Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, er orð­inn for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis eftir að full­trúar ann­arra flokka en Mið­flokks­ins kusu að sitja hjá í atkvæða­greiðslu um for­mennsk­una. Frétta­blaðið greindi fyrst miðla frá þessu nú fyrir stundu.

Tæpt ár er liðið síðan Stundin og DV birtu upp­tökur af sví­virð­ingum sem Bergþór lét frá sér í drykkju­sam­sæti með fleiri þing­mönnum á veit­inga­staðnum Klaustri. Á meðal þess sem Bergþór sagði var að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, væri „húrr­andi klikkuð kunta“, að Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum væri „miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum“, að Albertína Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar hefði reynt að nauðga honum, að hann vildi hafa kyn­mök við Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra og að hún væri „skrokkur sem typpið á mér dugði í“. Sagði hann að það hefði „engin gugga teymt [sig] meira á asna­eyr­unum en hún sem [hann hefði] ekki fengið að ríða“. Hann baðst afsök­unar á hegðun sinni og tók sér leyfi frá þing­störfum um skeið.

Athygli vakti svo þann 9. apríl síð­ast­lið­inn þegar Bergþór kvaddi sér hljóðs á vett­vangi Evr­ópu­ráðs­þings­ins og kvart­aði þar undan ósann­gjarnri umræðu á Íslandi um ummæli sín. Þá var­aði hann við því að tekið væri of harka­lega á kyn­ferð­is­legri áreitni þing­manna í Evrópu.

Að því er fram kemur á vef Frétta­blaðs­ins hlaut Bergþór aðeins tvö atkvæði sem for­maður þing­nefnd­ar­innar, frá sjálfum sér og Karli Gauta Hjalta­syni sem einnig lét að sér kveða á Klaustri bar í fyrra. Aðrir nefnd­ar­menn sátu hjá, en með því heldur sam­komu­lag sem gert var í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins um skipt­ingu for­manns­sæta þing­nefnda milli flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár