Nova bregst við frásögn Guðrúnar: „Höfum ákveðið að loka á þessa þjónustu“

Gagnrýni Guðrúnar Línberg Guð­jóns­dóttur á Facebook varð til þess að Nova ákvað strax að loka fyrir mögu­leik­ann á nafn­lausum sms-send­ingum af vef sínum.

Nova bregst við frásögn Guðrúnar: „Höfum ákveðið að loka á þessa þjónustu“
Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir Mynd: Steinunn Lilja Draumland

Nova ætlar að loka fyrir nafn­lausar sms-send­ingar af vef sínum. Þuríður Björg Guðna­dóttir, sölu- og þjón­ustu­stjóri Nova, greinir frá þessu á Facebook, en til­efnið er frá­sögn Guðrúnar Línberg Guð­jóns­dóttur af því hvernig hún hefur verið áreitt með slíkum skila­boðum um margra ára skeið.

Stundin fjall­aði um málið upp úr hádegi. „Af hverju þarf hið sjálf­gefna að vera að það sé opið fyrir áreitni og ein­elti eftir þess­ari leið?“ spurði Guðrún í Facebook-færslu. „Kemur þetta ein­hverjum að gagni nú til dags? Öðrum en þeim sem vilja elti­hrella, leggja í ein­elti og áreita?“

Þuríður bregst við með athuga­semd undir færsl­unni. „Þetta er mjög rétt­mæt athuga­semd og við hjá Nova höfum ákveðið að loka á þessa þjón­ustu þar sem í dag geta allir við­skipta­vinir sent frí SMS í gegnum far­síma sína eða með því að auð­kenna sig í gegnum Stólinn. Takk kær­lega fyrir að benda okkur á hvað við getum gert betur,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár