Danir senda herlið til Grænlands strax í dag

Búist við liðs­auka frá Evr­ópu­löndum til Græn­lands. Vestræn sam­vinna er að sundr­ast, segir varakansl­ari Þýska­lands.

Danir senda herlið til Grænlands strax í dag
Lars Lokke Rasmus­sen Utan­ríkiks­ráð­herra Dan­merkur, hér á fundi NATO í fyrra, fundar í dag með banda­rískum stjórn­völdum. Mynd: AFP

Danmörk mun efla hern­að­ar­við­veru sína á Græn­landi „frá og með deg­inum í dag“, sagði varn­ar­mála­ráðu­neytið á mið­viku­dag, rétt áður en mik­il­vægar við­ræður áttu að hefj­ast í Washington vegna hót­ana Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta um að yfir­taka eyj­una á norð­ur­slóðum.

„Danski her­inn mun frá og með deg­inum í dag senda búnað og her­sveitir tengdar ... æfingum. Á kom­andi tíma­bili mun þetta leiða til auk­innar hern­að­ar­við­veru á og við Grænland, þar á meðal flug­véla, skipa og her­manna, einnig frá banda­lags­ríkjum NATO,“ sagði ráðu­neytið í yfir­lýs­ingu.

Græn­lenska land­stjórnin hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem við­vera hers­ins er stað­fest.

Fram kemur hjá danska rík­is­út­varp­inu Danmarks Radio að senn muni ber­ast liðs­auki frá evr­ópskum banda­mönnum.

Í dag funda Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, og Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, með Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, á skrif­stofu vara­for­set­ans JD Vance, að honum við­stöddum.

Fyrir fund­inn gaf Donald Trump Banda­ríkja­for­seti frá sér yfir­lýs­ingu um að annað væri „óásætt­an­legt“ en að Banda­ríkin fengju Grænland.

Vara-kansl­ari Þýska­lands var­aði við því í dag að tengsl Evrópu við Banda­ríkin væru að „sundr­ast“ á „sögu­legum umbrota­tímum“ undir stjórn Donalds Trump for­seta.

„Tengslin yfir Atl­ants­hafið eins og við höfum þekkt þau eru að sundr­ast um þessar mundir,“ sagði Lars Kling­beil, sem einnig er fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, í ræðu í Berlín.

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar sagði í dag að í kjöl­far beiðni frá Danmörku hefði Svíþjóð sent liðs­for­ingja til að taka þátt í her­æf­ingu á Græn­landi.

„Nokkrir liðs­for­ingjar úr sænska hernum koma til Græn­lands í dag. Þeir eru hluti af hópi frá nokkrum banda­lags­ríkjum. Saman munu þeir und­ir­búa við­burði innan ramma dönsku æfing­ar­innar Operation Arctic Endurance,“ sagði Ulf Kristers­son for­sæt­is­ráð­herra í yfir­lýs­ingu á X og bætti við að starfs­fólkið hefði verið sent „að beiðni Dan­merkur“.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár