Regnbogafánar blasa við Pence hjá Höfða: „Erum bara að fagna fjölbreytileikanum“

Fyr­ir­tækið Advania flaggar regn­boga­fánum fyrir utan höf­uð­stöðvar sínar í dag. Vara­for­seti Banda­ríkj­anna, sem hefur beitt sér gegn rétt­indum hinseg­in­fólks, mun funda í næsta húsi.

Regnbogafánar blasa við Pence hjá Höfða: „Erum bara að fagna fjölbreytileikanum“
Flaggað við Höfða Mike Pence mun skoða húsið sögu­fræga síð­degis í dag. Mynd: ADVANIA

Sex regn­boga­fánar munu blasa við Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, við komu hans í Höfða í dag. Samkvæmt dag­skránni fær hann leið­sögn um húsið klukkan 15:35.

Pence hefur sætt gagn­rýni vegna and­stöðu sinnar við rétt­indi sam­kyn­hneigðra. Hefur hann verið and­vígur því að sam­kyn­hneigðir þjóni í banda­ríska hernum og kosið gegn auknum rétt­indum LGBT+ fólks. Hann er einnig and­vígur hjóna­böndum tveggja aðila af sama kyni.

Fyr­ir­tækið Advania flaggar fán­unum fyrir utan höf­uð­stöðvar sínar, sem eru beint á móti Höfða. „Við erum bara að fagna fjöl­breyti­leik­anum eins og alla daga,“ segir Þóra Tóm­as­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Advania, í sam­tali við Stundina.

Regn­boga­fán­inn hefur verið tákn í bar­áttu hinsegin fólks um ára­tuga skeið. San Francisco-búinn Gilbert Baker hann­aði og saum­aði fán­ann árið 1978. Litirnir áttu að tákna sam­fé­lag sam­kyn­hneigðra, að því fram kemur á vef Hinsegin daga. „Á þrjá­tíu árum hefur fán­inn orðið þekkt­ari sem tákn þeirra en bleiki þrí­hyrn­ing­ur­inn sem um langt skeið var helsta auð­kenni rétt­inda­bar­átt­unnar. Fyrir þetta fram­tak sitt hefur Gilbert Baker stundum verið kall­aður Betsy Ross sam­kyn­hneigðra, en hún saum­aði fyrsta fána Banda­ríkj­anna.“

Þá hafa regn­boga­fánar verið dregnir að húni við skrif­stofur Eflingar í Guð­rúnar­túni. „Við styðjum mann­rétt­indi hinsegin fólks hvar sem er í heim­inum,“ segir í færslu á Facebook-síðu Eflingar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár