Íslenskri bók stolið og hún notuð sem grunnur að bók í Póllandi

Stórir hlutar bókar Öldu Sig­munds­dóttur voru birtir í pól­skri bók án þess að hún hefði vit­neskju þar um. Fjórtán mán­uðir liðu áður en bókin var loks tekin úr sölu og þá ekki fyrr en eftir að pólskir fjöl­miðlar hófu að fjalla um málið.

Íslenskri bók stolið og hún notuð sem grunnur að bók í Póllandi
Varð fyrir rit­stuldi Alda er orðin lang­eygð eftir nið­ur­stöðu í rit­stuld­ar­máli því sem hún hefur rekið í Póllandi síð­ast rúma árið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stórir hlutar úr bók Öldu Sig­munds­dóttur rit­höf­undar, The Little Book of the Icelanders in the Old Days, voru teknir án hennar vit­neskju og birtir í pól­skri bók sem höf­und­ar­verk ann­arra rit­höf­unda. Fjórtán mán­uðir eru liðnir síðan Alda fékk upp­lýs­ingar þar um og fór fram á aðgerðir af hálfu pólska bóka­for­lags­ins en það var fyrst fyrir hálfum mán­uði sem bókin sem um ræðir var tekin úr sölu. Það gerð­ist eftir að fjallað var um málið í mörgum helstu fjöl­miðlum Póllands og for­lagið fékk yfir sig hol­skeflu af athuga­semdum Pólverja sem blöskr­aði fram­ferðið. Enn er ósamið við Öldu um hvernig mál­inu verður lokið og hvaða bætur hún fær greiddar.

Alda gaf árið 2014 út bók­ina The Little Book of the Icelanders in the Old Days, sem inni­heldur 50 stuttar frá­sagnir á léttu nót­unum um lífs­bar­áttu Íslend­inga á liðnum öldum. Bókin hefur verið fáan­leg meðal ann­ars á Amazon-vef­síð­unni, vef­síðu Öldu sjálfrar og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár