Seðlabankanum skylt að veita Ara upplýsingar

Seðla­banki Íslands dæmdur til að veita blaða­mann­inum Ara Brynj­ólfs­syni upp­lýs­ingar um starfs­loka­samn­ing bank­ans við fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits.

Seðlabankanum skylt að veita Ara upplýsingar
Nið­ur­staða sem blasti við Ari segir að allan tíman hafi verið ljóst að Seðla­bank­anum bæri að afhenda gögnin.

Seðla­banki Íslands var í morgun dæmdur til að afhenda Ara Brynj­ólfs­syni, blaða­manni á Frétta­blað­inu, upp­lýs­inga um samn­ing sem gerður hafði verið við fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Seðla­bank­inn höfð­aði mál á hendur Ara til að kom­ast hjá því að veita honum upp­lýs­ing­arnar eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafði úrskurðað að bank­anum bæri að veita þær.

Umræddar upp­lýs­ingar snúa að samn­ingi sem Már Guð­munds­son, þáver­andi Seðla­banka­stjóri, hafði gert við Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, fyrr­ver­andi fram­kvæda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Eftir heim­ildum Ara var gerður starfs­loka­samn­ingur við Ingi­björgu sem meðal ann­ars gekk út á að hún fengi greiddan náms­styrk við Harvard-háskóla en einnig laun án þess að vinnu­fram­lag kæmi á móti.

Ari óskaði eftir upp­lýs­ing­unum í nóv­em­ber á síð­asta ári en Seðla­bank­inn synj­aði honum um þær upp­lýs­ingar. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál tók málið fyrir og tók það nefndin fimm mán­uði að kveða upp úrskurð, Ara í vil. Því vildi Seðla­bank­inn ekki una og stefndi Ara fyrir dóm­stóla til að koma í veg fyrir að hann fengi umbeðnar upp­lýs­ingar. Því dóms­máli tap­aði bank­inn sem fyrr segir í morgun en ekki er ljóst hvort dómnum verði áfrýjað.

„Ég fagna nið­ur­stöð­unni, það blasti allan tím­ann við að Seðla­bank­anum væri skylt að afhenda þessi gögn. Ég á hins vegar eftir að fara yfir nið­ur­stöðunna með lög­manni mínum og fá það á hreint hvort Seðla­bank­inn ætlar að reyna að tefja afhend­ingu gagn­anna eitt­hvað frekar," sagði Ari í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár