Stendur ekki til að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftlagsmála

Rík­is­stjórn Íslands kynnir á næst­unni aðgerðir á grund­velli aðgerð­ar­á­ætl­unar um lofts­lags­mál. Upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar segir að ekki standi til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi að hætti Breta, að svo stöddu. Aðal­á­herslan liggi í aðgerðum. Með þeim náist árangur í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum.

Stendur ekki til að lýsa yfir neyðarástandi vegna loftlagsmála

Rík­is­stjórn Íslands hefur ekki tekið ákvörðun um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­mála og telur aðgerðir það sem mestu máli skiptir.

Í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar við spurn­ingu blaða­manns um hvort lýsa eigi yfir neyð­ar­á­standi kemur fram að að svo stöddu hafi ekki verið tekin ákvörðun um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna loft­lags­mála. Aðal­á­herslan liggi í aðgerðum, að með þeim náist árangur í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum.„Rík­is­stjórnin leggur aðal­á­herslu á aðgerðir í lofts­lags­málum. Þær eru það sem mestu máli skiptir,“ segir í svar­inu. 

Í svar­inu segir að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar sé lögð mikil áhersla á loft­lags­mál og að rík­is­stjórnin hafi nú þegar sett fram viða­mikla aðgerð­ar­á­ætlun. Meg­in­á­hersl­urnar séu helst tvær, í fyrsta lagi orku­skipti í sam­göngum, með sér­stakri áherslu á raf­væð­ingu í vega­sam­göngum, og í öðru lagi átak í kolefn­is­bind­ingu þar sem lögð er áhersla á skóg­rækt, land­græðslu og end­ur­heimt vot­lendis til að draga úr losun. „Mark­miðið er kolefn­is­hlut­laust Ísland í síð­asta lagi árið 2040.“

„Rík­is­stjórnin leggur aðal­á­herslu á aðgerðir í lofts­lags­málum. Þær eru það sem mestu máli skiptir.“

Á næst­unni standi til að kynna aðgerðir á grund­velli aðgerð­ar­á­ætl­un­ar­innar sem varða meðal ann­ars orku­skipti í sam­göngum, kolefn­is­bind­ingu og sam­starf stjórn­valda við atvinnu­lífið á þessu sviði.

Umræða mikil meðal almennings

Í svar­inu kemur fram að umræða um loft­lags­mál sé mikil á Íslandi meðal almenn­ings. Stjórn­völd finni fyrir miklum með­byr hjá sam­fé­lag­inu að leggja sitt lóð á vog­ar­skál­arnar til að sporna við áhrifum af völdum lofts­lags­breyt­inga.

Upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar segir að almenn­ingur í Bret­landi hafi, í ljósi

umræðu um neyð­ar­á­stand, þrýst á stjórn­völd þar í landi að því marki að nú hafi Bretland lýst yfir neyð­ar­á­standi og sett sér mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2050.

Litið er á ákvörðun Breta sem tákn­rænan gjörn­ing sem hvetja eigi stjórn­völd um heim allan til að taka stöð­una alvar­lega. Stefán Gíslason umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur sagði nýverið í sam­tali við Stundina að honum lít­ist vel á ákvarð­anir þeirra yfir­valda sem hafa lýst yfir neyð. „Með yfir­lýs­ingum eru loft­lags­mál sett í fyrsta sæti, sem þýðir meðal ann­ars að verk­efni sem ganga í aðra átt verða að víkja.“ Einnig segir Stefán að mik­il­vægt sé að Ísland „dragi vagn­inn í þessum efnum í stað þess að vera sein­fær spor­göngu­maður.“ Stefán telur íslensk stjórn­völd ekki hafa gert allt sem í sínu valdi stendur þegar kemur að loft­lags­málum.

Fleiri hafa tekið undir með Stefáni. Land­vernd skor­aði nýverið á rík­is­stjórn­ina að lýsa yfir neyð­ar­á­standi en fram­kvæmd­ar­stjóri Land­verndar, Auður Önnu Magn­ús­dóttir, telur að aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda gangi ekki nógu langt. „Þessi aðgerð­ar­á­ætlun gengur alls ekki nógu langt og það er mjög erfitt að vinna eftir henni þegar hún er hvorki tíma­sett né magn­bundin,“ segir Auður í við­talið við Rúv um málið. 

Hins vegar segir í svar­inu að íslensk stjórn­völd ætli sér að vera á undan Bretum í sínum aðgerðum. „Íslensk stjórn­völd ætla sem fyrr segir að ná sama mark­miði tíu árum fyrr.“ Því snú­ist afstaða rík­is­stjórnar frekar um aðgerðir en yfir­lýs­ingar. „Í grunn­inn snýst málið um aðgerðir. Þær eru það sem mestu máli skiptir.“

„Með yfir­lýs­ingum eru loft­lags­mál sett í fyrsta sæti.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár