Frídagur verslunarmanna, sumarsýningar og stórstjörnur

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 1.–22. ágúst.

Frídagur verslunarmanna, sumarsýningar og stórstjörnur

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu þrjár vik­urnar.

Verslunarmannarhelgin 2019

Hvar? Víðs vegar
Hvenær? 2.–4. ágúst
Aðgangs­eyrir: Fer eftir hátíð­inni.

Á þriggja daga helg­inni sem er kennd við frí­dag versl­un­ar­manna er ofgnótt af spenn­andi bæj­ar­há­tíðum fyrir gleðip­inna. Evr­ópu­meist­ara­mótið í Mýr­ar­bolta er enn og aftur haldið á Bol­ung­ar­vík, en auk við­van­ings­vænu keppn­innar verða líka tón­leikar, bjór jóga og fleira í boði. Fyrir norðan á Akureyri er Ein með öllu haldin og fyrir austan, í Nes­kaup­stað, er Neista­flug haldið, en báðar hátíð­irnar eru fjöl­skyldu­vænar með fjöl­breytta dag­skrá fyrir alla ald­urs­hópa. Á Laug­ar­bakka er Norð­an­paunk, DIY árs­há­tíð pönk­ara, haldið, en þar koma fram um 45 jað­ar­sveitir sem spila erf­iða tón­list fyrir gott fólk. Inni­púkar geta líka glaðst yfir því að hátíðin Inni­púk­inn verður hald­inn í 18. sinn í Reykja­vík, í þetta sinn á Granda.

Flæði – opnunarpartí

Hvar? Flæði
Hvenær? 1. ágúst 14.00–22.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Flæði er nýtt lista­manna­rekið rými sem verður opnað á Grett­is­götu 3, en það er hugsað sem stökk­pallur fyrir fjöl­breytta flóru lista af mis­mun­andi toga. Í opn­un­ar­hóf­inu verða sýnd lista­verk eftir Sunnu Axels, ker­am­ikverk eftir Antoníu Berg­þórs­dóttur og ljós­myndir eftir Brynju. Um kvöldið spilar síðan danska tón­list­ar­konan Zaar draum­kennda tóna.

… og hvað svo?

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? Til 4. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sum­arsýningu Nýlista­safns­ins mæt­ast verk ell­efu lista­manna sem, hvert fyrir sig og í sam­tali sín á milli, ávarpa hið yfir­vof­andi og rann­saka list­ina sem áhrifa­vald. Sýningin spyr stórra spurn­inga eins og hvort list geti haft mót­andi áhrif á það sem á eftir að ger­ast, og hvort listin hjálpi fólki að kljást við raun­veru­leik­ann eða hvort hún feli í sér raun­veru­leikaflótta.

Öll brögð möguleg

Hvar? Kling & Bang
Hvenær? Til 4. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sum­ar­sýn­ing Kling & Bang er hóp­sýn­ing sjö ungs mynd­list­ar­fólks sem kemur allt úr mis­mun­andi átt. Í þessum bræð­ingi koma fyrir inn­setn­ingar og lif­andi tón­verk, hljóð­leið­sagnir og sér­saum­aðir sand­pokar. Við­kvæmar töfflur úr pitsukössum sitja við hlið­ina á ís sem bragð­ast eins og göngutúr og sápu sem lyktar eins og sum­arið. Ekkert er satt og allt er leyfi­legt á þess­ari sýn­ingu.

Mill

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 4. ágúst kl. 15.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Hanna Mia er sænskt-íslenskt söngvaskáld, betur þekkt sem Mill. Tónlist hennar vakti athygli þegar hún hóf tón­smíða­verk­efni þar sem hún samdi eitt lag á dag í heilt ár. Á Pikknikk-tón­leikum hennar í Norræna hús­inu mun Mill flytja hápunkt­ana frá þessu ferli í sam­starfi við vini og náms­fé­laga frá tón­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands. Tón­leik­arnir verða haldnir í gróð­ur­húsi Norræna húss­ins.

míní-míní múltíversa

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? Til 11. ágúst
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Ragn­heiður Kára­dóttir kannar mörkin á milli hins mann­gerða og hins nátt­úru­lega á þess­ari sýn­ingu. Sér­stak­lega lítur hún til staða sem hann­aðir hafa verið til afþrey­ingar; með inn­setn­ingu sinni kallar Ragn­heiður fram eins konar rof í veru­leika áhorf­enda með inn­sýn í ímynd­aða hlið­ar­vídd sem kall­ast á við það umhverfi sem við þekkjum. Hinn 8. ágúst klukkan 20.00 verður Ragn­heiður með leið­sögn um sýn­ing­una.

HIMA 2019

Hvar? Harpa
Hvenær? 6., 10., 11. & 15. ágúst
Aðgangs­eyrir: frá 5.000 kr.

Alþjóð­lega tón­list­araka­dem­ían í Hörpu var fyrst haldin árið 2013, en hún sam­anstendur bæði af æfinga­búðum fyrir ungt tón­list­ar­fólk og röð af tón­leikum. Opn­un­ar­hóf er 6. ágúst, en 10. og 11. má hlýða á unga og upp­renn­andi flytj­endur. 15. ágúst eru síðan hátíð­ar­tón­leik­arnir þar sem strengja­sveit HIMA leikur fjögur verk, auk þess sem mis­mun­andi tón­verk eru flutt á mis­mun­andi stöðum í tón­leika­salnum.

