Stríðin sem Trump stoppaði

Bandaríkja­forseti segist hafa bundið enda á átta stríð. Staðan er ekki svo einföld.

„Friðarforsetinn“
„Frið­ar­for­set­inn“ For­set­inn ræddi aftur árangur sinn í því að binda enda á stríð í fyrra­dag. Mynd: AFP

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, heldur því fram að hann eigi skilið friðar­verðlaun Nóbels fyrir það sem hann lýsir sem hlutverki sínu í að binda enda á átta stríð á þessu ári.

„Á 10 mánuðum batt ég enda á átta stríð,“ sagði Trump á þriðjudag. „Við sköpum frið með styrk.“

Þar á meðal er viðkvæmt vopnahlé á Gaza en honum hefur enn ekki tekist að binda enda á tæplega fjögurra ára stríð Rússlands gegn Úkraínu.

Frétta­stofa AFP skoðaði misjafnan árangur Bandaríkja­forseta.

Austur-Kongó og Rúanda

Þann 4. desember undir­rituðu Trump og leiðtogar Rúanda og Austur-Kongó samkomulag um að binda enda á einar langvinnustu deilur heims sem hafa kostað hundruð þúsunda mannslífa á nokkrum áratugum.

„Ég held að þetta verði mikið krafta­verk,“ sagði Trump.

En samkomu­lagið fór út um þúfur þegar M23-liðar, studdir af Rúanda, fóru inn í lykil­borgina Uvira í austur­hluta Austur-Kongó nálægt landa­mærunum að Búrúndí á þriðjudag.

Banda­ríkin og Evrópu­veldin hafa hvatt M23 og stjórn­völd í Kigali til að hætta sókninni „tafar­laust“.

Kambódía og Taíland

Trump var einn þeirra sem undir­ritaði vopnahlés­samning milli Kambódíu og Taílands í lok október í heimsókn sinni til Asíu.

Deilan milli þessara tveggja Suðaustur-Asíuríkja snýst um aldar­gamlan ágreining um landamæri sem kortlögð voru á tímum nýlendu­stjórnar Frakka á svæðinu, en báðar hliðar gera tilkall til nokkurra musteris­svæða við landa­mærin.

Vopna­hléið hélst aðeins í tvær vikur þar til í síðasta mánuði, þegar Taíland stöðvaði framkvæmd þess eftir að taílenskir hermenn særðust af völdum jarð­sprengna við landa­mærin.

Nýjasta lota bardaga hófst aftur í síðustu viku, með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 20 manns létu lífið og meira en hálf milljón manna, aðallega í Taílandi, neyddist til að flýja landamæra­svæði.

„Þeir eru í slag, en ég mun klára þetta,“ sagði Trump.

Stund­ar­friðurDonald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, horfir á Hun Manet, for­sæt­is­ráð­herra Kambódíu, og Anutin Charnvirakul, for­sæt­is­ráð­herra Taílands, þar sem þeir taka þátt í und­ir­ritun vopna­hléssamn­ings sam­hliða 47. leið­toga­fundi Sambands Suð­austur-Asíu­ríkja (ASEAN) í Kuala Lumpur þann 26. októ­ber 2025. Hálf milljón manna í Kambódíu og Taílandi leit­aði skjóls í pagóðum, skólum og á öðrum öruggum stöðum þann 10. des­em­ber 2025 eftir að hafa flúið end­ur­nýjuð átök í ald­ar­gam­alli landamæra­deilu sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur heitið að miðla málum í á ný.

Ísrael og Hamas

Þrýstingur frá Banda­ríkjunum leiddi loks til vopnahlés milli Ísraels og Hamas, tveimur árum eftir að hrikalegt stríð hófst á Gasa­svæðinu, sem hófst með árás palestínsku víga­samtakanna á Ísrael þann 7. október 2023.

Vopna­hléið, sem tók gildi 10. október, opnaði á að skila síðustu eftir­lifandi gíslunum og flestum líkum látinna aftur til Ísraels, í skiptum fyrir lausn palestínskra fanga.

Vopna­hléið gerði einnig kleift að auka flæði hjálpar­gagna inn á Gaza, þótt það sé enn hvergi nærri nóg til að mæta þörfum palestínsku íbúanna, að sögn Sameinuðu þjóðanna.

En vopnahléð er enn viðkvæmt og Ísrael og Hamas ásaka hvort annað um brot nánast daglega.

Meira en 70.000 manns hafa fallið á Gaza frá því stríðið braust út, samkvæmt tölum frá heilbrigðis­ráðuneytinu á svæðinu sem Hamas stjórnar.

Samkomu­lagið, sem Banda­ríkin miðluðu, er í þremur áföngum.

Benjamin Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, gaf nýlega til kynna að hann byggist við að annar áfanginn hæfist bráðlega, en Hamas hefur sagt að það sé ekki hægt á meðan „brot“ Ísraels­manna halda áfram.

Ísrael og Íran

Í júní hófu Ísraelar fordæma­lausa 12 daga loftárásar­herferð sem beindist að írönskum kjarnorku­stöðvum, vísinda­mönnum og æðstu herforingjum, og sögðu markmiðið vera að koma í veg fyrir að erki­fjandinn kæmist yfir kjarnorku­vopn – full­yrðing sem stjórn­völd í Teheran hafa stað­fastlega neitað.

Bandarískar hersveitir tóku síðar þátt í sókninni og gerðu einnig árásir á þrjár kjarnorku­stöðvar.

Trump tilkynnti um „algjört vopnahlé“ milli Ísraels og Írans.

En efasemdir eru enn um hversu lengi vopna­hléið mun halda.

Íran segir að kjarnorku­áætlun þeirra sé nú í biðstöðu vegna skemmda á mann­virkjum en heldur því fram að þeir muni ekki gefa eftir rétt sinn til að auðga úran. Ísrael og Banda­ríkin hafa hótað nýjum árásum ef Teheran endur­vekur kjarnorku­áætlun sína.

Pakistan og Indland

Í maí háðu Indland og Pakistan hörð fjögurra daga átök sem kostuðu meira en 70 manns lífið beggja vegna landa­mæranna áður en Trump tilkynnti um vopnahlé milli kjarnorku­veldanna.

En Narendra Modi, forsætis­ráðherra Indlands, sagði í júlí að enginn þjóðar­leiðtogi hefði þrýst á land sitt að hætta bardögum við Pakistan, án þess að nefna Trump sérstak­lega.

Ríkis­stjórn Pakistans hefur hins vegar sagt að hún myndi mæla með Trump fyrir friðar­verðlaun Nóbels árið 2026 „í viðurkenningar­skyni fyrir afgerandi diplómatíska íhlutun hans og lykil­forystu“ í átökunum.

Egyptaland og Eþíópía

Eþíópía og nágranna­ríki þess neðar meðfram ánni, Egypta­land, eru ekki í stríði, en spennan er mikil vegna vígslu risa­stórrar stíflu í Eþíópíu í september.

Egypta­land, sem er háð Níl fyrir 97 prósent af vatni sínu, hefur lengi fordæmt verkefnið og Abdel Fattah al-Sisi forseti hefur kallað það „tilvistarógn“ við vatns­öryggi landsins.

Á fyrsta kjör­tímabili sínu velti Trump því opinber­lega fyrir sér að Egypta­land gæti sprengt stífluna, sem leiddi til þess að Eþíópía sakaði Bandaríkja­forseta um að hvetja til stríðs.

Trump hefur krafist þess að fá heiðurinn af því að „viðhalda friði“ milli Egypta­lands og Eþíópíu.

Endur­teknar viðræðu­lotur hafa ekki skilað bindandi samkomu­lagi um hvernig Eþíópía mun fylla og reka lónið.

Badr Abdelatty, utan­ríkis­ráðherra Egypta­lands, sagði nýlega að samninga­viðræður við Eþíópíu væru komnar í „algjöra blindgötu“.

Armenía og Aserbaídsjan

Í ágúst undir­rituðu leiðtogar landanna tveggja í Kákasus drög að friðar­samningi í Hvíta húsinu, sem batt enda á áratuga átök. Armenía og Aserbaídsjan hafa háð tvö stríð um hið umdeilda svæði Karabakh, sem Aserbaídsjan endur­heimti frá armenskum hersveitum árið 2023.

Í bili er undir­ritun samningsins óviss vegna fjölda vanda­samra skilyrða sem Aserbaídsjan hefur lagt fram.

Serbía og Kosóvó

Serbía og Kosóvó hafa ekki undir­ritað endanlegan friðar­sáttmála og friðar­gæslu­sveitir undir forystu NATO hafa verið stað­settar í Kosóvó frá lokum stríðsins 1998-1999 milli albanskra þjóðernis­hópa og serbneskra hersveita.

Kosóvó lýsti yfir sjálf­stæði árið 2008, sem stjórn­völd í Belgrad hafa ekki viðurkennt.

Þótt Trump hafi ekki komið á friði milli Kosóvó og Serbíu, miðlaði stjórn hans samkomu­lagi um efnahags­legan stöðug­leika milli fyrr­verandi óvina á fyrsta kjör­tímabili sínu, árið 2020.

Viðræður á vegum ESB um eðlilegt samband milli landanna tveggja á Balkans­kaga, sem hófust árið 2011, eru enn í sjálf­heldu.

Ný stríð

Til viðbótar við að státa af því að ljúka stríðum hefur Trump hótað leynt og ljóst að hefja nokkur. Eitt af þeim er loft­árásir á Venesúela, annað er stríð gegn íslamistum í Nígeríu. Þá hefur hann ekki útilokað að taka Grænland með hervaldi eða hertaka Panama­skurðinn. Í gær hertóku Bandríkin olíuskip frá Venesúela. Þá hafa yfir 80 manns fallið í loft­árásum Bandaríkja­hers á skip á Karíbahafi og Kyrrahafi.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég veit ekki hvort ég óttast meira Trump eða þjóðina sem kaus hann.
    2
    • Greg Hill skrifaði
      Það er satt -- það eru fávitar hér -- en blekkið ykkur ekki til að halda að þetta sé bara vandamál Bandaríkjanna ... eða að hvorki kjósendur né kosningakerfið sjálft hafi verið undir miklum áhrifum erlendra ríkja. Þið þurfið bara að líta á kosningarnar 2020 og tilraunir Rússa til að grafa undan úrslitunum, sem urðu ekki eins og þeir vildu, í aðdraganda 6. janúar 2021.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Staðreyndavaktin

Mest lesið undanfarið ár