„Þarna kom loksins skrokkur sem typpið á mér dugði í“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist ánægður með sam­eig­in­lega nið­ur­stöðu Bergþórs Ólasonar og Gunnars Braga Sveins­sonar um að þeir vildu „ríða“ ráð­herra. Sig­mundur til­kynnti að Bergþór og Gunnar Bragi væru komnir í leyfi út af Klaust­urs­upp­tök­unum en situr sjálfur áfram á þingi þrátt fyrir virka þátt­töku í klám- og karl­rembutali.

„Þarna kom loksins skrokkur sem typpið á mér dugði í“

S

igmundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, heyr­ist hlæja og fagna sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu flokks­fé­laga sinna um löngun til að stunda kyn­líf með mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Klaust­urs­upp­tök­unum. Bergþór Ólason talar um ráð­herra sem „skrokk sem typpið á mér dugði í“.

Eins og Stundin hefur áður greint frá fóru þing­menn Mið­flokks­ins hörðum orðum um Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þing­menn­irnir voru háværir og vakti hegðun þeirra athygli.

Fyrst kvört­uðu þeir undan því að Lilja Alfreðs­dóttir sýndi þeim þremur ekki póli­tíska holl­ustu, og í fram­hald­inu ræddu þeir um hana á kyn­ferð­is­legum nótum og drógu upp klám­fengnar myndir. 

Sig­mundur Davíð tók virkan þátt í umræð­unum. „Hún notar kyn­þokk­ann,“ segir hann í umræðum um Lilju, fyrr­ver­andi flokks­fé­laga sinn úr Fram­sókn­ar­flokknum sem tók við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra að hug­mynd Sig­mundar árið 2016 eftir að Panama­skjölin komu fram og Sig­mundur þurfti að segja af sér ráð­herra­emb­ætti.

„Beggi, ég ætla að vona að konan mín heyri aldrei af þessu, en ég hefði alveg verið til í þetta dæmi,“ segir hann. „En það er alveg rétt hjá þér, henni er ekki treystandi og hún spilar á karl­menn eins og kven­fólk kann.“

Eftir að Bergþór og Gunnar Bragi hafa rætt um „engan kyn­þokka“ Lilju og kyn­þokka sem sé „einn og þrettán“, kom­ast þeir að nið­ur­stöðu: „Þú getur riðið henni, skil­urðu.“

Bergþór bætir við: „Þarna loks­ins kom skrokkur sem typpið á mér dugði í.“

Sig­mundur Davíð hlær í gegnum umræð­una og bætir við: „Ég er mjög ánægður að heyra að þið séuð komnir að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu með þetta.“ 

Sigmundur Davíð íhugar ekki stöðu sína

Sig­mundur Davíð hefur ekki íhugað stöðu sína vegna ummæla sinna á Klaust­urs­upp­tök­unum. Í tölvu­pósti til flokks­manna Mið­flokks­ins á föstu­dag, þar sem hann til­kynnti um að Bergþór og Gunnar Bragi færu í leyfi, seg­ist hann hafa átt að stöðva umræð­urnar, en minn­ist ekki á eigin orð sem voru hljóð­rituð.

„Ég er búinn að láta þessa konu yrða á mig aftur og aftur,“ segir Sig­mundur Davíð meðal ann­ars um Lilju. Í upp­tök­unni hneyksl­ast Bergþór, Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi á vali Lilju á aðstoð­ar­manni í mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Lilja valdi nýlega Jón Pétur Zimsen, skóla­stjóra Rétt­ar­holts­skóla, í stöð­una. Gera þeir lítið úr  því að Lilja hafi skipað „sér­fræð­ing“ og segj­ast hafa fengið skila­boð frá henni áður en til­kynnt var um skip­un­ina.

Þing­menn­irnir telja sig eiga harma að hefna gagn­vart Lilju. „Ef að Lilja hefði ein­hvern áhuga á að tengj­ast við okkur þá hefði hún hringt í sumar,“ segir Gunnar Bragi. „Auðvitað“ og „alveg aug­ljóst“ svara Sig­mundur Davíð og Bergþór.

Gunnar Bragi hrópar þá: „Henni er bara fokk­ing sama um hvað við erum að gera. Hjólum í hel­vítis tík­ina! Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjál­aður! Af hverju erum við að hlífa henni?“

Sig­mundur svarar á þá leið að hann skilji sjón­ar­miðin mjög vel. „Ég get algjör­lega sjálfum mér um kennt,“ segir hann. Sig­mundur bætir því svo að hann gefi Gunnari Braga „leyfi“ til að kalla Lilju „asna“ á tveggja manna fundi.

Í umræðum um útlit Írisar Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum, og mögu­legt gengi hennar í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði Sig­mundur Davíð: „Og á þeim for­sendum segi ég að hún hrynji niður list­ann.“

Í við­tali í Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni á föstu­dag sagð­ist Sig­mundur Davíð ekki hafa íhugað stöðu sína. „Auðvitað ef sú væri raunin eins og ein­hver orð­aði það að menn almennt stigi til hliðar eftir að hafa setið við svona umræðu þá væri orð­inn þunnur bekk­ur­inn á Alþingi, það væru fáir eftir,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár