Þögul skilaboð Elizu á fundi með Mike Pence

For­seta­frúin Eliza Reid tók á móti vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, klædd í hvíta dragt. Fyrr á árinu fjöl­menntu banda­rískar þing­konur á þing­pall­ana klæddar hvítum drögtum, til heið­urs konum sem hafa barist fyrir kven­frelsi og jafn­rétti.

Þögul skilaboð Elizu á fundi með Mike Pence

For­seta­hjónin Guðni Th. Jóhann­es­son og Eliza Reid tóku á móti Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, í Höfða í dag. Þar lagði for­seti Íslands áherslu á fjöl­breyti­leik­ann og var með arm­band frá Krafti í regn­boga­litum. For­seta­frúin var hins vegar klædd í hvíta buxna­dragt og sendi með því þögul skila­boð um jafn­rétti. 

Bandarískar þingkonur klæddust hvítu

Í byrjun árs vakti það athygli þegar banda­ríska þing­konan Alex­andra Ocasio-Cortez klædd­ist hvítri buxna­dragt þegar hún sór emb­ætt­is­eið, yngst allra kvenna í banda­rískri stjórn­mála­sögu. Klæddist hún hvítu til að heiðra bar­áttu­konur fyrir jafn­rétti, en klæðn­að­ur­inn var vísun í bresku súf­fra­grett­urnar sem hófu bar­áttu sína árið 1903 og beittu rót­tækum aðferðum til að berj­ast fyrir kosn­inga­rétti kvenna og jafn­rétti. „Ég klædd­ist hvítu í dag til heið­urs öllum þeim konum sem komu á undan mér, og þeim sem á eftir fylgja,“ skrif­aði hún á Instagram-reikn­ing sinn við það tæki­færi.

„Ég klædd­ist hvítu í dag til heið­urs öllum þeim konum sem komu á undan mér, og þeim sem á eftir fylgja“

Mánuði síðar, eða í febr­úar, sýndu þing­konur Demókra­ta­flokks­ins sam­stöðu þegar þær mættu allar í hvítum buxna­drögtum til að hlýða á árlegt ávarp for­set­ans um stöðu ríkja­sam­bands­ins. Með hvíta litnum, á móti dökkum jakka­fötum karl­anna, var ójafn­vægið í salnum und­ir­strikað. Þrátt fyrir met­fjölda kvenna voru þær aðeins um 23 pró­sent þing­manna. 

Áður hafði Hillary Clinton klæðst hvítum buxna­drögtum á lyk­il­stundum í kosn­inga­bar­átt­unni um for­seta­emb­ættið, meðal ann­ars þegar hún tók við útnefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins, í þriðju og síð­ustu kapp­ræð­unum við Donald Trump fyrir kosn­ing­arnar og svo loks þegar hann var vígður til for­seta.  

Með armband í regnbogalitunum 

Jafn­rétt­is­mál hafa verið Elizu hug­leikin og hefur hún verið ötull tals­maður þeirra frá því að eig­in­maður hennar var kjör­inn for­seti. Aðeins eru tveir dagar liðnir síðan hún tjáði sig um við­horf gagn­vart eig­in­konum þjóð­ar­leið­toga á Facebook. Þar sagð­ist hún ekki vera „hand­taska eigin­manns míns, sem á að grípa þegar hann hleypur út um hurð­ina og er stillt upp með þöglum hætti við hlið hans á opin­berum upp­á­komum.“ 

Það má því leiða að því líkum að skila­boð Elizu hafi verið skýr, þegar hún valdi að klæð­ast á þennan hátt á fundi með vara­for­seta Banda­ríkj­anna í dag; að leggja þurfi áherslu á jafn­rétt­is­mál. Eins vakti athygli að Eliza bar regn­bogaarm­band, til­vísun í rétt­inda­bar­áttu sam­kyn­hneigðra.

For­set­inn bar einnig lit­ríkt arm­band frá Krafti, stuðn­ings­fé­lagi fyrir ungt fólk með krabba­mein og aðstand­endur þeirra. Benti hann á að Ísland mæti góð sam­skipti við Banda­ríkin mik­ils. „Ég von­ast líka til að þú fáir til­finn­ingu fyrir þeim gildum sem okkur eru kær, frelsi, fjöl­breyti­leika, alþjóða­sam­starf og virð­ingu hverju fyrir öðru,“ sagði Guðni.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Guðni leggur áherslu á slík gildi gagn­vart banda­rískum stjórn­völdum. Þegar Donald Trump var kjör­inn for­seti árið 2016 óskaði Guðni honum til ham­ingju með þeim orðum að við Íslend­ingar styðjum „jafn­rétti kynj­anna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð lit­ar­hafti eða trú.“

Forsætisráðherra ræddi jafnréttismál

Mike Pence hefur lýst sjálfum sér með þeim hætti að hann sé „krist­inn, íhalds­sam­ur og re­públi­kani, í þess­ari röð.“ Viðhorf hans gagn­vart kven­frelsi og rétt­indum sam­kyn­hneigðra eru væg­ast sagt íhalds­söm og á meðan hann var staddur í Höfða brugð­ust fjöl­mörg fyr­ir­tæki og stofn­anir við með því að draga fána í regn­boga­lit­unum að húni, fána sem hefur orðið að tákn­mynd í rétt­inda­bar­áttu sam­kyn­hneigðra. 

For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir, mætti Pence í Keflavík í kvöld þar sem þau áttu fund saman. Fyrir fund­inn áttu þau sam­tal við fjöl­miðla þar sem hún lagði áherslu á að þau myndu ekki aðeins ræða varnar- og utan­rík­is­mál, heldur myndu þau einnig ræða loft­lags­mál og jafn­rétt­is­mál. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár