Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?

Því hefur verið haldið fram að allt að 23 pró­sent kvenna sé á örorku­líf­eyri hér á landi. Hið rétta er að 13,5 pró­sent kvenna eru á örorku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og 8 pró­sent karla. Hlutfall milli kvenna og karla á örorku­líf­eyri hefur hald­ist það sama í ára­tugi en örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegum hefur almennt fjölgað.

Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?
Fleiri konur en karlar Hlut­fallið milli karla og kvenna á örorku­líf­eyri hefur hald­ist svipað. Stærstur munur er í ald­urs­flokknum 60-66 ára. Mynd: Golli

Umræða um hátt hlut­fall kvenna á örorku­líf­eyri hefur verið áber­andi nú í byrjun árs og því hefur verið haldið fram að um fjórð­ungur kvenna á Íslandi sé á örorku­líf­eyri. 

„23% kvenna á Íslandi, næstum ein af hverjum fjórum, eru á öryrkja­bótum eða öryrkja­líf­eyri,“ segir í hástöfum í Facebook-færslu Taxý Hönter.

Sama er upp á ten­ingnum hjá Helga Bjarna­syni, öðrum þátta­stjórn­anda hlað­varps­ins Bjórkast. Í nýlegum þætti lýsir Arnar Þór Jónsson, gestur þátt­ar­ins, því hvernig búið sé að skapa kerfi sem er „hel­sjúkt af sós­í­al­isma.“ Í því sam­hengi full­yrðir Helgi að á Íslandi séu 23 pró­sent kvenna öryrkjar og 13 pró­sent karla.

Báðir vísa í Róbert Bragason, sér­fræð­ing hjá Samtökum skatt­greið­enda, sem ræddi örorku­líf­eyri meðal ann­ars í hlað­varp­inu Skatta­spjallið í jan­úar en sam­tökin höfðu tekið umrædda töl­fræði saman. „Á móti hverjum íslenskum karl­kyns öryrkja eru tveir kven­kyns öryrkjar,“ segir Róbert í þætt­inum.

Heim­ildin fór yfir stað­reyndir máls­ins …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Hér er áhugaverð skýrsla um fjöldaþróun örorkulífeyrisþega. https://www.obi.is/static/files/skjol/pdf-skyrslur/2019-09-sky-rsla-fjo-ldathro-un-o-bi-khs-utg-1.pdf
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Staðreyndavaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu