn­lands í Nuuk og dönsk stjórn­völd Kaup­manna­höfn hafa ítrekað sagt að landið sé ekki til sölu og að aðeins Grænland geti ákveðið fram­tíð sína.

Þar er nú við völd sam­steypu­stjórn sem hefur ekki áform um að sækj­ast eftir sjálf­stæði frá Danmörku í nán­ustu fram­tíð.

Flokk­ur­inn Naleraq, sem vill skjótt sjálf­stæði og varð annar í þing­kosn­ingum á Græn­landi í mars, er ekki í rík­is­stjórn.

Þótt sumir flokks­manna vilji fara fram hjá Danmörku og semja beint við Banda­ríkin er opin­ber stefna flokks­ins sú að „Naleraq vill ekki að Græn­lend­ingar verði banda­rískir. Rétt eins og við viljum ekki vera danskir.“

Fyrir ári sögð­ust 85 pró­sent Græn­lend­inga vera and­víg því að ganga í ríkja­banda­lag með Banda­ríkj­unum, sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem birt var í dönskum og græn­lenskum fjöl­miðlum.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    Geggjuð hugmynd.
    1. Brenna Grænland til að sjúga allt súrefni frá Epstein-umræðunni.
    2. Sundrung hjá bandalagsþjóðum er besta jólagjöfin til vinarins í Kreml.
    3. Grisja repúblikanaflokkinn til að sjá hvaða fólk fylgi honum eins og læmingjar.
    Karlinum er ekki alls varnað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Staðreyndavaktin

Mest lesið undanfarið ár