Hinsegin dagar

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 8.–17. ágúst
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burðum

Hinsegin dagar, eða Reykja­vík Pride, hafa verið haldnir árlega frá 1999 og fagna því 20 ára afmæli í ár. Þessi hátíð ham­ingju, ástar og fjöl­breytni hefur spilað stóran þátt í vit­und­ar­vakn­ingu á mál­efnum hinsegin fólks, en nú er hún orðin fastur liður í við­burða­daga­tali borg­ar­innar. Auk fjöl­margra við­burða í vik­unni er Gleði­gangan haldin 17. ágúst klukkan 14.00.

FINGERED EYED

Hvar? i8
Hvenær? Til 10. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk banda­rísku mynd­list­ar­kon­unnar B. Ingrid Olson hafa fram til þessa fallið illa að flokk­un­ar­kerfi list­miðl­unar: um leið og þau eru svo miklu meira en „skúlp­t­úrar og ljós­myndir í inn­rými“ eru verkin vit­an­lega mest­an­part skúlp­t­úrar, oft ljós­myndir og alltaf í sam­spili við inn­rými. Skúlp­t­úr­verkin á þess­ari sýn­ingu eru hvert um sig föst á fleti, þau rjúfa vegg­inn og nota hann sem und­ir­stöðu til að vaxa útfrá.

Elín Harpa

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 11. ágúst kl. 15.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Elín Harpa er íslensk raf­tón­list­ar­kona sem gaf nýverið út sitt fyrsta lag „Run“, fyrsta smá­skífa hennar er vænt­an­leg síðar á þessu ári. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Elín starfað lengi í tón­list en hún hóf sinn tón­list­ar­feril eftir þátt­töku í The Voice Iceland. Und­an­farin ár hefur Elín Harpa starfað með íslensku hljóm­sveit­inni Bang Gang og spilað með þeim um Asíu.

Ed Sheeran

Hvar? Laug­ar­dals­völlur
Hvenær? 11. ágúst kl. 18.30
Aðgangs­eyrir: frá 15.990 kr.

Enski tón­list­ar­mað­ur­inn Ed Sheeran leggur land undir fót og heldur stór­tón­leika á Íslandi. Það seld­ist upp á svip­stundu á tón­leika hans 10. ágúst og var því þessum aukatón­leikum bætt við. Með honum í för eru sam­landi hans, James Bay, sænska popp­stirnið Zara Larsson og upp­renn­andi íslenska stjarnan Glowie sem býr í Lundúnum þar sem hún vinnur hörðum höndum að fyrstu breið­skífu sinni.

ADHD

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 14. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: frá 2.000 kr.

Djass­hljóm­sveitin ADHD gaf á dög­unum út sína sjö­undu plötu, ADHD 7, og hefur því spilað víða í sumar. Sveitin tekur nú þátt í Sum­ar­tón­leika­röð Norræna húss­ins þar sem efni bæði af nýju og eldri plötum verður leikið fyrir gesti. Hljóm­sveitin var stofnuð í kringum blús­há­tíð Hafnar á Horna­firði fyrir tólf árum og hefur verið starf­rækt síðan þá.

Jaðar

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 15. ágúst til 22. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Verk Emmu Heið­ars­dóttur byggj­ast á inn­gripi í þau rými sem hún sýnir í auk sjálf­stæðra þrí­víðra verka og mynd­bands­verka. Emma er 39. lista­mað­ur­inn til að sýna í sýn­inga­röð Lista­safns Reykja­víkur í D-sal, en hún ein­kenn­ist af því að bjóða efni­legum lista­mönnum sem hafa mót­andi áhrif á íslenska mynd­list­ar­senu að halda sína fyrstu einka­sýn­ingu í opin­beru safni.

FM Belfast

Hvar? Havarí
Hvenær? 17. ágúst
Aðgangs­eyrir: 4.000 kr.

Raf­mögn­uðu popp­ar­arnir og gleði­sprengj­urnar í FM Belfast spila enn og aftur í Havarí á Karls­stöðum í Berufirði. Sveitin hefur verið virk í fjórtán ár, gefið út fjórar breið­skífur og spilað á öllum hátíðum og tón­leika­stöðum sem vert er að minn­ast á. Þessir tón­leikar eru þeir síð­ustu í ser­í­unni „Sumar í Havarí 2019“ og því má búast við því að í engu verði sparað og að þakið verði end­an­lega rifið af hlöð­unni.

Toolraiser 2019

Hvar? Verk­færa­safn Reykja­víkur
Hvenær? 18. ágúst kl. 17.00–23.30
Aðgangs­eyrir: eitt verk­færi.

Verk­færa­safn Reykja­víkur var opnað fyrir ári, en á þessu safni býðst með­limum að fá verk­færi lánuð í nokkra daga. Þessi við­burður er í senn afmæl­is­fögn­uður og fjár­öflun fyrir kom­andi vetur, en aðgangs­eyr­ir­inn er eitt verk­færi. Boðið verður upp á tón­leika þar sem MSEA, Skoffín, Dead Bird Lady og fleiri koma fram. Á boðstólum verður kaka og bjór frá Ægis­garði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár